Fréttablaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 36
 5. júní 2009 FÖSTUDAGUR NUDD Verð frá 1690.- Selásbraut 98 110 Árbæ S:577 3737 LAUGAVEG 54 SÍMI: 552 5201 Upplifið nýjasta S ims leikinn sem e r mun stærri, opnari og fjölbreyttari en áð ur! SENDU SM S EST SIMS Á NÚMERIÐ 1900 - ÞÚ GÆ TIR UNNÐ E INTAK! Fullt af aukavinni ngum: Tölvuleikir , DVD myndir, g os og margt fleira ! KOMIN N Í ELKO! 9. HVER VINNUR! 199 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. Þri 9/6 kl. 20:00 forsýn. U Mið 10/6 kl. 20:00 forsýn. U Fim 11/6 kl. 20:00 frums. U Fös 12/6 kl. 20:00 2.sýn Ö Lau 13/6 kl. 20:00 3.sýn Ö Sun 14/6 kl. 16:00 4. sýn Ö Lau 20/6 kl. 16:00 5. sýn Ö Sun 21/6 kl. 16:00 6.sýn Ö Fös 26/6 kl. 20:00 7.sýn Lau 27/6 kl. 20:00 8.sýn Sun 28/6 kl. 16:00 9.sýn Grease – Vinsælasti rokksöngleikur allra tíma! folk@frettabladid.is „Nokkrum dögum fyrir tökur varð ég alveg ótrúlega stressuð og sú hugsun hvarfl aði að mér að kannski væri ég búin að gleyma hvernig ætti að leika.“ JENNIFER LOPEZ Var nokkuð taugatrekkt þegar hún átti að fara að leika í sinni fyrstu kvikmynd eftir nokkurt hlé. „Mig langar í stærri rass. Og fá meira kjöt á beinin, verða aðeins ávalari. En það er víst ekki minn líkamsvöxtur.“ CAMERON DIAZ Er ekki alveg sátt við líkama sinn og ólíkt mörgum öðrum konum vill hún sjá hærri tölu á vigtinni. „Mér finnst það yndislegt. Ég ákvað ekki að gerast leikkona af því að ég þráði viðurkenningu fyrir skákhæfi- leika. Hluti af því að vera Hollywood- stjarna er að vera talinn aðlaðandi.“ MEGAN FOX Þykir greinilega ekkert leiðinlegt að vera álitin kyntákn. Djúpið, einleikur eftir Jón Atla Jónasson, verður frumsýnt á Íslandi í kvöld í Borgarleikhúsinu en það er stórleikarinn Ingvar E. Sig- urðsson sem flytur verkið. Djúpið hefur verið sýnt við góðan orðstír í Skotlandi – sem þjónar þá hlutverki „Off Broadway“ fyrir ís- lenska leikhúsgesti. „Ég var dálítið á sjó þegar ég var yngri og í fyrsta bekk í mennta- skóla íhugaði ég það alvarlega að fara í Stýrimannaskólann. En ég fór aðra leið. Þetta er spennandi umfjöllunarefni og að mörgu leyti séríslenskt. Það er útgangspunkt- ur minnar vinnu að skrifa og gera leikhús fyrir Íslendinga,“ segir Jón Atli Jónasson, leikskáld og leikstjóri. Frumraun Jóns Atla sem leik- stjóra getur að líta í Borgarleik- húsinu í kvöld en þá verður ein- leikur hans, Djúpið, frumsýndur á Íslandi. Það er stórleikarinn Ingvar E. Sigurðsson sem flytur verkið. Djúpið byggist á nokkrum skip sköðum sem hafa orðið undan ströndum landsins. Það fjallar um mann sem vaknar, fer út á sjó, allt í góðu. Hann leggur sig og vaknar við þau ósköp að skipið er á hvolfi. Eftir Jón Atla liggja nokkur leik- rit og þar hefur hann tekið sjó- mennskuna fyrir – sem er ekki algengt meðal manna á borð við Jón Atla, sem hafa fremur á sér yfirbragð listamannatýpunnar sem má sjá bregða fyrir á kaffi- húsum í póstnúmeri 101. Nú ber svo til að Djúpið var frumsýnt um páskana úti í Glasgow í Oran Mor-leikhúsinu og var einn þekktasti leikari Skot- lands, Liam Brennan, í aðalhlut- verkinu. Viðtökur gagnrýnenda voru frábærar en Djúpið fékk fjórar stjörnur í The Scotsman. Í kjölfarið var farið með verkið á leikferðalag um norðurströnd Skotlands og það sýnt í litlum sjáv- arþorpum. „Við erum eitt af aðal- verkum Edinburg Fringe Festival í ár. Sýnum allan ágústmánuð í Ass- embly Rooms í hjarta borgarinn- ar. Edinburg Fringe Festival er ein stærsta leiklistarhátíð í Evrópu og um milljón gestir koma á hátíðina. Hún er stærsta túrista „attraks- jón“ í Bretlandi. Okkur hafa borist mörg tilboð um að sýna verkið og fara með það á sýningarferðalag um Evrópu,“ segir Jón Atli. Þannig þjónar Skotland nú hlutverki „Off Broadway“ fyrir íslenska leikhús- gesti. En sá háttur er hafður á í bandarísku leikhúsi að áður en til frumsýninga á Broadway kemur eru verk prufukeyrð annars stað- ar. En af hverju Skotland? „Ég hafði séð uppsetningu í leik- stjórn skoska leikstjórans Graeme Maley á Svörtum fugli eftir David Harrower. Í framhaldinu ákváð- um við að setja verkið upp í Skot- landi,“ segir Jón Atli en stefnt er að sýningum Djúpsins eitthvað fram eftir vori. „Við stefnum líka að því að sýna verkið úti á landi. Okkur finnst við bera skyldu til þess. Skoska uppsetningin fór úr þjóðleikhúsi þeirra og í nokkur lítil sjávarþorp þar sem var sýnt í félagsheimilum. Mér þótti afar vænt um það.“ jakob@frettabladid.is Sjómennskan ekkert grín INGVAR OG JÓN ATLI Það er alvöru viðfangsefni sem þeir félagar glíma við í Djúpinu en sjómaður vaknar við þau ósköp að bátur hans er kominn á hliðina. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.