Fréttablaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 2
2 5. júní 2009 FÖSTUDAGUR
FRAKKLAND, AP Enginn mögu-
leiki er á því að nokkur hafi lifað
af flugslysið yfir Atlantshafi á
sunnudagskvöld. Þetta hafa for-
svarsmenn flugfélagsins Air
France sagt ættingjum þeirra
sem voru um borð í vélinni.
Margar kenningar eru uppi um
það hvers vegna og hvernig vélin
hrapaði. Á miðvikudag fannst
löng olíubrák í sjó í nágrenni
braks og þótti það benda til þess
að vélin hefði ekki brotnað fyrr
en hún lenti í sjónum. Í gærdag
sagði svo einn rannsóknarmann-
anna að sjálfvirk skilaboð frá vél-
inni bentu til þess að vélin hefði
brotnað í sundur í loftinu. - þeb
Flugslysið í Atlantshafi:
Ættingjum sagt
að gefa upp von
FÓLK Samtök hernaðarandstæð-
inga (SHA) lýsa ánægju sinni með
fréttir af laxveiðiferðum íslenskra
banka- og sveitarstjórnarmanna í
Rússlandi. Samkvæmt frétt í DV
í gær voru rússneskar herþyrlur
notaðar til að ferja veislustjór-
ann, Gísla Martein Baldursson,
og félaga milli veiðistaða á Kóla-
skaga.
„SHA taka ekki afstöðu til rétt-
mætis þátttöku kjörinna fulltrúa
í slíkum ferðum, en fagna að öðru
leyti förinni, enda hafa viðkom-
andi herþyrlur þá ekki nýst til að
drepa fólk á meðan, til dæmis í
stríði Rússa í Tsjetsjeníu,“ segir í
tilkynningu frá samtökunum. - kg
Hernaðarandstæðingar:
Fagna laxveiði-
ferðum banka
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
staðfest refsidóma yfir þremur
mönnum sem réðust með ofbeldi
inn í íbúðarhús í Keilufelli í
Breiðholti í mars í fyrra. Þre-
menningarnir, Marcin Labuhn,
Robert Kulaga og Tomasz Roch
Dambski, voru allir dæmdir í
tveggja og hálfs árs fangelsi.
Hæstiréttur lækkar hins
vegar bæturnar sem þeim er
gert að greiða fórnarlömbum
sínum um rúman helming.
Mennirnir réðust ásamt
öðrum inn í húsið og stórslösuðu
sjö íbúa með ýmsum vopnum,
meðal annars járnstöng, hamri,
sleggju, járnröri, gaddakylfu,
golfkylfu, hafnaboltakylfu, hníf
og öxi. - sh
Hæstiréttur lækkar bætur:
Refsing staðfest
í Keilufellsmáli
Á S B R Ú - S Í M I : 5 7 8 4 0 0 0 - W W W . K E I L I R . N E T
Nánari upplýsingar
á www.keilir.net.
Umsóknarfrestur
rennur út í dag!
Nám á framhaldsskólastigi
og starfsnám:
Einkaflugmannsnám
Nám á háskólastigi:
Undirbúningsnám
fyrir háskólanám:
ALÞINGI Þingmenn Framsóknarflokksins reyndu á
Alþingi í gær að sannfæra stjórnarliða um ágæti
tillögunnar um afskriftir hluta lána heimila og
fyrirtækja. En allt kom fyrir ekki; stjórnarliðar
sátu við sinn keip.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, mælti fyrir þingsálykt-
unartillögu flokks síns. Sagði hann rangt, sem
haldið hefur verið fram, að gríðarlegur kostnað-
ur falli á ríkið verði leiðin farin. Í raun væri verið
að lágmarka tap. Ekki væri um fjármagn ríkis-
ins að ræða heldur lán sem bankarnir veittu og
fjármögnuð voru af erlendum kröfuhöfum gömlu
bankanna. Þau teljist nú að miklu leyti töpuð enda
gangi skuldabréf þeirra kaupum og sölum á broti
af upphaflegu verði. Sú staðreynd ætti að gefa til-
efni til afskrifta gagnvart þeim sem tóku lánin.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
sagði það ákaflega fallega hugsun að vilja leið-
rétta þessi mál í heild sinni, líkt og hverja aðra
skekkju. Sérstaklega ef menn héldu að það kostaði
ekki neitt. En hann gæti ekki með nokkru móti séð
að sú væri raunin. Það gæti ekki orðið útgjalda-
laust fyrir ríkissjóð að færa niður eignasöfn upp á
hundruð milljarða.
