Fréttablaðið - 05.06.2009, Síða 24

Fréttablaðið - 05.06.2009, Síða 24
4 föstudagur 5. júní Ísak Freyr Helga- son er 19 ára mennt- aður förðunarfræðingur og kom fyrst fyrir sjónir landsmanna í þætt- inum Nýtt útlit á Skjá einum í vetur. Í viðtali við Föstudag segir hann frá uppvaxtar árunum, vinnunni og framtíðar- draumunum. Viðtal: Alma Guðmundsdóttir Ljósmyndir: Anton Brink É g ætlaði alltaf að verða hárgreiðslu- maður þegar ég var yngri og þegar frænk- urnar komu í heim- sókn voru ekki liðnar fimm mín- útur áður en ég var kominn í hárið á þeim,“ segir Ísak og viður kennir að tískuáhuginn hafi kviknað snemma. „Þegar ég var lítill fannst mér mjög gaman að hlusta á tón- list, dansa og klæða mig í alls konar föt. Ég málaði líka mikið, samdi ljóð og var alltaf á línu list- arinnar. Ég skar mig því fljótlega úr og það varð til þess að ég var mikið einn með sjálfum mér,“ bætir hann við. Ísak er fæddur og uppalinn á Ól- afsfirði, en á leikskólaaldri greind- ist hann með ofvirkni og athygl- isbrest sem mörkuðu djúp spor í æsku hans. „Við mamma fluttum suður á Hofsvallagötuna árið 1997 og ég fór í Melaskóla. Það var mjög erfiður tími þar sem mamma vann vaktavinnu í sjoppu á Hverfisgöt- unni og ég þurfti alltaf að ganga einn heim og opna fyrir mér sjálf- ur. Hálfu ári síðar fluttum við aftur heim, en árið 1998 komum við aftur suður og ég var vistað- ur inni á Bugl. Þá var ég bara átta ára og man því óljóst eftir þessu, en ég man að mér fannst erfitt að koma aftur í bæinn, þurfa að gista einn á Bugl og vera án mömmu í fyrsta skipti. Það var alltaf mik- ill ótti í mér sem ég tengdi ef til vill eineltinu heima á Ólafsfirði. Ég var með mikinn athyglisbrest og þráhyggju sem fólst til dæmis í að opna og loka hurðum oft í röð og var settur á þunglyndislyf. Þau gerðu það að verkum að ég hafði litla stjórn á skapinu og fitnaði mikið, sem gerði illt verra þegar ég kom aftur heim til Ólafsfjarðar og var orðinn miklu þyngri,“ útskýr- ir Ísak. „Ég hætti því á lyfjunum, en var síðan látinn á Ritalin. Það hjálpaði mikið til, en samt ekki nóg því ég átti mjög erfitt með að hafa stjórn á mér og átti því nán- ast engan vin á þessum tíma,“ út- skýrir Ísak. „Það er mín upplifun að maður læri að lifa með þessu eftir því sem maður þroskast og verður eldri, að töflur einar og sér leysi ekki vandann. Auk þess hefur mamma hjálpað mér alveg gríðar- lega mikið að takast á við þetta og hefur verið minn helsti stuðn- ings maður hvað þetta varðar,“ út- skýrir Ísak sem flutti alfarinn til Reykjavíkur árið 2001, þegar hann var ellefu ára. ÖFGANNA Á MILLI „Við mamma fluttum í Breið- holtið og ég fór í Seljaskóla, en út af veikindunum var mikið vesen með mig í grunnskóla. Ég var meira fyrir að skapa og gera öðruvísi hluti heldur en að fara út í fótbolta og varð því fyrir miklu einelti. Ég átti líka mjög erfitt með að einbeita mér í tímum. Okkur var ráðlagt að ég færi í Öldusels- skóla þar sem var sérdeild og ég hafði sérkennara, en ég fann mig aldrei og var sendur í aðra grein- ingu á Bugl. Þá var búið að reyna allt svo síðasta úrræðið var að ég færi á Geldingalæk, sem var með- ferðarstofnun úti á landi,“ segir Ísak. „Allt var mjög stórt í snið- um á Geldingalæk. Húsið var stórt, búgarðurinn risastór og umhverfis var ekkert nema náttúran og víð- áttan. Við vorum um sex strákar hjá hjónunum sem ráku þetta auk tveggja starfsmanna. Þetta var erf- itt til að byrja með því ég mátti ekki sjá mömmu í tvo mánuði og mér fannst reglurnar strangar. Ég lærði mikið á því að vera þarna, en fyrirkomulagið var þannig að því fyrr sem árangurinn kom í ljós því fyrr varstu tilbúinn að fara aftur heim. Ég man eftir því að allt gekk vel þangað til í lokin, þá fór fullkomnunaráráttan að gera vart við sig og hugsunin um að kom- ast heim orðin það sterk að ég var kominn í mína eigin geðveiki, sem ég þó leyndi. Ég var á Geld- ingalæk í ár og kom heim í miðj- um áttunda bekk. Þegar ég byrj- aði í Breiðholtsskóla var áráttan á fullkomnun orðin það mikil að mig var farið að verkja í allan lík- amann. Ég hélt að ég væri kom- inn með sjúkdóm og að ég væri ekki fullkominn lengur, sem þýddi vikulega heimsókn á læknavakt- ina. Eina vikuna heilaæxli og hina eitthvað annað,“ útskýrir Ísak. „Sumarið eftir áttunda bekk urðu miklar breytingar á lífi mínu. Ég var djúpt sokkinn í þráhyggju og átti erfitt