Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.05.2009, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 29.05.2009, Qupperneq 4
4 29. maí 2009 FÖSTUDAGUR Ársreikningar – Rekstrarframtöl Bókhaldsþjónusta Getum enn bætt við okkur framtölum og fyrirtækjum í bókhaldsþjónustu. Lokadagur á skilum Rekstrarframtala er 31.maí nk, getum sótt um viðbótarfrest fyrir lögaðila. w w w. f a g b o k u n . i s S í ð u m ú l a 2 9 • R e y k j a v í k • 5 61 - 3 0 0 0 VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 23° 18° 11° 17° 20° 20° 20° 19° 18° 17° 23° 24° 22° 29° 20° 22° 28° 18° Á MORGUN 5-10 m/s 9 7 SUNNUDAGUR 3-8 m/s 9 14 14 16 15 9 13 10 12 11 11 13 8 8 10 10 10 13 9 13 15 6 13 15 9 9 11 12 10 9 HVÍTASUNNUHELGIN Fyrsta stóra ferðahelgin er fram undan. Ekki er hægt að segja að einhver einn staður verði áberandi bestur um helgina heilt yfi r. Samt má þó segja að Norð- austur- og Austur- landið verði hlýjast og þurrast þótt þar kunni reyndar að skúra á morgun og mánudag. Á vesturhluta landsins eru úrkomulíkur nokkrar. Hins vegar verður vindur hægur og það er aðalatriðið. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur Gunnhildur ekki Gun Hill Að sögn hjónanna Sigrúnar Aspelund, bæjarfulltrúa í Garðabæ, og Hrafnkels Helgasonar, fyrrverandi yfirlæknis á Vífilsstaðaspítala, er það ekki rétt sem kom fram í Fréttablaðinu í gær að fellið sunnan við Vífilsstaðavatn heiti Gunnhildur. Það heiti Vífilsstaðahlíð. Gunnhildur sé hins vegar heiti vörðu ofan á Vífilsstaðahlíð og að ekki sé rétt að sú nafngift sé tengd hernámi Breta sem sagðir eru hafa nefnt Vífilsstaða- hlíð Gun Hill vegna skotvirkis ofan á fellinu. Varðan hafi fengið Gunnhildar- nafnið löngu fyrir komu herliðs Breta. LEIÐRÉTTING UTANRÍKISMÁL Ráðherrafundur Evrópuráðsins um fjölmiðlun og nýmiðla hófst í Reykjavík í gær. Ráðherrar allra 47 aðildarríkja ráðsins eða fulltrúar þeirra sitja fundinn ásamt fulltrúum alþjóð- legra hagsmunasamtaka. Til umræðu er hvernig fjölmiðl- ar hafa breyst með tilkomu nýrra miðla á borð við blogg, samskipta- vefi og netveitur. Sérstaklega er litið til áhrifa nýmiðla á tjáningar- frelsi og persónuvernd. Á fundinum á að marka stefnu Evrópuráðsins á þessu sviði til næstu fimm ára, en slík stefnu- mörkun hefur reynst vera leið- beinandi fyrir lagasetningu í Evrópuríkjum og víðar. Fundinum lýkur í dag. - aa Ráðherrafundur Evrópuráðs: Stefna mörkuð í nýmiðlun KYNNTU DAGSKRÁNA Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Philippe Boillat af fastaskrifstofu Evrópuráðsins kynna dagskrá fundarins á Hótel Nordica í gær. FRÉTTAMBLAÐIÐ/STEFÁN VIÐSKIPTI Viðræður innlendra og erlendra kröfuhafa við stjórn- endur Existu um endurskipulagn- ingu félagsins héldu áfram í gær. Kröfuhafar höfðu hótað að gjaldfella lán félagsins gengju stjórn og stjórnendur félagsins ekki að skilmálum þeirra. Af því varð ekki en talið var líklegt að slíkt gæti gerst í vikunni. Þá lagði Exista lagði fram lög- bannskröfu til sýslumannsins í Reykjavík í vikubyrjun vegna þrettán milljarða