Fréttablaðið - 05.06.2009, Side 16

Fréttablaðið - 05.06.2009, Side 16
16 5. júní 2009 FÖSTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 SPOTTIÐ Var gaman eða ekki?! DV gerir sér mat úr því að árið 2007 hafi Gísli Marteinn Baldursson verið í hópi þeirra sem Glitnir bauð í veiði- ferð til Rússlands, þar sem gestum var meira að segja boðið í herþyrlu. Að sögn Gísla Marteins var hann í hlutverki „eins konar veislu- stjóra“ í ferðinni en fékk þó ekki „greitt sérstaklega“ fyrir viðvikið. Athygli vekur að þótt Gísla hafi að eigin sögn „alltaf fundist gaman að vera veislu- stjóri“ sér blaðamaður ástæðu til að taka sérstaklega fram að Gísli hafi ekki viljað gefa upp hvort honum hafi fundist gaman í ferð- inni eða ekki. Verður DV ekki að draga Gísla fyrir upplýsinganefnd til að fá úr því skorið hvort ferðin hafi verið skemmtileg? Friðarsinnar fagna Boðsgestir Glitnis í lax- veiðiferðum til Rússlands skor- uðu óvænt stig hjá Samtökum hernaðarandstæð- inga, undir forystu Stefáns Pálssonar, sem sendu frá sér tilkynningu vegna fréttarinnar í gær. Þar segir meðal annars: „SHA taka ekki afstöðu til réttmæti þátttöku kjörinna fulltrúa í slíkum ferðum, en fagna að öðru leyti förinni, enda hafa viðkomandi herþyrlur þá ekki nýst til að drepa fólk á meðan, til dæmis í stríði Rússa í Téténíu. Samtök hernaðarand- stæðinga hvetja til þess að gengið verði enn lengra í þessa átt og öllum herþyrlum heimsins falin ný verkefni, svo sem í tengslum við menningar tengda ferða- mennsku eða sportveiðar.“ bergsteinn@frettabladid.is R íkisstjórn Íslands átti í meiri vandræðum með heim- sókn Dalai Lama en nágrannaþjóðirnar eins og Dan- mörk til að mynda. Ástæðan er ekki ósnoturt hjartalag ráðherranna. Þvert á móti má vitna til margra yfir- lýsinga þeirra frá stjórnarandstöðutímanum sem bera vott um sterka samstöðu með undirokuðum minnihlutahópum. Það er hins vegar önnur hlið á viðbrögðunum við heimsókn þessa friðarverðlaunahafa Nóbels til Íslands sem vert er að skoða. Hún snýr að stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna. Segja má að tvær kenningar hafi verið ráðandi um hvernig Ísland kæmi ár sinni best fyrir borð í alþjóðasamfélaginu. Önnur er sú að best sé að skipa landinu í sveit og bindast þeim þjóðum sem næst okkur standa í menningarlegum efnum, pólitík og viðskiptum. Um þetta snerist aðildin að Atlantshafsbandalag- inu. Sókn og vörn fyrir þá stefnu hvíldi á þeirri tíð mest á herðum Bjarna Benediktssonar. Hin leiðin felst í því að aka seglum eftir vindi og leita skjóls og samstöðu í alþjóðasamfélaginu eftir því hvernig vindar blása hverju sinni. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, talaði fyrir þeirri hugmyndafræði á ráðstefnu í Andorra fyrir rúmu ári um tækifæri smáríkja í hagkerfum veraldarinnar. Þar minnti forsetinn á að Ísland væri fyrsta og eina Evrópu- ríkið sem ætti í sjálfstæðum fríverslunarviðræðum við Kína. Um leið ítrekaði hann að Ísland gæti tryggt stöðu sína og sveigjan- leika með því að stofna sjálfstætt til viðskiptatengsla við þjóðir og fyrirtæki víðs vegar í heiminum án þess að vera bundið af flóknu samningaferli Evrópusambandsins. Þessi kenning lítur betur út í orði en á borði. Vandræðagangur ríkisstjórnarinnar með Dalai Lama er lítið saklaust dæmi um að heimurinn er harðari og hagsmunirnir flóknari en svo að það gangi upp að tryggja stöðu þjóðar með samningum við Kína í dag og Bandaríkin á morgun. Stærri þjóðir en Íslendingar hafa komist að þeirri niðurstöðu. Forsætisráðherra og fjármálaráðherra töldu að stoðir full- veldisins væru ekki sterkari en svo að þær þyldu ekki andúð kínverskra stjórnvalda. Danski forsætisráðherrann mat styrk fullveldis þjóðar sinnar á annan veg. Sveigjanleikakenningin byggist á sömu hugsun og hlutleysis- stefnan. Um hana var algjör pólitísk eining í byrjun. Hún hrundi hins vegar í upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar. Í stað þess að endurreisa hana með orðaleppum var farin önnur leið. Heimurinn hefur breyst síðan. Atlantshafsbandalagið, sem var þungamiðjan í utanríkispólitík Íslands, missti áhrifavald sitt í lok kalda stríðsins. Norðurlandaráð hefur nú menningarlegt gildi en enga pólitíska þýðingu. Þannig hefur losnað um kjölfestu Íslands í alþjóðasamfélaginu. Spurningin um aðild að Evrópusambandinu snýst ekki einasta um peningastefnu og viðskipti. Í ljósi nýrra aðstæðna er hún nauðsynlegt og rökrétt framhald af þeirri utanríkisstefnu sem mótuð var fyrir sex áratugum. Hún er mikilvæg til að festa pólit- ískan þyngdarpunkt landsins í alþjóðasamfélaginu eftir að aðrar stoðir hafa veikst. Svo má ekki gleymast að íslensk menning er hluti af evrópskri arfleifð. Hin hliðin á heimsókn Dalai Lama varpar nokkru ljósi á þennan veruleika. Vandræðin með heimsókn Dalai Lama: Hin hliðin ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR UMRÆÐAN Hrannar Pétursson svarar forstjóra Símans Síminn hefur á undanförnum árum misst marga af sínum stærstu við- skiptavinum yfir til Vodafone. Þau eru teljandi á fingrum annarrar handar útboðin sem Síminn hefur unnið, oft- ast vegna þess að fyrirtækið hefur ekki boðið sambærilegt verð og aðrir en í sumum tilvikum hefur Síminn einfald- lega ekki staðist tæknilegar kröfur í útboðunum. Í því ljósi er sá pirringur forstjóra Símans, sem birtist m.a. á forsíðu Fréttablaðsins í gær og beindist að Vodafone, skiljanlegur. Hinn eflaust ágæti forstjóri hlýtur hins vegar að tala gegn betri vitund þegar hann heldur því fram, að skattgreiðendur þurfi að greiða tugi milljarða svo Vodafone og önnur dótturfélög Teymis (sem er móðurfélag Vodafone) geti starfað áfram á markaði. Slík ummæli eru beinlínis kjánaleg, því ekkert slíkt stendur til. Þvert á móti er fjárhagslegri endurskipulagningu Teym- is ætlað að tryggja hagsmuni íslensku bankanna og koma í veg fyrir að byrðar lendi á skattgreiðendum. Engar skuldir verða felldar niður, heldur verður hluta þeirra breytt í hlutafé. Fyrri eigendur missa allt sitt, en nýir eigendur standa eftir með verðmæt fyrirtæki sem skapa þeim miklar tekjur. Rekstur Vodafone gengur vel og sann- gjarn hagnaður af starfseminni mun renna til nýju eigendanna. Bankarnir hafa hins vegar lýst því yfir, að þeir hyggist ekki eiga fyrirtækið til lengri framtíðar og selja það hæstbjóðanda í opnu og gagnsæju ferli síðar meir líkt og önnur dótturfyrirtæki Teymis. Starfsmenn Vodafone láta það ekki trufla sín daglegu störf, þótt stærsti keppinauturinn okkar sé með Vodafone á heilanum. Þvert á móti eykur það samheldnina í okkar hópi og viljann til að veita bestu fjarskiptaþjónustuna á markaðnum. Höfundur er upplýsingafulltrúi Vodafone. Kjánalegar fullyrðingar HRANNAR PÉTURSSON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.