Fréttablaðið - 29.05.2009, Page 10
29. maí 2009 FÖSTUDAGUR
Í tilefni
af opn
un vers
lunarin
nar bjó
ðum vi
ð
ókeyp
is næri
ngarrá
ðgjöf 1
6 –18 a
lla daga
í þessar
i viku. P
antaðu
tíma í
síma 53
3 6130
.
Þér er boðið...
Erum að selja lager-
inn frá Habitat á hreint
frábæru verði.
Ekki missa af þessu.
Erum í Klettagörðum 6
104 Reykjavík
Opið föstudag kl 12-18
Lokadagur
Hjúkrunarheimili,
Suðurlandsbraut 66
315 milljónir
Spöngin 43,
þjónustumiðstöð
50 milljónir
Kleifarsel 18
100 milljónir
Laugavegur 4-6
100 milljónir
Lækjargata 2 og
Austurstræti 22
500 milljónir
Norðlingaskóli
300 milljónir
Sæmundarskóli
400 milljónir
Leik- og grunnskóli
Úlfarsbraut 118-120
100 milljónir
Grandaborg leikskóli,
viðbygging og breytingar
55 milljónir
Tjarnarbíó,
endurgerð
175 milljónir
Austurberg,
félagshús Leiknis
45 milljónir
Gervigrasvöllur
Víkings
75 milljónir
Þróttur Laugardal,
endurnýjun grasvallar
60 milljónir
Hlíðarfótur, tenging frá
Háskóla við Hringbraut
410 milljónir
Háskólinn í Reykjavík,
gatnaframkvæmdir
300 milljónir
Flugvallarvegur,
breikkun
45 milljónir
REYKJAVÍKURBORG „Við þessar
aðstæður teljum við að þetta séu
mjög góð kjör,“ segir Óskar Bergs-
son, formaður borgarráðs, um
væntanlega fimm milljarða króna
lántöku Reykjavíkurborgar hjá líf-
eyrissjóðum. Um er að ræða verð-
tryggð skuldabréf með 4,4 prósenta
vöxtum til 45 ára.
Lánsféð er ætlað til ýmissa fram-
kvæmda í borginni og var ráð fyrir
því gert í fjárhagsáætlun þessa árs.
Óskar segir að auk þess sem láns-
kjörin séu hagstæð fái borgin fram-
kvæmdirnar sjálfar á lægra verði
en áður hafi verið.
„Þetta er mjög mikilvægt. Það
verða til 650 störf auk þess sem
um 350 störf eru vegna viðhalds-
verkefna sem við fjármögnum
með öðrum hætti. Því má segja að
Reykjavíkurborg sé að leggja eitt
þúsund störf í púkkið, fyrir utan
sumarstörf og vinnuskóla.“
Meðal stórra framkvæmda nefnir
Óskar uppbyggingu Sæunnarskóla
og Norðlingaskóla í Grafarholti. Í
þá fara annars vegar 400 milljónir
króna og hins vegar 300 milljón-
ir. Þá fara 100 milljónir í leikskóla
í Úlfarsárdal sem ákveðið hefur
verið að þjóni einnig sem grunn-
skóli. „Fólk í Úlfarsárdal hefur haft
áhyggjur af að ekki eigi að fara í
neina þjónustuuppbyggingu þar,“
segir Óskar.
Af öðrum stórum verkefnum má
nefna að 500 milljónir fara í upp-
byggingu á reitnum við Lækjartorg
þar sem hús eyðilöguðust í eldsvoða
í apríl 2007. Hundrað milljónir fara
í að standsetja húsin á Laugavegi
4 og 6. Í endurbætur á Tjarnarbíói
fara 175 milljónir.
Þá má nefna að 315 milljónir
verða notaðar í framkvæmdir við
110 rýma hjúkrunarheimili á Suð-
urlandsbraut 66 og 100 milljónir
í skólasel í Kleifarseli 18. Í gervi-
grasvöll Víkinga í Stjörnugróf fara
75 milljónir, 60 milljónir í endurnýj-
un grasvallar hjá Þrótti í Laugardal
og 45 milljónir í félagshús Leiknis í
Breiðholti. gar@frettabladid.is
Þúsund störf í púkkið
Reykjavíkurborg tekur fimm milljarða lán hjá lífeyrissjóðum til ýmissa fram-
kvæmda. Formaður borgarráðs segir lánið á góðum kjörum miðað við aðstæður.
FRAMKVÆMDIR Í REYKJAVÍK 2009
Gatnaframkvæmdir
Verkefni milljónir króna
Þjóðvegir 570
Nýbyggingarhverfi 794
Endurnýjun í miðborg 110
Umhverfi og aðgengi 269
Umferðaröryggi 13
Ýmsar gatnaframkvæmdir 411
Samtals 2.167
Byggingarframkvæmdir
Verkefni milljónir króna
Menntasvið 1.318
Leikskólasvið 218
Menningar- og ferðasvið 176
Íþrótta- og tómstundasvið 290
Velferðarsvið 356
Ýmsar fasteignir 150
Laugavegur 4-6 100
Brunareitur Lækjartorg 500
Hugbúnaður 60
Endurbætur og viðhald 300
Samtals 3.468
Alls stofnframkvæmdir 5.536
FRAMKVÆMDIR Í REYKJAVÍK
Alls á að verja rúmum 5,6
milljörðum króna í marg-
víslegar stofnframkvæmdir í
Reykjavík á þessu ári.
FÉLAGSMÁL Átak til styrktar hvíldarheimili Styrktar-
félags krabbameinssjúkra barna hófst í gær.
Nefnist það Á allra vörum og byggir á sölu á
varaglossum.
Að því er kemur fram í tilkynningu greinast
árlega að meðaltali tíu til tólf börn undir átján ára
með krabbamein. „Mikil þörf er á hvíldarheimili
fyrir fjölskyldur krabbameinssjúkra barna,“ segir
í tilkynningu forsvarskvenna átaksins.
Tónlistarmaðurinn Magnús Eiríksson
gefur átakinu lagið Von af nýjum geisladiski
Mannakorna. „Segir textinn allt sem segja þarf,
því vonin er oft það eina sem fólk á sem berst
við erfið veikindi eins og krabbamein,“ segir um
framlag Magnúsar.
Varaglossin verða seld um borð í vélum Iceland
Express í júní og júlí og til 14. júní í Hagkaupum,
Lyfjum og heilsu, Hygea og öðrum söluaðilum Dior.
Umboðsali snyrtivöruframleiðandans hér á landi,
Heildverslun Halldórs Jónssonar, er einmitt aðal-
styrktaraðili átaksins ásamt Iceland Express. - gar
Magnús Eiríksson gefur lag og varagloss seld í átaki fyrir krabbameinssjúk börn:
Mikil þörf fyrir hvíldarheimili
ÁTAK HAFIÐ Vel var mætt við upphaf átaksins Á allra vörum í
Barnaspítala hringsins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM