Fréttablaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 26
2 föstudagur 29. maí Þ etta var eiginlega svolítil skyndiákvörð-un. Við fengum bara hugmynd og vorum ekkert að velta okkur of mikið yfir henni,“ segir Urður Hákonardóttir, fyrrum söngkona Gusgus og framkvæmdastjóri Nostalgíu, nýrr- ar fataverslunar við Laugaveg 37. Verslunin var opnuð með opnunarteiti á miðvikudags- kvöldið. „Í rauninni small allt mjög auðveldlega saman, vorum fljót að panta inn litla send- ingu og svo er meira á leiðinni í næstu viku,“ segir Urður. „Búðin er hlaðin gersemum og vel völdum „second hand“-stykkjum ásamt ýmsum skemmtilegum nytjahlutum. Við selj- um notuð föt og ýmsa smáhluti og erum við opin fyrir því að kaupa gamla lagera, tuttugu ára og eldri, af fatnaði, fylgihlutum og bús- áhöldum,“ segir Gígja Ísis verslunarstjóri og Urður tekur í sama streng. „Við erum með fjölbreytt úrval og erum ekki að einskorða okkur við ákveðin tímabil eða stíl og erum með 70‘s, 80‘s og 90‘s dót,“ segir Urður sem vann áður í 38 þrepum og Spúútnik. Aðspurð segist hún ekki hafa séð neitt því til fyrirstöðu að stofna verslun í kreppunni. „Ég sé ekki að þetta ætti ekki að vera hægt. Ég held að á þessum tíma blómstri litlu fyrirtækin, endurvinnsla og íslensk hönn- un, það er vonandi það sem fólk er að hugsa um núna. „Second hand“ er líka alltaf búið að vera sterkt hér og er að koma sterkara inn en áður. Við erum að opna á góðum tíma því sumarið er alltaf svolítið tími Laugavegarins og ég er ein af þeim sem fer alltaf á Lauga- veginn, en ekki í Kringluna eða Smáralind,“ útskýrir Urður og segist vera bjartsýn. „Það kom fullt af fólki í gær og við höfum fengið rosalega góðar viðtökur svo ég hef fulla trú á þessu.“ - ag núna ✽ á ferð um landið Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Stefán Karlsson Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 „Undirbúningur er í fullum gangi og það er búið að ganga frá öllu þessu helsta svo sem matseðli, kokkum og músík,“ segir Friðrik Weisshappel spurður um fyrirhug- að brúðkaup. Friðrik mun ganga að eiga unnustu sína, Tine Holm- boe, 11. júlí næstkomandi, en þau trúlofuðu sig í fyrrasumar og eiga dótturina Irmu, sextán mánaða. Við ætlum að gifta okkur í lítilli sveitakirkju sem er í klukkutíma akstursfjarlægð frá Kaupmanna- höfn, en höldum síðan veislu á herragarði sem er í eigu fjöl- skyldu Tine. Þar ætla mínir bestu vinir að gista og síðan vöknum við öll saman og fáum okkur „brunch“ daginn eftir,“ útskýrir Friðrik sem á von á um 125 manns í veisluna, en um 30 manns munu gista á herragarðinum. Aðspurður segist hann vera búinn að bóka tónlistaratriði og ljósmyndara fyrir brúðkaupsdag- inn. „Í mínum vinahópi eru tveir mjög góðir plötusnúðar, en síðan erum við búin að bóka danska djassmúsíkanta. Við vildum ekki fara í hefð- bundna brúðkaupsmyndatöku svo við fengum mjög góðan tón- leikaljósmyndara sem verður með okkur allan tímann og sefur svo ásamt gestum til að taka myndir daginn eftir. Það mikilvægasta við þetta er að vakna inn í hjónabandið um- kringdur nánustu vinum og fjöl- skyldu,“ segir Friðrik, spenntur fyrir stóru stundinni. - ag Friðrik Weisshappel gengur í það heilaga: Giftir sig í Danmörku Hamingjusöm Friðrik og Tine ásamt dóttur sinni, Irmu, sem er að verða sex- tán mánaða. BLÓMLEG Í BLEIKU Eins og gefur að skilja vakti Paris Hilton eftirtekt þegar hún mætti í þessum bleika blómakjól í kokkteilboð við opnun Mardan Palace-hótelsins í Tyrklandi um síðustu helgi. augnablikið Selur nýjan heilsu- og vítamíndrykk „Bróðir minn fékk þvílíkan áhuga á þessu og er að selja þetta svo ég er svona að hjálpa honum,“ segir Ragnheiður Ragnarsdóttir sund- kona um nýjan heilsu- og vítamín- drykk sem kallast Jen Fe. „Þjálfar- arnir mínir byrjuðu á þessu og þegar ég sá hvað þeir voru hressir og orkumiklir ákvað ég að prófa. Ég borða ekki mikinn sykur, en núna lang- ar mig bara ekki í neitt sætt og er miklu hressari,“ segir Ragnheiður um drykkinn, en um síðustu helgi setti hún tvö ís- landsmet í 50 og 100 metra skrið- sundi og er þar með komin í 30. sæti í heiminum í 50 metra skrið- sundi. Eyða sumrinu á Íslandi Duncan McKnight, söngvari hljóm- sveitarinnar The Virgin Tongues, sem stórslasaðist eftir fall úr íbúð á Skólavörðustíg í byrjun maí er kominn úr lífshættu. Félagar hans í bandinu hafa ákveðið að eyða sumrinu á Íslandi við upptökur á meðan Duncan nær bata og eru mjög hrifnir af landi og þjóð. Þeir eru um þessar mundir að taka upp myndband við lag sitt Six Feet Underground. Eignaðist litla stelpu Sigrún Hrólfsdóttir, einn þriggja meðlima Gjörningaklúbbsins, átti dóttur í síðustu viku ásamt unn- usta sínum, Þorgeiri Guðmunds- syni tónlistarmanni og kvikmynda- gerðarmanni. Þetta er fyrsta barn þeirra og heilsast móður og barni vel. NÍNA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR LJÓSMYNDARI ég ætla að hitta vini á föstudagskvöldið og á laugardaginn ætla ég með soninn og kærastann á fjölskylduskemmtun hjá 365 sem er í fjölskyldugarðinum. Á sunnu- daginn er ég að vinna en þá er bæði fjölskyldumyndataka og óléttumyndataka. þetta verður yndisleg og skemmtileg helgi þar sem ég mun hitta fullt af fólki. helgin MÍN Ný „second hand“-verslun á Laugavegi: Notuð föt og nytjahlutir Ánægðar Helena Jónsdóttir mætti á opnunina ásamt dóttur sinni, Hrafntinnu Árnadóttur, og Moniku Magdalenu. Töff Svala Björgvins var meðal gesta við opnun Nostalgíu. Flottar Urður Hákon- ardóttir framkvæmda- stjóri og Gígja Ísis, versl- unarstjóri Nostalgíu, voru ánægðar með opnunina. þetta HELST
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.