Fréttablaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 19
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
ÚTSALA
Opið mán. - fös. frá kl. 11:00 - 18:00
Laugardaga frá kl. 11:00 – 16:00
Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík,
sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
RIBbaldarnir hafa sett sér það
markmið að sigla að útskerjum
við Ísland sér til skemmtunar,
meðal annars til að gæða vitana
þar lífi. Ferðin í Þormóðssker var
liður í því verkefni. Nafn sitt dreg-
ur félagsskapurinn af þeirri teg-
und báta sem siglt er á. Þeir heita
á ensku RIB-bátar og eru harð-
botna slöngubátar, taldir mjög
öruggir í erfiðum sjó eins og oft
er við strendur þessa lands.
Einn RIBbaldanna er Ingólfur
Guðlaugsson. Hann hefur stofn-
að fyrirtækið Sea Safari og ætlar
að bjóða áhugsömum upp á ferð-
ir á slöngubátum þegar vel viðr-
ar hér við suðvesturhorn landsins.
Hann hefur fest kaup á tveimur
slíkum sem hvor um sig tekur tólf
farþega. „Þormóðssker er rómað
fyrir fegurð og því eftirsóknar-
verður staður að heimsækja,“
segir Ingólfur og lýsir útsýninu
þar nánar.
„Skerjagarðurinn norður
af skerinu og strandlengjan á
Mýrum er með ljósum sandi og
fallegum klettum. Þar er líka
fjölbreytt fuglalíf sem öllum ber
að umgangast með gætni og virð-
ingu,“ segir hann og bætir við að
algerlega óleyfilegt sé að taka þar
nytjar.
Hann segir söguna um hið
mannskæða slys út af Mýrunum
þegar Pourquoi Pas? fórst verka
sterkt þegar komið sé að vitan-
um sem reistur var í kjölfarið til
að varna slíkum áföllum. Ingólf-
ur nefnir líka siglingar að Eldey.
Þangað hyggst hann stefna á Jóns-
messu. „Við erum svona 40 mín-
útur og förum bara í góðu veðri.
Leggjum upp um klukkan tólf á
miðnætti frá Grindavík og sjáum
eyjuna baðaða morgunroða,“ segir
hann og hlakkar til.
Aðstaða Sea Safari er á Ægis-
garði. Þar er boðið upp á ýmiss
konar afþreyingu fyrir ferðahópa
á daginn og á kvöldin rómantískar
kvöldsiglingar inn eftir sundun-
um bláu. gun@frettabladid.is
Siglingar í útsker Íslands
og einnig um sundin blá
Hópur úr félagsskapnum RIBbaldar brá sér nýlega í Þormóðssker út af Mýrum. Hann merkti vitann og
skildi eftir lesefni um sögu hans en vitinn var reistur eftir að Pourquoi Pas? fórst þar í grennd 1936.
RIBbaldarnir kampakátir í Þormóðsskeri á hvítasunnudag. MYND/ÚR EINKASAFNI
NÝ SKILTI hafa verið sett upp við Hvannadals-
hnúk af Ferðafélagi Íslands með fulltingi Menning-
arsjóðs Visa Íslands. Á skiltunum eru leiðarlýsingar
af leiðinni á Hvannadalshnúk á tveimur tungumál-
um, auk helstu upplýsinga um öryggisþætti, búnað
og fleiri atriði sem ferðamenn varðar. www.fi.is