Fréttablaðið - 29.05.2009, Side 18
18 29. maí 2009 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
NOEL GALLAGHER
ER 42 ÁRA Í DAG.
„Ég ber hvert einasta lag
sem ég sem saman við lög
Bítlanna. Málið er að þeir
voru bara á undan mér. Ef
ég hefði fæðst á sama tíma
og John Lennon þá væri
það ég sem væri þarna
uppi.“
Noel Gallagher er gítarleik-
ari hljómsveitarinnar Oasis.
Hljómsveitin varð heimsfræg
árið 1994 með sinni fyrstu
plötu, Definitely Maybe.
MERKISATBURÐIR
1935 Lokið er við byggingu
Hoover-stíflunnar.
1947 Farþegaflugvél frá Flug-
félagi Íslands á leið frá
Reykjavík til Akureyrar
rekst á Hestfjall við
Héðinsfjörð og farast 25
manns.
1971 Minnisvarði um Bjarna
Benediktsson forsætis-
ráðherra, konu hans og
dótturson er afhjúpaður á
Þingvöllum þar sem þau
fórust í eldsvoða 10. júlí
1970.
1973 Tom Bradley er kosinn
fysti þeldökki borgarstjóri
Los Angeles.
1999 Hin sænska Charlotte
Perrelli vinnur Eurovision-
söngvakeppnina sem
haldin er í Ísrael. Selma
Björnsdóttir frá Íslandi er í
öðru sæti.
Þennan dag árið 1953
náðu þeir Edmund Hillary
og Tenzing Norgay á tind
Everest fyrstir manna.
Hillary var nýsjálenskur
fjallamaður og landkönn-
uður sem ekki einungis
afrekaði að ganga á Ever-
est heldur líka á Suður-
pólinn fimm árum síðar.
Norgay var nepalskur leið-
sögumaður hans sem tók
í heildina þátt í sjö ferð-
um á Everest.
Þetta var níundi breski
leiðangurinn á tindinn og tóku 400 manns þátt
í honum. Getgátur hafa verið uppi um hvort
Bretarnir George Mallory og Andrew Irvine hafi
komist á tindinn 24 árum áður, en þeir týnd-
ust báðir á fjallinu. Lík
George fannst árið 1997
í 8.530 metra hæð og
benda ýmsar vísbending-
ar til þess að hann hafi
verið á niðurleið, en tind-
ur Everest er 8.850 metra
yfir sjávarmáli.
Fyrstu Íslendingarnir
til að klífa Everest voru
þeir Björn Ólafsson, Einar
Stefánsson og Hallgrím-
ur Magnússon sem kom-
ust á tindinn hinn 21.
maí árið 1997. Hinn 16.
maí árið 2002 fetaði Haraldur Örn Ólafsson síðan í
fótspor þeirra en það var lokahluti leiðangurs hans
sem fólst í því að komast á norður- og suðurheim-
skautin og hæstu tinda allra heimsálfa.
ÞETTA GERÐIST: 29. MAÍ ÁRIÐ 1953
Fyrstu mennirnir ná á tind Everest
Nýtt hús líknar- og vinafélagsins
Bergmáls verður vígt á Sólheimum
í Grímsnesi á morgun en það verður
notað fyrir hvíldarvikur sem Bergmál
býður krabbameinssjúkum og öðrum
langveikum upp á.
Félagar í Bergmáli gefa alla sína
vinnu og hvetja aðra til að gera slíkt
hið sama. Húsið, sem er tæpir sex
hundruð fermetrar, var reist með guðs
og góðra manna hjálp,“ segir formað-
urinn, Kolbrún Karlsdóttir. „Við feng-
um mikið af byggingarefninu gefins
og hér unnu 32 sjálfboðaliðar baki
brotnu í fyrrasumar. Í heildina hafa
mörg hundruð manns komið að bygg-
ingunni á einn eða annan hátt og er
morgundagurinn því hátíðardagur í
okkar huga,“ segir Kolbrún, sem hefur
ásamt öðrum náð að safna fé og sjálf-
boðaliðum til verksins.
Bergmál, sem var stofnað árið
1994, var í fyrstu sönghópur gam-
alla skólafélaga frá Hlíðardalsskóla
í Ölfusi. „Við erum kórinn sem varð
líknarfélag,“ segir Kolbrún og hlær en
einn aðalhvatamaður að stofnun hans
var Ólafur Ólafsson söngvari. Þegar
Ólafur veiktist af krabbameini og lá
banaleguna ritaði hann meðal annars
í dagbók sína: „Ég vildi óska þess að
til væri staður uppi í sveit, þar sem
langveikt fólk gæti átt athvarf.“ Þessi
orð urðu kórfélögum hvatning og var
fyrsta orlofsvikan haldin í Hlíðardals-
skóla árið 1995.