króna milli- færslu úr Nýja Kaupþingi yfir í gamla Kaupþing. Krafan liggur enn óafgreidd, samkvæmt upp- lýsingum frá Existu. - jab Kröfuhafar funda með Existu: Engin lán hafa verið gjaldfelld MENNTAMÁL Borgaryfirvöld komu til móts við forsvarsmenn tónlistar- skóla í Reykjavík á fundi í gær með því að bjóða fram 50 milljóna króna viðbótarframlag fram til haustsins frá því sem áður stóð til. Tónlistarskólum var gert að skera niður á þessu ári vegna efna- hagsástandsins, en þegar tilkynnt var um 12 prósenta niðurskurðinn varð misskilningur þess valdandi að stjórnendur skólanna gerðu ekki ráð fyrir að niðurskurðurinn tæki gildi fyrr en næsta haust. Hann átti hins vegar að taka gildi þegar um áramót. Ekki var gert ráð fyrir því í áætlunum tónlistarskólanna, sem setti þá í mikinn rekstrarvanda. Deilan snerist um 73 milljón- ir sem bar í milli. Borgaryfirvöld hafa nú ákveðið að koma til móts við skólana með 50 milljóna króna framlagi. Enn þurfa skólarnir sem sagt að skera niður um 23 milljónir fram til haustsins. Kjartan Magnússon, formað- ur menntaráðs, segir andann á fundinum í gær hafa verið góðan. „Ég kom með hugmynd að lausn og það var tekið vel í hana,“ segir hann. Hann er bjartsýnn á að mál- inu sé þar með lokið í bili af hálfu borgaryfirvalda. „Þetta er skárra en það sem við stóðum frammi fyrir fyrir mán- uði,“ segir Sigurður Sævarsson, formaður Samtaka tónlistarskóla í Reykjavík. Hann býst við því að málinu ljúki með þessum hætti þótt það sé blóðugt fyrir tónlistarkenn- ara að þurfa að taka á sig þessa kjaraskerðingu. - sh Borgaryfirvöld koma til móts við tónlistarskóla með 50 milljóna framlagi: Deila um tónlistarskóla leyst KJARTAN MAGNÚSSON SIGURÐUR SÆVARSSON MANNRÉTTINDI Hætta er á að póli- tískt ofbeldi og kúgun ágerist og dafni í efnahagsþrengingunum sem nú ganga yfir heimsbyggð- ina. Niðursveiflan fjölgar bæði mannréttindabrotum og dregur frá þeim athyglina. Þetta er meðal þess sem fram kemur í árs- skýrslu mann- réttindasamtak- anna Amnesty International sem kynnt var í gær. Í skýrslunni er greint frá mannréttinda- brotum í 157 löndum og þá fylgir henni saman- tekt þar sem grein er gerð fyrir ástandi mannréttinda í öllum heimsálfum. Fullyrt er í skýrslunni að heim- urinn sitji á félagslegri, pólitískri og efnahagslegri tímasprengju með sæki orku sína til vaxandi mannréttindakreppu. „Það er ekki nóg að takast á við efnahagsástandið, það verður að takast á við mannréttindaástand- ið líka,“ sagði Jóhanna K. Eyjólfs- dóttir, framkvæmdastjóri Íslands- deildar Amnesty, á kynningarfundi um skýrsluna í gær. Ef ein kreppa er hunsuð og einblínt á aðra, verð- ur slíkt einungis til að magna þær báðar, segir í skýrslunni. Amnesty tekur dæmi af hálf- volgum viðbrögðum alþjóðasam- félagsins við mannréttindabrot- um í heiminum. Þannig sé til dæmis gríðarmiklum fjármunum eytt í baráttu gegn sjóræningjum undan ströndum Sómalíu en ekki til að stöðva flæði vopna inn í landið sem beitt er gegn óbreytt- um borgurum. Þá séu viðbrögð við hræðilegum fórnarkostnaði