Undir lok máls síns lét Steingrímur að því liggja
að tillaga Framsóknarflokksins væri alls ekki
raunhæf. - bþs
Formaður Framsóknarflokksins segir lán þegar töpuð og því óhætt að afskrifa:
Ríkið ber ekki kostnað
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
SJÁVARÚTVEGUR Búið er að veiða sjö
hrefnur frá því að veiðar hófust 26.
maí. Fjórar veiddi áhöfn Jóhönnu ÁR
á miðvikudaginn.
„Það hefur allt gengið vel, vinnslan
og skurður um borð. Salan er líka
framar vonum,“ segir Gunnar Berg-
mann Jónsson, framkvæmdastjóri
Félags hrefnuveiðimanna.
Hvalaskoðunarfélag Íslands sendi
frá sér yfirlýsingu í gær þar sem
sagt er að Jóhanna ÁR hafi verið
alltof nálægt hvalaskoðunarskipum
á miðvikudaginn.
„Hvalaskoðunarsamtök Íslands
ítreka að veiðar og hvalaskoðun
geta ekki farið saman og það að leyfa
veiðar í svo mikilli nálægð við svæð-
in eins og raun ber vitni er fásinna,
nema að tilgangurinn sé að gera út
af við hvalaskoðun á Íslandi,“ segir í
yfirlýsingunni.
Gunnar Bergmann segir Jóhönnu
ÁR alltaf vera langt fyrir utan svæð-
in sem kölluð eru hvalaskoðunar-
svæði.
„Þeir verða bara að passa sig að
halda sig innan þessarar línu sem
liggur í kringum 12 mílurnar,“ segir
Gunnar. Í reglugerð eru hvalveiðar á
tilteknum svæðum bannaðar.
Stefnt er að því að klára hrefnu-
kvótann, hundrað dýr, í sumar og
haust. Af þeim sjö dýrum sem veiðst
hafa eru fimm tarfar og tvær kýr.
„Kjötið af kvendýrunum er
betra. Við veiddum þær utarlega og
munum fara þangað meira í sumar.
Við höfum verið að fara 50 mílur út
frá Gróttu og þar er allt krökkt af
hrefnu,“ segir Gunnar Bergmann.
- vsp
Sjö hrefnur hafa nú veiðst frá því að Jóhanna ÁR hóf veiðar í síðustu viku:
Halda sig vel innan línunnar
HREFNA Hvalaskoðunarfélag Íslands
segir fásinnu að leyfa veiðar í mikilli
nálægð við hvalaskoðun.
DÓMSMÁL Rúmlega fertugur karl-
maður hefur verið dæmdur í
fjögurra ára fangelsi í Hæsta-
rétti, auk greiðslu miskabóta
að upphæð 800 þúsund krónur,
vegna kynferðisbrots gegn fimm
ára stúlku í september 2008.
Hann ruddist inn í svefnher-
bergi húss þar sem litla telpan
svaf við hlið ömmu sinnar. Hann
færði telpuna úr náttbuxum og
nærbuxum og áreitti.
Maðurinn, Jóhann Sigurðar-
son, neitaði sök og bar við minn-
isleysi vegna áfengisneyslu.
Fingrafar hans sem fannst
innan á rúðu og hráki á tröppum
hússins, reyndist við DNA-rann-
sókn vera úr manninum. Þá
passaði lýsing ömmunnar við
hann. Dómurinn taldi því að
fram væri komin sönnun um að
hann hafi brotist inn í húsið og
verið staddur í svefnherberginu
um nóttina.
- jss
Fékk fjögurra ára fangelsi:
Braut á fimm
ára stúlkubarni UTANRÍKISMÁL Ekkert er gefið upp um af hvaða sökum sendiherra
Kínverja hefur verið kallaður
heim, og hvort annar verður skip-
aður í hans stað.
Benedikt Jónsson, starfandi
ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu-
neytinu, neitar að ræða þetta við
fjölmiðla, en segist ekki vita betur
en að sendiherrann sé hér enn.
Hann mælti með því að kínverska
sendiráðið svaraði þessu.
