Fréttablaðið - 29.05.2009, Qupperneq 24
29. maí 2009 FÖSTUDAGUR2
„Leikritið fjallar um tvo krakka,
þau Erp og Helgu Soffíu, sem þekkj-
ast ekki og lenda saman í herbergi
um stund. Þau þurfa að finna út úr
því hvernig þeim tekst að líka við
hvort annað,“ segir Kolbrún Anna
Björnsdóttir, leikstjóri og danshöf-
undur leiksýningarinnar Út í kött,
sem frumsýnt var í Gerðubergi í
vikunni.
„Strákurinn vill fá að vera í friði
en stelpan er ólm í að segja honum
sögur og ævintýri. Henni tekst að
lokum að snúa algerlega upp á til-
veru hans og sannfæra hann um
að ævintýri séu skemmtileg,“ segir
Kolbrún Anna en í sýningunni er
staðalímyndunum gefið langt nef
og hláturinn notaður til að opna
augu áhorfenda fyrir því að heim-
urinn er ekki eins svart-hvítur og
hann sýnist.
„Helga Soffía snýr upp á sögurn-
ar þannig að kvenpersónurnar eru
ekki jafn miklir aumingjar og í upp-
runalegu ævintýrunum,“ útskýrir
Kolbrún Anna en á sýningunni er
fléttað saman þremur ævintýrum,
Rauðhettu, Öskubusku og Grísunum
þremur. „Rauðhetta er sko enginn
ráðvilltur sakleysingi heldur bjarg-
ar sér bara sjálf,“ segir Kolbrún
Anna glaðlega.
Leikgerðin og tónlistin er unnin af
Benóný Ægissyni en dans og söng-
ur spilar stóran þátt í sýningunni.
Leikararnir eru fimm, þau Kolbrún
Anna Björnsdóttir, Guðmundur
Elías Knudsen, Ragnheiður Árna-
dóttir, Fannar Guðni Guðmundsson
og Sóley Anna Benónýsdóttir.
Skólar geta fengið leikhópinn til
sín og fengið þá fræðsluefni með
sem Kolbrún Anna hefur unnið ann-
ars vegar um Grimms-ævintýri og
hins vegar um kynhlutverk.
Út í kött verður sýnt í Gerðubergi
á morgun klukkan 14. Einnig verða
þrjár sýningar í Hafnarfjarðarleik-
húsinu 6. og 7. júní. Nánari upp-
lýsingar um leikritið og sýningar
má finna á vefsíðunni www.this.is/
great/utikott.html.
solveig@frettabladid.is
Úr sér gengnum staðal-
ímyndum gefið langt nef
Lýðveldisleikhúsið hefur sett upp ævintýraleikinn Út í kött. Í leikritinu eru fléttuð saman nokkur Grimms-
ævintýri með dansi og söng, en með sanni má segja að þar er Rauðhetta enginn ráðvilltur sakleysingi.
Litríkir og glaðlegir búningar gefa leikritinu Út í kött ævintýralegan blæ. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HÁSKÓLAKÓRINN og hátíðarkór frá Hálogalandi í Noregi halda
sameiginlega tónleika í Reykholtskirkju 1. júní klukkan 17. Á dagskrá er blanda
af íslenskri og norskri tónlist en efnisskrá Háskólakórsins nefnist Hrafnamál
enda kemur krummi víða við sögu í lögunum.
Árbæjarsafn er opið frá 10 til 17 yfir sumartímann. Árbæjarsafn er útisafn og auk
Árbæjar eru þar yfir 20 hús, sem mynda torg, þorp og sveit. Flest húsin hafa verið
flutt úr miðbæ Reykjavíkur. Í safninu er boðið upp á
fjölda sýninga og viðburða þar sem einstökum þáttum
í sögu Reykjavíkur eru gerð skil.
www.arbaejarsafn.is