Fréttablaðið - 10.06.2009, Page 2
2 10. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR
Ólafur, er þetta hvalreki fyrir
grillara?
„Já, svo sannarlega. Því til sönn-
unar geta allir fengið að bragða á
grilluðum hval fyrir utan verslanir
Krónunnar í vikunni.“
Hrefnukjöt er vinsælasta grillkjötið í versl-
unum Krónunnar það sem af er mánuði.
Ólafur Júlíusson er sölustjóri Krónunnar.
Handrið • Glerveggir • Milliveggir
Svalalokanir
EFNAHAGSMÁL Rannsóknarnefnd
Alþingis skoðar töpuð útlán
Seðlabanka Íslands, upp á 350
milljarða í endurhverfum við-
skiptum, á síðustu dögunum fyrir
hrunið. Tryggvi Gunnarsson
nefndarmaður staðfestir þetta.
„Þetta er hluti af þessu við-
fangsefni sem nefndin er að fjalla
um; hvernig voru bankarnir
fjármagnaðir á þessum tíma og
annað eftir því,“ segir hann. Um
hvort starfsmenn Seðlabankans
hafi verið kallaðir fyrir nefndina
og spurðir um þetta, segir hann:
„Við erum að kanna ýmsa hluti
og ræða við fólk, þannig að það er
ýmislegt í gangi.“ - kóþ
Rannsóknarnefnd Alþingis:
Skoðar mikið
tap Seðlabanka
VIÐSKIPTI „Þetta er gott skref og í
samræmi við væntingar okkar. Það
hefði engum verið greiði gerður
að fara með nokkurn mann í þrot
vegna þessa eða fella niður skuldir
neins,“ segir Sveinn Margeirsson,
einn þeirra sem farið hefur fyrir
hópi stofnfjáreigenda og annarra
velunnara sparisjóðsins Byrs.
Samkomulag hefur náðst á milli
Íslandsbanka og meirihluta stofn-
fjáreigenda sparisjóðsins vegna
lána sem stofnfjáreigendur tóku
hjá Glitni (nú Íslandsbanka) í
tengslum við stofnfjáraukningu
Byrs haustið 2007.
Stofnfjáraukningin hljóðaði upp
á 26,2 milljarða króna og var hún
að mestu fjármögnuð með lántöku
hjá bönkum og fjármálafyrirtækj-
um. Flestir stofnfjáreigenda fengu
lán fyrir kaupunum hjá Glitni (nú
Íslandsbanka). Ekki lá fyrir í gær
hvað þeir eru margir en ekki úti-
lokað að þeir geti verið um 500
talsins. Þeir fá bréf vegna málsins
frá bankanum í dag eða á morg-
un.
Lánin voru á gjalddaga 19.
júní næstkomandi og hafa marg-
ir stofnfjáreigenda verið uggandi
vegna þessa. Einhverjir munu hafa
horft fram á gjaldþrot.
„Þeir fá fjögurra mánaða frest
á greiðslu höfuðstóls og vaxta frá
gjalddaganum. Þeim sem ekki
nýta sér það eða greiða upp lánið á
gjalddaga standa til boða leiðir til
reglubundinna endurgreiðslu lán-
anna,“ segir Már Másson, upplýs-
ingafulltrúi Íslandsbanka. Hann
segir þetta ákveðna lendingu þar
sem óvissa sé um margt í tengslum
við Byr, svo sem verðmat á stofn-
fjárhlutum.
Sveinn sagði í gær ekki vitað
hvað gerðist í kjölfarið en rætt
hafi verið um að fá kunnáttumann
til að semja um lausn til frambúð-
ar fyrir stofnfjáreigendur. - jab
Íslandsbanki og stofnfjáreigendur Byrs semja um greiðslu milljarðaláns:
Vildu engin lán felld niður
BYR Samkomulag hefur náðst milli
Íslandsbanka og meirihluta stofnfjáreig-
enda sparisjóðsins.
KÓPAVOGUR Hugsanlegt er að lög
hafi verið brotin í viðskiptum
Kópavogsbæjar við Frjálsa miðl-
un, fyrirtæki í eigu dóttur Gunn-
ars Birgissonar bæjarstjóra. Þetta
kemur fram í skýrslu endurskoð-
unarfyrirtækisins Deloitte á við-
skiptum bæjarins við fyrirtæk-
ið. Fjölmargar athugasemdir eru
gerðar við viðskiptin.
Samkvæmt skýrslunni námu við-
skipti bæjarins við Frjálsa miðlun,
sem er í eigu dóttur Gunnars og
eiginmanns hennar, alls 39 millj-
ónum á sex ára tímabili. Kópa-
vogsbær var helsti viðskiptavinur
fyrirtækisins á þessum tíma.