Þar fékkst einungis staðfest að
sendiherrann væri ekki farinn af
landi brott, en sá sem varð fyrir
svörum í sendiráðinu sagðist ekki
vita meira um málið. - kóþ
Óvissa um sendiherrann:
Sambandið við
Kínverja óljóst
Gunnhildur, kemur Rauði
krossinn til hjálpar ef menn
vita ekki svarið?
„Ja, nú er tækifæri fyrir fólk að sjá
hvernig Rauði krossinn bregst við
þegar mest á reynir.“
Haldin verður spurningakeppni í Rauða
kross-húsinu í kvöld í tilefni af því að
spilið „Spurt að leikslokum“ kemur þá út.
Gunnhildur Sveinsdóttir er verkefnastjóri
hjá Rauða krossinum.
SLYS „Auðvitað verður manni
brugðið. Maður væri ekki heil-
brigður annars. Ég hef verið á sjó
síðan ég var krakki og veit hvað
sjórinn getur gert. Hann gefur og
tekur,“ segir Karl Einar Óskars-
son, annar hafnsögumannanna sem
voru hætt komnir þegar bát þeirra
hvolfdi í innsiglingunni í Sandgerði
í gær.
Varðskipið Týr hafði verið
ásamt dráttarbátum að draga af
stað togarann
Sóleyju Sigur-
jóns, sem hafði
strandað í inn-
siglingunni, og
var búið að toga
hátt í klukku-
stund þegar
skipið losnaði.
Samkvæmt til-
kynningu Land-
helgisgæslunnar
voru það landfestar Sóleyjar, sem
tengdar voru í hafnsögubátinn, sem
drógu hann á hliðina þegar Sóley
losnaði, en Karl Einar vill ekki fjöl-
yrða um hvers vegna fór sem fór,
ekki fyrr en eftir sjópróf.
Karl Einar var sjálfur úti á dekki
og fór því beint í sjóinn. Hann var
kominn í bát björgunarfélagsins
Sigurvonar innan við hálfri mín-
útu síðar.
Skipstjóri bátsins, Aðalsteinn,
var hins vegar inni í stýrishúsinu
þegar bátnum hvolfdi og birtist
ekki ofansjávar fyrr en eftir eina
til tvær mínútur.
Guðmundur Ólafsson, formað-
ur björgunarsveitarinnar Sigur-
vonar, segir björgunina sem slíka
hafa gengið vel, þangað til bátnum
hvolfdi. „Það var svolítið sjokk,“
segir hann.
„Það eru sjálfsagt margar
ástæður fyrir þessu. En það var
verið að draga þrettán hundruð
tonna skip og við vorum á tiltölu-
lega mikilli ferð. Þú stoppar ekki
þrettán hundruð tonn á einu augna-
bliki,“ segir Guðmundur.
Í gærkvöldi vann köfunarfélag
að því að ná hafnsögubátnum úr
höfninni með því að koma belgj-
um á hann. Togarinn Sóley er tal-
inn óskemmdur og sigldi undir
eigin vélarafli til hafnar. „Þetta
er mjög þykkt stál í honum, byggt
fyrir ísinn við Grænland,“ segir
Guðmundur. Ekki var vitað hvort
olía hefði lekið úr togaranum í gær.
klemens@frettabladid.is
Mönnum bjargað
fyrir utan Sandgerði
Tveir menn fóru í sjóinn þegar hafnsögubát hvolfdi við björgunarstörf. Hann
hafði flækst í landfestar togarans Sóleyjar, sem var verið að draga af strandstað.
Skipstjórinn var inni í stýrishúsi neðansjávar í allt að tvær mínútur.
GUÐMUNDUR INGI
ÓLAFSSON
Á STRANDSTAÐ Litlu munaði að Tý tækist ekki að draga Sóleyju Sigurjóns á flot,
en það tókst að lokum. MYND/VÍKURFRÉTTIR
LAUS ÚR GREIPUM ÆGIS Fagnaðar-
fundir urðu við höfnina þegar allir voru
komnir heilu og höldnu úr volkinu.
Þrír mánuði fyrir að rífa í hár
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið
dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir
árás á tvo lögregluþjóna, konu og karl.
Maðurinn var ósáttur við afskipti lög-
regluþjónanna af sér inni á skemmti-
stað, kýldi annan þeirra í brjóstkassann
og reif síðan í hárið á þeim báðum.
DÓMSTÓLAR
SPURNING DAGSINS