Fréttablaðið - 29.05.2009, Side 22

Fréttablaðið - 29.05.2009, Side 22
 29. MAÍ 2009 FÖSTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● garðurinn Garður Sonju Ásbjörnsdóttur hárskera ber þess vel merki að fingur hennar eru ekki bara liprir í hári heldur líka grænir. „Það voru fjórar aspir í garðinum þegar við tókum við honum fyrir þrettán árum,“ segir Sonja, sem hefur eytt drjúgum tíma í garð- inum síðan og sér ekki eftir mín- útu. „Ég myndi helst vilja eiga þrjá garða. Mér finnst ég aldrei eyða nógu miklum tíma úti í garði og mér leiðist þegar ekkert er að gera þar. Það er fínt ef veðrið er vont, þá vinn ég oft skítverkin en fæ mér frekar pásu þegar veðrið er gott.“ Sonja lýsir garðinum sínum sjálf sem villtum og óskipulögð- um. Þar ægir saman hinum ýmsu tegundum plantna, grjóti og göml- um gersemum. „Ég hef alltaf haft gaman af því að safna blómum og alls kyns dóti. Ég er með mikið af fjölærum plöntum í garðinum hjá mér. Það er rosalega vindasamt hérna og ég er í stöðugri baráttu við austanáttina. Þess vegna er mikilvægt að velja plöntur sem eru harðgerar. Nú bíð ég spennt eftir því sem ég setti niður í fyrra.“ - hhs Í garðinum er margt að finna. Í þessu forláta fuglabúri býr blóm en ekki fugl. Þessa kúlu, sem nú gegnir hlutverki blómakers, fann faðir Sonju í fjöru. Graslaukurinn blómstrar svo fallega og ekki er verra hvað hann er góður í mat. Eiginmaður Sonju ber grjót í garðinn svo hún geti búið til úr þeim andlit. Eins og sjá má eyðir Sonja Ásbjörnsdóttir drjúgum tíma í garðinum en þar úir og grúir af forvitnilegum hlutum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLIFaðir Sonju, Ásbjörn Þórarinsson, smíðaði þetta fallega fuglahús. Sonja Ásbjörnsdóttir, sonur hennar Eyþór Arnar og labradorhundurinn Megas. Villtur og óskipulagður

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.