í mannslífum, meðal annars á Gasa, í Darfur í Súdan og á Srí Lanka, hneykslanleg. Amnesty fagnar ákvörðun Obama Bandaríkjaforseta um að loka Gvantanamo-fangabúðunum á Kúbu og hafna pyntingum, en sam- tökin hvetja hann jafnframt til að tryggja að þeir sem bera ábyrgð verði sóttir til saka. Vegna þess hversu mikilla breyt- inga er þörf hefur Amnesty ákveð- ið að hleypa af stokkunum nýrri herferð sem ber heitið „Krefjumst virðingar“ og beinist gegn þeim mannréttindabrotum sem búa að baki fátækt og auka hana. „Umræðan um fátækt hefur ekki snúist um virðingu, heldur ölmusu, og þessu viljum við breyta,“ segir Jóhanna. Fyrsta krafa samtakanna í her- ferðinni beinist að Bandaríkjun- um, sem ekki viðurkenna efna- hagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, og Kína, sem ekki viður- kennir borgaraleg og stjórnmála- leg réttindi. stigur@frettabladid.is heidur@frettabladid.is Efnahagsþrengingar ógna mannréttindum Mannréttindabrotum fjölgar í efnahagsþrengingunum og á sama tíma hljóta þau minni athygli. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Amnesty International. JÓHANNA. K EYJÓLFSDÓTTIR VIÐSKIPTI Lur Berri Iceland, einka- hlutafélag í eigu franska félags- ins Lur Berri Holding SAS, mun gera hluthöfum Alfesca tilboð um að kaupa hluti þeirra í félaginu. Þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu í gær. Tólf prósent hlut- hafa þegar samþykkt tilboðið. Ólafur Ólafsson, oft kenndur við Samskip, er einn stærsti eig- andi Alfesca. Í tilkynningunni segir að í gær hafi Lur Berri Holding, Kjalar, sem einnig er í eigu Ólafs, Sin- ger & Friedlander og nokkrir stjórnendur Alfesca gert með sér samninga um stjórn og rekstur Alfesca. - sh Íslenskt félag í eigu Frakka: Með yfirtöku- tilboð í Alfesca GVANTANAMO-FANGELSI Amnesty International fagnar þeirri ákvörðun Baracks Obama Bandaríkjaforseta að láta loka Gvantanamo-búðunum og hafna pyntingum. Í nýrri ársskýrslu Amnesty kemur fram að niðursveiflan í heiminum verði til þess að mannréttindabrotum fjölgi. NORDICPHOTOS/AFP VINNUMARKAÐUR Vinnumálastofn- un er nú í átaki til að tryggja að þeir sem skráðir eru á atvinnu- leysisbætur séu ekki jafnframt í vinnu. Líkt og Fréttablað- ið greindi frá uppgötvaðist að svo var ástatt um fimmtán til tuttugu starfs- menn undir- verktaka við Tónlistarhúsið. Gissur Pét- ursson, forstjóri Vinnumála- stofnunar, segir að bótaþegar séu kallaðir óforvarandis í við- tal. Þannig sé tryggt að þeir séu á landinu og virkir í atvinnu- leit. Slíkt er forsenda þess að fá atvinnuleysisbætur. Gissur segir um tvo milljarða eftir í Atvinnuleysistryggingasjóði og að óbreyttu dugi hann fram í október, nóvember. - kóp Vinnumálastofnun: Bótaþegar kallaðir í viðtal GISSUR PÉTURSSON GENGIÐ 29.05.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 213,7485 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 126,04 126,64 201,22 202,2 174,99 175,97 23,504 23,642 19,471 19,585 16,211 16,305 1,2989 1,3065 193,4 194,56 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.