„Síðustu tíu ár höfum við svo leigt
gistiheimilin Brekkukot og Veghús á
Sólheimum í Grímsnesi undir starf-
semina og boðið upp á tvær orlofs-
vikur á ári. Við höfum getað tekið á
móti rúmlega fjörutíu manns í hvert
skipti eða hátt í níutíu manns á ári.“
Dvöl gesta er þeim að kostnaðarlausu
og gefa hjúkrunarfólk, matreiðslu-
menn, umönnunaraðilar og aðrir sem
að vikunum koma vinnu sína. „Hér er
dásamlegt umhverfi sem gestir njóta
auk þess sem landsþekktir skemmti-
kraftar koma og gefa af hæfileikum
sínum og frítíma,“ segir Kolbrún.
En hvernig kom það til að ráðist var
í húsbygginguna? „Upphaflega ætluð-
um við eignast upphitaða húsgagna-
geymslu. Við gengum á fund stjórn-
enda á Sólheimum, sem hafa ávallt
hlúð einstaklega vel að okkur, en var
tjáð að búið væri að skipuleggja allt
Sólheimasvæðið og það eina sem við
gætum fengið væri lóð undir sumar-
bústað. Við slógum til og ætluðum upp-
haflega að nýta hann sem samastað
fyrir starfsfólk. Síðan tók hann nokkra
vaxtarkippi og endaði í 560 fermetrum
með 28 rúmum og sérhannaðri aðstöðu
fyrir fatlaða. Fyrir vikið er hægt að
fjölga orlofsvikum sem var orðið löngu
tímabært.“
Kolbrún er að vonum í skýjunum með
húsið. „Ég er svo stolt af því að búa í
landi þar sem er til svona gott fólk
og finnst dásamlegt að það skuli vera
hægt að sameina svona margar hend-
ur til góðra verka. Við ætlum því að
halda upp á þetta með, mér liggur við að
segja, lúðrasveit og söng og byrjum á at-
höfn í Sólheimakirkju. Þá verður geng-
ið að nýja húsinu og það vígt og síðan
verða veitingar og dagskrá í Sesselju-
húsi. Á sunnudag verður svo opið hús
milli 14 og 16 og þá eru allir hjartanlega
velkomnir.“ vera@frettabladid.is
LÍKNAR- OG VINAFÉLAGIÐ BERGMÁL: TEKUR Í NOTKUN HÚS FYRIR LANGVEIKA
FJÖLMARGIR HAFA LAGST Á EITT
HRÆRÐ Kolbrún Karlsdóttir er uppnumin yfir
því að það skuli vera hægt að sameina svona
margar hendur til góðra verka.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
AFREK Í húsinu, sem var reist með hjálp styrktaraðila og sjálfboðaliða, verður boðið upp á hvíldarvikur fyrir langveika. MYND/Birgir Thomsen
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
Kristíana Hólmgeirsdóttir
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
2. júní kl. 13.30.
Valgerður E. Valdemarsdóttir Baldur Guðvinsson
Þórhildur S. Valdemarsdóttir Þorsteinn Þorsteinsson
Hólmgeir Valdemarsson Birna S. Björnsdóttir
Baldvin Valdemarsson Vilborg E. Sveinbjörnsdóttir
Sigrún B. Valdemarsdóttir Ingólfur Ingólfsson
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Haraldur Brynjólfsson
frá Króki, Norðurárdal, Kirkjusandi 3,
Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti aðfaranótt 26. maí.
Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 2. júní
kl. 13.00.
Sigurbjörg Sigurðardóttir
Brynjólfur Haraldssson Jóhanna Birgisdóttir
Guðrún J. Haraldsdóttir Þorkell D. Jónsson
Arndís Haraldsdóttir Ingþór K. Sveinsson
Ingibjörg E. Ingimundardóttir Kristján V. Kristinsson
Sigurður S. Ingólfsson Kristín S. Steingrímsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir minn og sonur,
Árni Ragnar Árnason
Þrastargötu 8, Reykjavík,
sem lést af slysförum þann 21. maí, verður jarð-
sunginn frá Neskirkju 2. júní kl. 13. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast
hans er bent á reikning í banka 0115, höfuðbók 14,
reikningsnúmer 750663, kt. 250797-2579.
Elmar Freyr Árnason
Ingigerður R. Árnadóttir.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Ragnhildur E. Levy
ljósmóðir, frá Katadal,
verður jarðsungin frá Hvammstangakirkju laugardag-
inn 30. maí kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á
Hvammstanga.
Ögn Levy Guðmundsdóttir
Benedikt Jóhannsson
Sigurður Ingi Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Magnúsar Finnbogasonar
frá Lágafelli, Gilsbakka 2, Hvolsvelli.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilisins
Kirkjuhvols fyrir góða umönnun.
Auður Hermannsdóttir
Vilborg Magnúsdóttir Gunnar Hermannsson
Finnbogi Magnússon Þórey Pálsdóttir
Ragnhildur Magnúsdóttir Guðmundur Erlendsson
og barnabörn.
AFMÆLI
MELISSA
ETHERIDGE
TÓNLISTAR-
KONA ER 48
ÁRA.
RUPERT
EVERETT
LEIKARI ER
FIMMTUGUR.
ANNETTE
BENING
LEIKKONA ER
51 ÁRS.
MARGRÉT
FRÍMANNS-
DÓTTIR,
FORSTÖÐU-
MAÐUR FANG-
ELSISINS Á
LITLA-HRAUNI,
ER 55 ÁRA.