Í skýrslunni segir að lög um
opinber innkaup kunni að hafa
verið brotin þar sem ekki fóru
fram útboð vegna verkanna og
ekki var leitað tilboða í þau, ólíkt
því sem Gunnar hefur sjálfur hald-
ið fram.
Þá eru gerðar athugasemdir við
það að reikningar hafi í mörgum
tilfellum verið bókaðir á ranga
bókhaldslykla, svo oft að útilok-
að sé að um tilfallandi mistök hafi
verið að ræða. Enn fremur hafi
ekki verið gerðir skriflegir samn-
ingar vegna verkanna, sums staðar
sé endurgreiðsla virðisaukaskatts
nýtt án þess að það sé heimilt auk
þess sem þrjár milljónir hafa verið
greiddar í gerð afmælisrits sem
aldrei kom út.
Fulltrúar minnihlutans í bæjar-
stjórn Kópavogs hafa kallað eftir
því að Gunnar segi af sér vegna
málsins. Það hyggst hann hins
vegar ekki gera.
„Ég tel mig ekki hafa gert neitt
rangt í þessu máli,“ segir Gunn-
ar. Hann viðurkennir að málið líti
óheppilega út vegna þess að dótt-
ir hans eigi fyrirtækið, en segir
athugasemdirnar fyrst og fremst
bókhaldslegs eðlis og tekið verði
tillit til þeirra. Hann skellir skuld-
inni á sviðsstjóra hjá bænum og
afmælisnefndina sem sá um gerð
afmælisritsins og telur ekki rétt
mat að lög hafi verið brotin.
„Mér er brugðið,“ segir Ómar
Stefánsson, oddviti Framsóknar-
flokksins, sem myndar meirihluta
með Sjálfstæðisflokknum í Kópa-
vogi, og er mjög ósáttur við hvern-
ig viðskiptum við Frjálsa miðlun
hefur verið háttað. „Þetta er mjög
alvarlegt og ekki í þeim anda sem
við viljum starfa hérna.“
Hann segir að fundur verði boð-
aður í fulltrúaráði flokksins í dag
eða á morgun þar sem ákvörðun
verður tekin um næstu skref. Þá
þurfi að kanna hvort sams konar
viðskiptahættir hafi verið viðhafð-
ir við fleiri fyrirtæki.
Ómar á von á því að ræða málið
við Gunnar á reglulegum fundi
þeirra fyrir hádegi í dag.
Guðríður Arnardóttir, fulltrúi
Samfylkingarinnar, segir svör
Gunnars vera útúrsnúninga. „Eftir
stendur að hann er æðsti embætt-
ismaður bæjarins og ber ábyrgð á
rekstri bæjarins. Það verður ekki
horft fram hjá því að þetta fyr-
irtæki er í eigu hans dóttur, við-
skiptin við fyrirtækið eru mjög
óeðlileg og hann getur ekki vikið
sér undan þeirri ábyrgð.“
Ekki náðist í Bjarna Benedikts-
son, formann Sjálfstæðisflokksins,
vegna málsins í gærkvöldi.
stigur@frettabladid.is
Ætlar ekki að hætta
Gunnar Birgisson hyggst ekki segja af sér sem bæjarstjóri í Kópavogi þrátt fyrir
áeggjan minnihlutans. Skýrsla um tugmilljónaviðskipti bæjarins við fyrirtæki í
eigu dóttur Gunnars leiðir margt misjafnt í ljós. Lög hafi jafnvel verið brotin.
SAMSTARF Í UPPNÁMI? Gunnar Birgisson telur sig blásaklausan í málinu og ætlar
ekki að hætta. „Þetta er mjög alvarlegt,“ segir Ómar Stefánsson, samstarfsmaður
hans í meirihlutanum, sem er brugðið vegna málsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ég tel mig ekki hafa gert
neitt rangt í þessu máli.
GUNNAR BIRGISSON
BÆJARSTJÓRI
LÖGREGLUMÁL Listi yfir fíkni-
efnaskuldir fannst í bíl brennu-
varga sem sitja í varðhaldi vegna
íkveikju á Kleppsvegi um liðna
helgi. Þetta kemur fram í gæslu-
varðhaldsúrskurði yfir einum
þeirra.
Þrír sitja í gæsluvarðhaldi
vegna málsins. Hæstiréttur stað-
festi í gær úrskurðinn yfir einum
þeirra. Hinir hafa ekki kært. Þeir
eru grunaðir um að hafa skvett
bensíni á húsið við Kleppsveg og
lagt eld að því, þannig að maður á
sextugsaldri sem var innandyra
hafi verið í töluverðri lífshættu.
Manninum tókst að forða sér úr
brennandi húsinu af eigin ramm-
leik en hann sakaði ekki. Húsið er
talið ónýtt.
Í úrskurðinum segir að lögreglu
hafi borist tilkynning klukkan
hálfníu að morgni laugardagsins
um ofsaakstur bíls, sem meðal
annars hafi verið ekið tvívegis
gegn rauðu ljósi. Þremur mínút-
um síðar hafi borist neyðarkall
frá manninum við Kleppsveg, sem
sagði nokkra karlmenn úr bílnum
hafa ruðst inn á sig. Þá hafi verið
kveikt í húsinu.
Í bílnum fannst „skuldalisti
merktur bifreiðasamtökum þar
sem finna [má] upplýsingar um
sölu og dreifingu fíkniefna“, segir
í úrskurðinum. Fólkið er grunað
um að hafa stefnt lífi mannsins
viljandi í voða með íkveikjunni.
Refsingin við brotinu er minnst
tvö ár – mest sextán. - sh
Brennuvargar á Kleppsvegi geta átt von á margra ára fangelsisvist:
Listi yfir fíkniefnaskuldir í bílnum
GJÖRÓNÝTT HÚS Hugsanlegt að brennu-
vargarnir hafi ætlað að innheimta
fíkniefnaskuld. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MENNING Poppminjasafnið í
Reykjanesbæ, sem upphaflega
átti að opna á Ljósanótt í ár verð-
ur ekki opnað fyrr en í fyrsta lagi
að ári.
„Hugmyndin var sú að safn-
ið fengi inni í Hljómahöllinni
sem er verið að byggja fyrir tón-
listarskólann Stapann og Popp-
minjasafnið, en fresta þurfti
framkvæmdum aðeins vegna
efnahagsástandsins,“ segir Sig-
rún Ásta Jónsdóttir, forstöðumað-
ur Byggðasafns Reykjanesbæjar,
sem vonar þó að framkvæmdum
ljúki á næsta ári.
- sg/sjá Landið mitt Reykjanes
Poppminjasafnið Reykjanesi:
Opnun frestað
minnst um ár
TRÚBROT Hljómsveitin spilar stóran þátt
í poppsögu landsins.
MYND/BJÖRN G. BJÖRNSSON
Vill sleppa hafnargjöldum
Landhelgisgæslan óskar eftir því að fá
að sleppa við að greiða hafnargjöld
þegar skip gæslunnar koma til Hafn-
arfjarðarhafnar. Afgreiðslu málsins var
frestað á síðasta fundi hafnarstjórnar.
LANDHELGISGÆSLAN
AFGANISTAN, AP Eitt barn lét lífið
og 54 manns særðust þegar hand-
sprengju var kastað inn á fjöl-
mennan markað í Afganistan í
gær. Þriðjungur hinna særðu eru
skólabörn.
Hópur bandarískra hermanna
var við markaðinn þegar spreng-
ingin varð. Lögregla á svæðinu
segir að verið sé að rannsaka
hver hafi kastað sprengjunni, en
fulltrúi frá menntamálaráðuneyt-
inu hefur sagt að hermennirnir
hafi kastað henni í átt að bíl sem í
var grunaður sjálfsmorðsárásar-
maður. Hvorki NATO né banda-
ríski herinn vildi tjá sig um málið
í gær. - þeb
Handsprengja í Afganistan:
Kastað inn í
hóp skólabarna
ÍSRAEL, AP George Mitchell, banda-
rískur sendifulltrúi í málefnum
Mið-Austurlanda, hefur hvatt til
þess að friðarviðræður á milli
Ísraela og Palestínumanna hefjist
á ný sem fyrst. Mitchell hitti helstu
ráðamenn í Ísrael í gær og í dag
mun hann hitta helstu ráðamenn
Palestínu.
Samskipti Ísraela og Bandaríkja-
manna eru sögð vera stirð eftir
ræðu Bandaríkjaforseta í Egypta-
landi í síðustu viku, þar sem hann
sagðist vilja nýtt upphaf á milli
Bandaríkjanna og múslimalanda.
- þeb
Mið-Austurlönd:
Hvetja til friðar-
viðræðna
Í JERÚSALEM George Mitchell og utan-
ríkisráðherra Ísraels, Avigdor Lieberman,
hittust í Ísrael í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Laugavegi líklega lokað
Á fundi umhverfis- og samgönguráðs
Reykjavíkur í gær var samþykkt að
vinna að því að leita samstarfs við
verslunareigendur um að loka Lauga-
vegi fyrir bílaumferð í sumar í sam-
starfi við menningar- og ferðamálaráð.
REYKJAVÍK
SPURNING DAGSINS