með að fara út því ég var ekki nógu fallegur fyrir al- menning að mér fannst. Ég fór því að hreyfa mig á kvöldin þegar fólk var ekki á sveimi og endaði síðan á að kaupa mér kort í ræktina. Ég æfði alltaf snemma á morgn- ana, um miðjan daginn og síðan á kvöldin. Eitt grænt epli var nán- ast það eina sem fór upp í mig yfir daginn. Á fjórum mánuðum var ég kominn úr 108 kílóum niður í 55 kíló. Ég var orðinn það mjór að mamma hafði rosalegar áhyggjur af mér og ég þurfti að fara í mæl- ingar í hverri viku,“ útskýrir Ísak og segist hafa ákveðið að snúa við blaðinu. „Á einum tímapunkti stóð ég inni í herberginu mínu og hugs- aði: „Hvað er ég að gera sjálfum mér?“ Það eru ekki allir sem geta bara sagt stopp, en þarna kom einhver hugur í mig. Ég man að ég stóð upp úr rúminu mínu, lagði frá mér epli sem ég var að borða á gluggakistuna og ákvað að þessu yrði að linna,“ segir Ísak sem leit- aði sér hjálpar vegna veikindanna sín í kjölfarið. KYNHNEIGÐIN AUGLJÓS Aðspurður segist hann fyrst hafa komið út úr skápnum í 10. bekk. „Það var mjög fyndið því það var svo greinilegt. Það eina sem ég var ekki búinn að gera var að segja það upphátt. Ég man að ég fór og sagði við mömmu þar sem hún sat og var að lesa, að við þyrftum að ræða saman. Hún leit upp og spurði hvort eitthvað væri að í skólanum. Þegar ég neitaði því spurði hún: „Ísak minn, ætlarðu að segja mér að þú sért samkyn- hneigður?“ Þegar ég játaði því sagði hún: „Elskan mín, ég vissi það þegar þú varst tveggja ára,“ útskýrir Ísak brosandi og segir kynhneigðina aldrei hafa verið neitt mál gagnvart vinum hans á þeim tíma. „Ég eignaðist mjög góða vini, reyndar aðal lega stelp- ur, en það var aldrei neitt vanda- mál. Mér var aldrei strítt vegna kynhneigðar minnar. Ég gerði bara það sem ég vildi og klæddi mig eins og mér sýndist,“ bætir hann við. Í HEIMI TÍSKUNNAR Í byrjun síðasta árs hóf Ísak förð- unarnám í EMM school of make up og útskrifaðist þaðan um vorið. Í kjölfarið bauð Sóley Ástudóttir, eigandi EMM, honum vinnu við að aðstoða sig og síðasta sumar tók Ísak þátt í förðunar- og hár- greiðslukeppninni Hamskiptum þar sem hann bar sigur úr býtum. „Eftir að ég fór að vinna fyrir Sól- eyju fór allt að rúlla. Ég sá svo auglýst hárgreiðslunámskeið fyrir förðunarmeistara hjá Kalla (Karli Berndsen, hárgreiðslu- og förðun- armeistara), en hann var þá ný- kominn til landsins og ekki búinn að opna stofuna sína Beauty-bar- inn. Ég fór á námskeiðið og mán- uði síðar bað hann mig um að að- stoða sig í verkefni. Ég var svolítið stressaður og misskildi verkefnið þannig að ég víxlaði förðuninni á konunum tveimur sem var verið að mála. Ég man að ég stóð þarna í sjokki, fannst ég vera búinn að rústa samstarfi okkar og fór nán- ast grenjandi heim. Hann hringdi svo aftur í mig stuttu síðar, bað mig um að aðstoða í öðru verkefni og bauð mér svo vinnu eftir að hann opnaði Beauty-barinn,“ út- skýrir Ísak og segir þá Karl vinna mjög vel saman, en Ísak var einnig aðstoðarmaður hans í þáttunum Nýtt útlit á Skjá einum í vetur. „Ég er mjög hlédrægur í eðli mínu og fíla mig bara við að farða, taka þátt í verkefnum sem tengjast því, sem aðstoðarmaður Kalla, að svara símanum og sjá til þess að við nærumst og svoleið- is, svolítið svona „The devil wears Prada“. Ég vissi því ekkert að ég yrði í Nýju útliti en í fyrsta þætt- inum þegar Kalli var að skoða inn í einn fataskápinn kallaði hann á mig; „nennirðu að koma, þú ert líka í þessu,““ segir hann ✽ ba k v ið tjö ldi n SAGÐI SKILIÐ VIÐ ÞRÁHY Stjörnumerki: Naut. Besti tími dagsins: Kvöldið. Sérstaklega á sumrin þegar heitt er. Geisladiskurinn í spilaranum: Hlusta voðalega lítið á geislaspil- ara, en iPodinn hlusta ég mikið á og það fer rosalega mikið eftir skapinu hvernig tón- listin er. Allt frá hörðu elektrói til arabískra tóna. Uppáhalds- verslunin: Ég myndi segja að hérna heima væri það Belleville. Það er allt- af eitthvað brjálað „piece“ sem maður verður að fá, en úti þá er það örugglega Kokon To Zai. Uppáhaldsmaturinn: Kjúklingur, innbakaður í parm es- an-osti og raspi. Líkamsræktin: Mér finnst mjög gott að taka göngu á kvöldin. Bæði til að fá smá afslöppun og hreinsa hugann. Mesta dekrið: Að vera á góðum stað þar sem manni líður vel og slappar af. Gæti svo sem verið hvar sem er. Ég lít mest upp til: Móður minnar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.