Fréttablaðið - 29.05.2009, Qupperneq 29
29. maí föstudagur 5
U Í ATLANTA
ótrúlega fjarstæðukennt,“ segir
Harpa sem seldi meirihlutann af
búslóð sinni þegar hún kom til
Íslands og flutti til Atlanta fyrir
hálfu ári. „Þetta var erfið ákvörð-
un að taka, en ég er mjög sátt. Það
hafði líka áhrif að það eru um tíu
íslenskar fjölskyldur þarna sem
standa mjög vel saman svo það er
mikið öryggi og stuðningur í því.
Það er bráðnauðsynlegt að kom-
ast í burtu öðru hverju því það er
stundum eins og Ísland sé svona
köngulóarvefur sem maður fest-
ist í og maður nær einhvern veg-
inn ekki að komast áfram, maður
er bara þessi ákveðna manneskja
sem allir eru búnir að mynda sér
skoðun á að sé svona og hinsegin
þótt inni í sér sé maður einhvers
staðar allt annars staðar. En ég
elska Ísland og alla yndislegu vini
mína og fjölskyldu sem ég sakna
hræðilega mikið, en stundum þarf
maður að fara burt til að átta sig á
hvað maður hefur það í rauninni
helvíti gott hérna. Þá er maður
rólegri í hjartanu þegar maður
kemur aftur,“ segir hún og brosir.
SUÐURRÍKJASTEMNING
Hörpu segist líka vel við nýju
heimkynnin og er búin að koma
sér vel fyrir. „Ég fann yndislegt
hús í Atlanta, með risagarði og er
búin að kaupa ruggustól á verönd-
ina. Það er mjög notalegt að sitja
þar á kvöldin með rauðvínsglas og
hlusta á sönginn í engisprettun-
um, ekta Suðurríkjastemning. Ég
kom til Íslands núna til að sækja
börnin, en ég vildi að þau kláruðu
skólann hér heima fram á vor.
Nú eru þau orðin mjög spennt að
flytja.“ segir Harpa um dóttur sína,
Hrafnhildi Sunnu, sem er níu ára
og son sinn, Aron Örn, ellefu ára.
Aðspurð segist Harpa ekki vera
í föstu sambandi en hún var með
Oddi Hrafni Björgvinssyni söngv-
ara í tvö ár, sem er betur þekkt-
ur sem Krummi í Mínus. „Við
vorum hætt saman áður en ég
fór, en vorum samt alltaf saman
og eigum rosalega sérstök og
sterk tengsl sem rofna aldrei. Ég
var alveg að spá hvort ég ætti að
taka hann með út, en hann er að
gera svo mikið hér í tónlistinni og
er á kafi í hinum ýmsu verkefn-
um svo það fór ekki svo,“ segir
hún og brosir, „en vonandi kemur
hann bráðum í heimsókn. Ég skora
á hann hér og nú!“
ALLAR DYR OPNAR
Spurð um framtíðaráform segir
Harpa allar dyr opnar. „Ég verð nú
að öllum líkindum áfram hjá CCP
næstu árin, það er, held ég, ekki
hægt að finna betri atvinnuveit-
endur, það er endalaust dekrað
við okkur, en það er best að halda
dyrunum opnum og sjá hvað lífið
færir manni,“ segir hún. Þegar
ég kem aftur til Atlanta ætla ég
að byrja á að breyta bílskúrnum
mínum í góða vinnustofu og byrja
aftur að mála í mínum frítíma, það
er eitthvað sem ég hef ekki fundið
tíma til að gera hér heima þar sem
maður er alltaf á haus, ég stefni
svo á að halda myndlistarsýningu í
New York í haust,“ útskýrir hún.
„Ég gæti alveg hugsað mér að
búa í New York einhvern tíma eða
Kaliforníu, en ég held að það sé
mjög gott að vera með fasta bú-
setu hérna á Íslandi. Annars held
ég að það sé alveg sama hvar
maður er, ef maður er að skapa
eitthvað einlægt frá hjartanu sem
vekur athygli held ég að heimur-
inn opnist fyrir manni.“
r þeir buðu mér út til að kanna aðstæður fékk ég
ma sem sagði: „Nú er þetta búið, bankarnir eru
sinn,“ en þá var ég á fimm stjörnu hóteli með
annig að þetta hljómaði ótrúlega fjarstæðukennt
Fæst í apótekum og Fríhöfninni - www.celsus.is
Virkar strax!
Engin fituáferð
allt að 6 klukkutíma sólvörn UVA-UVB
Njótið öryggis í sólinni
* Staðfest af Inveresk Recearch Inst.
(criver.com) sem er óhlutdræg og
ein virtasta rannsóknarstofa heims. [ ]
Þolir sjó, sund, þurrkun með handklæði, sand og leik*
Rennur ekki af með svita eða vatni, engir hvítir taumar
Húðin verður mjúk og fallega brún
Verndar húðina gegn ertandi efnum* og öldrun húðar
Fyrir viðkvæma húð og sólarexem
Fyrir börn og fullorðna
Inniheldur ekki Zink oxide eða Titanium dioxide
P R O D E R M
technology®
operated by v8 ehf
REYKJAVÍK STORE, LAUGAVEGUR 86-94, S: 511-2007
Flottust !
opið föstudag 11-18,
laugardag 11-17.
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið