Fréttablaðið - 29.05.2009, Síða 44
24 29. maí 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Skipholti 50b • 105 Reykjavík
„Þetta var alveg meiri háttar, ekkert smá flott,“
segir sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal um
stemninguna í Róm þegar Barcelona vann lið hans,
Manchester United, í úrslitaleik Meistaradeildar-
innar. „Þetta var algjör draumur fyrir utan úrslitin
en það er gaman að hann vann,“ segir hann um vin
sinn Eið Smára Guðjohnsen, leikmann Barcelona.
Auðunn er að vonum ósáttur við frammistöðu
sinna manna, enda léku þeir langt undir getu. „Þeir
voru ekkert smá lélegir. Þeir áttu aldrei möguleika
nema fyrstu tíu mínúturnar. Þetta var svekkjandi
en strax skárra en ef þeir hefðu tapað fyrir Chelsea
eða einhverju öðru liði. Þetta slapp,“ segir hann.
Auðunn segist hafa kastað kveðju á Eið Smára
eftir leikinn en annars haft við hann lítil samskipti.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins
þróuðust atvik mála aftur á móti þannig að Auðunn
steig upp í rútu Barcelona-liðsins eftir leikinn þar
sem hann fagnaði sigrinum vel og innilega ásamt
Eiði og hinum leikmönnum liðsins. Héldu fagnaðar-
lætin síðan áfram langt fram eftir kvöldi.
Auðunn vildi ekki staðfesta þetta, enda harður
United-maður, og ekki fylgdi heldur sögunni hvort
hann hefði verið í United-treyju innanundir í öllum
fagnaðarlátunum. Áður hafði hann lýst því yfir í
viðtali við Fréttablaðið að leikurinn væri nokkurs
konar „win-win“ fyrir sig því að ef United tapaði
myndi vinur hans Eiður fá medalíu. - fb
Fagnaði með stjörnum Barca
Hljómsveitirnar Buff og Á móti sól ætla
að taka upp lag saman á leið sinni til
Akureyrar, þar sem þær spila í Sjall-
anum á sunnudagskvöld. Gamalt lag úr
fórum Jóhanns Helgasonar frá Change-
tímabilinu, Mamma gefðu mér grá-
sleppu, varð fyrir valinu.
„Okkur langaði alltaf að taka upp lag
saman en höfum alltaf haft voðalega lít-
inn tíma til að koma báðum sveitunum í
stúdíó á sama tíma. En núna ætlum við
að taka tölvu með og míkrafón og stilla
upp í hljómsveitarrútunni og taka upp á
meðan það verður keyrt til Akureyrar,“
segir Hannes Friðbjarnarson, trommari
í Buffinu. Magni, söngvari Á móti sól,
býr reyndar á Akureyri og mun hann
því syngja sinn hluta um leið og rútan
kemur í bæinn. Gangi allt að óskum
verður lagið komið í útvarpsspilun í
næstu viku. Að sögn Hannesar hefur
lengi verið vinskapur með Buffinu og Á
móti sól, enda ætla hljómsveitirnar að
taka nokkur böll í sumar í sameiningu.
Þess má geta að Buffið gerði á dög-
unum veðmál við sjónvarpsmanninn
Auðun Blöndal um að hann fengi að taka
upp lag með hljómsveitinni ef lið hans,
Manchester United, ynni Meistara-
deildina í fótbolta. Svo varð ekki
því Barcelona, uppáhaldslið
Hannesar, vann leikinn örugg-
lega. „Djöfull var ég feginn,“
segir Hannes. „Ég hef heyrt
hann syngja og það er ekki fal-
legt. Framtíð Buffsins er björt í
dag, þökk sé Barcelona.“ - fb
Taka upp lag á rútuferðalagi
AUÐUNN OG MESSI Frá fundi Auðuns og Lionels Messi,
leikmanns Barcelona, í fyrra. Auðunn fagnaði með Messi og
félögum eftir sigurinn í Meistaradeildinni.
HANNES FRIÐBJARNARSON Buff ætlar að
taka upp lag með Á móti sól.
Raunveruleikagjörningi Curvers
Thoroddsen í Bjargtangavita við
Látrabjarg lýkur á sunnudag. Þar
rekur hann pitsustaðinn Slice-
land sem býður upp á lundapitsur
sem eru um leið „vestustu“ pitsur í
Evrópu því Látrabjarg er vestasti
oddi heimsálfunnar. Gjörningur-
inn er hluti af sýningunni Brennið
þið, vitar! á Listahátíð í Reykjavík.
„Þetta hefur gengið rosalega vel.
Mikið af ferðamönnum og heima-
fólki hafa komið til að prófa þess-
ar ljúffengu lundapitsur,“ segir
Curver. „Það kom mér á óvart
hvað það eru margir ferðamenn
þarna. Það vilja allir smakka
„vestustu“ pitsu í Evrópu.“
Allir vilja þá
„vestustu“
Fyrsta skemmtikvöld REYK-
VEEK, sem er hópur raftónlistar-
manna og plötusnúða, verður hald-
ið á Nasa á laugardagskvöld. Á
meðal þeirra sem koma fram eru
Karíus og Baktus, Oculus og Siggi
Kalli. Í tilefni kvöldsins hefur
verið gerður mix-diskur og verður
hann gefinn þeim fyrstu 300 sem
kaupa sig inn. „Mig langaði að gera
mix-disk með þessum strákum,“
segir Siggi Kalli, eða Sigurður
Karl Guðgeirsson. „Við ákváðum
að hittast og þá fóru hugmyndirnar
að fljúga,“ segir hann. „Í raun
er þetta hugsað sem miðill fyrir
strákana sem eru heima í skúma-
skotum að semja tónlist.“
Sameinast í
danstónlist
CURVER Curver Thoroddsen býður upp
á „vestustu“ pitsur í Evrópu í Bjargtanga-
vita.
Skattaaðgerðir ríkisstjórn-
arinnar hvað varða auknar
álögur á verð áfengis
leggjast ekki vel í veitinga-
menn sem segja algerlega
fyrirliggjandi að aðgerðirn-
ar muni ekki skila krónu í
kassann en auki þess í stað
smygl og landaframleiðslu
til muna.
„Látið Bé-in þrjú í friði,“ segir
Kormákur Geirharðsson veitinga-
maður. „Bjór, bensín og brauð.“
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að ríkisstjórnin stefndi að
því að brúa bilið á fyrirsjáanleg-
um halla á ríkissjóði meðal ann-
ars með því að hækka skatta á
áfengi og eldsneyti. Samkvæmt
þingsályktunartillögu á að hækka
álögur á áfengi um fimmtán pró-
sent. Kormákur segir hugmynda-
leysið algert og það sem verst er:
Þetta mun ekki færa ríkissjóði
krónu í kassann ef kenningar Kor-
máks ganga eftir. En þær kenning-
ar eru ekki úr lausu lofti gripnar.
„Heimabruggun færist í auk-
ana, krakkar fara að drekka landa
og hundruð manna fara á atvinnu-
leysisskrá. Þeir fá ekkert í kass-
ann. En þetta virðist standa á ein-
hverju blaði, memó-i, hjá þeim.
Ef við stöndum illa þá skal gera:
a) Hækka skatta á áfengi. b)
Hækka skatta á bensín og senni-
lega er C-ið þarna einhvers stað-
ar líka: c) Hækkum brauðið,“ segir
Kormákur og bendir á að Íslend-
ingar mættu einu sinni til tilbreyt-
ingar læra af reynslu annarra
þjóða sem hafa árhundraða reynslu
í að hrófla ekki við Bé-unum þrem-
ur. „Til dæmis í Þýskalandi. Þar
snerta menn ekki við Bé-unum, né
í Rússlandi eða á Spáni. Reynsla
þeirra er sú að hátt áfengisverð
lagar nákvæmlega ekkert. Við veit-
ingamenn bjuggumst svo sem við
þessu. En þetta þýðir einfaldlega
að heimabrugg færist mjög í auk-
ana, fólk fer í fyrstu frekar í ríkið
en barina og þá fær ríkiskassinn
hlutfallslega miklu minni vask af
þessari vöru. Þeir koma út í mínus.
Þeir geta aldrei búið til plústölu
úr þessu,“ segir Kormákur – ekki
séns. Og Kormákur veltir því
fyrir sér hvort annarlegar hvat-
ir búi að baki þessari ákvörðun
sem hann segir heimskuna holdi
klædda. „Hvort hagfræðingurinn
þeirra hafi farið í meðferð fyrir tíu
árum? Maður spyr sig því þetta er
ekki lógískt.“
Kormákur telur að nú hlakki
í landaframleiðendum við þessa
ákvörðun og telur augljóslega
verið að glæpavæða þjóðfélagið.
Og annar veitingamaður sem hefur
verið lengi í bransanum og man
tímana tvenna heitir Ásgeir Þór
Davíðsson – Geiri á Goldfinger.
Hann telur það ekki fráleitt. „Ég
get nú sagt þér það að ég hef verið
í þessum frá því árið 1982. Og allt-
af í kreppu þá eykst sala á vínveit-
ingastöðum í fyrstu. Svo dettur hún
niður og eykst í ÁTVR. Svo þegar
líður lengra eykst þessi svakalega
landasala og smygl. Svona hefur
það alltaf verið í kreppu og þessar
aðgerðir ríkisstjórnarinnar gera
náttúrlega ekkert annað en magna
þessa þróun.“
jakob@frettabladid.is
Verta hryllir við hærri áfengisskatti
ÁSGEIR ÞÓR DAVÍÐSSON Þekkir tímana
tvenna og segir aðgerðir ríkisstjórnarinn-
ar til þess fallnar að magna upp þróun
sem alltaf sé í kreppu en þá aukist
landadrykkja og smygl til mikilla muna.
KORMÁKUR GEIRHARÐSSON Segir ekki
aðeins aðgerðir ríkisstjórnarinnar með
þeim hætti að ekki fáist króna í kassann
heldur séu þær beinlínis til þess fallnar
að glæpavæða þjóðfélagið.
LANDABRUGGI HELLT NIÐUR Ef kenningar veitingamanna ganga eftir má búast við
því að lögreglan fái aukin verkefni við að uppræta landaverksmiðjur á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MAGNI Magni
syngur sinn hluta
á Akureyri.
> EKKI SKRÍMSLI
Söngvarinn Chris Brown segist
ekki vera skrímsli í nýju myndbroti
sem hann hefur birt á netinu. „Ég
elska alla mína alvöru aðdáendur. Ég
er ekki skrímsli,“ sagði hann. Réttar-
höld yfir honum vegna grófrar árásar
á fyrrum kærustu sína, Rihanna, eru
að hefjast.