Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.06.2009, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 05.06.2009, Qupperneq 8
8 5. júní 2009 FÖSTUDAGUR 1 Hver var valinn orðheppnasti leikarinn í lokahófi leikara- boltans? 2 Hvaða lið er í efsta sæti í efstu deild knattspyrnu kvenna? 3 Hvað heitir nýskipaður ráðu- neytisstjóri félagsmálaráðuneyt- isins? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34 EGYPTALAND, AP Barack Obama Bandaríkjaforseti kallaði eftir nýju upphafi í samskiptum Banda- ríkjanna og múslima í ræðu sinni í Kaíró í Egyptalandi í gær. Hann sagði að binda þyrfti enda á víta- hring tortryggni og ósættis. Í sam- einingu væri hægt að takast á við hryðjuverkamenn og öfgastefnur um allan heim og vinna að friði í Mið-Austurlöndum. Obama talaði um friðarviðræður í Mið-Austurlöndum, Íran, stríðin í Afganistan og Írak og Al-Kaída. Hann sagði íslam ekki vera hluta af vandamálinu í baráttunni gegn hryðjuverkum, heldur mikilvægan hluta þess að stuðla að friði. Ræða Obama fékk góð við- brögð, meðal annars frá tals- manni Hamas-samtakanna í Pal- estínu, sem sagði breytingar á orðum Obama og ræðum George Bush á sínum tíma. Fyrrverandi varaforseti Írans tjáði sig líka um ræðuna og sagði hana sárabætur fyrir það fjandsamlega umhverfi sem hefði verið búið til í tíð Bush. Þá sagði hann ræðuna geta verið fyrsta skrefið í því að eyða rang- hugmyndum Vesturlanda um mús- limaheiminn og öfugt. Obama heldur í dag til Þýska- lands þar sem hann mun ræða við Angelu Merkel kanslara. Á morgun verður hann í Frakklandi, áður en hann heldur aftur til Bandaríkj- anna. - þeb Barack Obama ávarpaði múslima í ræðu sinni í Egyptalandi í gær: Kallar eftir nýju upphafi Í KAÍRÓ Forsetinn hélt ræðu sína í Háskólanum í Kaíró í gær. Þar sagðist hann meðal annars vilja eyða staðal- ímyndum Vesturlanda um múslima og öfugt. Þá vitnaði hann í Kóraninn í ræðu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP UTANRÍKISMÁL Reynsla Kýpur og annarra smáþjóða af aðild að ESB var meðal umtalsefna á fundi for- seta Íslands og Kýpur í gær. Forseti Íslands er á Kýpur vegna Smáþjóðaleikanna sem þar fara fram. Í tilkynningu frá forsetaemb- ættinu kemur fram að orku- mál voru einnig til umræðu. Lýsti Kýpurforseti áhuga á auk- inni samvinnu ríkjanna í þróun hreinnar orku. Þá lýsti hann til- raunum sínum til að ná samkomu- lagi við forystusveit tyrkneska minnihlutans um skiptingu eyj- arinnar sem tryggt gæti friðsam- lega sambúð allra eyjarbúa. - bþs Forsetar Íslands og Kýpur: Ræddu um ESB og orkumál AFMÆLIS- HÁTÍÐ 1 ÁRS Lindir Kópavogi eiga afmæli og af því tilefni verður afmælishátíð alla vikuna. Ný tilboð á hverjum degi hjá öllum fyrirtækjum. TILBOÐ DAGSINS: KÓPAVOGI 2GB 3.495 Dagstilb oð MP3 - m .USB 59.995 Dagstilb oð Alsjálfvi rk MP3 spilari. LOGMP31002. Espressovél, SAE240. (fullt verð 11.990)(fullt verð 6.490) DAGSTILBOÐ Gildir aðeins í dag 5.júní FERSKT & NÝB AKAÐ! kr. stk.99 Baguett e Rúnstyk ki m/bir ki 3 stk á 99 kr kr. pk.199 Jarðarb er í ösk ju Virðing Réttlæti Hefurðu fengið orlofsuppbótina greidda? Gleðilegt sumar! F í t o n / S Í A VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Þeir félagsmenn VR sem eru í starfi í fyrstu viku maí, eða hafa starfað samfellt hjá sama vinnuveitanda í 12 vikur á orlofsárinu, eiga rétt á orlofsuppbót að upphæð 19.000 kr. miðað við fullt starf. Annars hlutfallslega miðað við starfs- hlutfall og starfstíma síðastliðið orlofsár. Þeir sem eru í hlutastarfi eiga að fá greidda orlofsuppbót í samræmi við starfshlutfall sitt. Orlofsuppbótina á að greiða síðasta lagi þann 1. júní. Nánar á www.vr.is LÖGREGLUMÁL Tæplega þrítugur lit- háískur karlmaður slasaðist lífs- hættulega um miðjan dag í gær þegar til átaka kom í húsi við Grett- isgötu í Reykjavík. Sex manns voru handteknir í kjölfarið, fjórir karl- menn og tvær konur. Fólkið er allt af erlendu bergi brotið en hefur verið búsett hér á landi um hríð. Eftir því sem næst verður kom- ist brutust átökin út fyrri hluta dags í gær. Um eittleytið var lög- reglan kvödd á staðinn og reynd- ist einn þeirra sem var á staðnum illa særður eftir átökin. Ekki er ljóst hvort áverkarnir voru eftir högg og spörk einungis eða egg- vopn og barefli einnig. Íbúi í hús- inu sem Fréttablaðið ræddi við í gær sagði að þar byggi nú hópur fólks, einkum frá Austur-Evrópu, sem hefði misst vinnuna en lifði á atvinnuleysisbótum. Mikið væri um áfengis neyslu á staðnum jafnt daga sem nætur. Samkvæmt upplýsingum Frétta- blaðsins var fólkið sem handtekið var frá Litháen og Póllandi. Hinn yngsti hinna handteknu er á þrí- tugsaldri en sá elsti á fimm- tugsaldri. Flest er fólkið búsett í umræddu húsi. Í dag verður tekin ákvörðun um hvort farið verður fram á gæslu- varðhald yfir einhverjum þeirra sem inni sitja eða þeim sleppt að loknum yfirheyrslum. Maðurinn sem særðist fór beint í aðgerð á Landspítalanum í gær, þar sem gert var að sárum hans. Tvísýnt var um líf hans í gærkvöld þegar blaðið fór í prentun. Karlmaður í lífshættu eftir misþyrmingar Fjórir karlar og tvær konur eru í haldi lögreglu eftir átök í heimahúsi í Reykja- vík í gærdag. Þrítugur karlmaður er lífshættulega slasaður eftir misþyrmingar. Maðurinn fór beint í aðgerð á Landspítalanum í gær. Tvísýnt er um líf hans. GRETTISGATA 43 Flestir þeirra sem handteknir voru búa í þessu húsi við Grettisgötu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.