Fréttablaðið - 10.06.2009, Síða 19

Fréttablaðið - 10.06.2009, Síða 19
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir ÚTSALA Opið mán. - fös. frá kl. 11:00 - 18:00 Laugardaga frá kl. 11:00 – 16:00 Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 RIBbaldarnir hafa sett sér það markmið að sigla að útskerjum við Ísland sér til skemmtunar, meðal annars til að gæða vitana þar lífi. Ferðin í Þormóðssker var liður í því verkefni. Nafn sitt dreg- ur félagsskapurinn af þeirri teg- und báta sem siglt er á. Þeir heita á ensku RIB-bátar og eru harð- botna slöngubátar, taldir mjög öruggir í erfiðum sjó eins og oft er við strendur þessa lands. Einn RIBbaldanna er Ingólfur Guðlaugsson. Hann hefur stofn- að fyrirtækið Sea Safari og ætlar að bjóða áhugsömum upp á ferð- ir á slöngubátum þegar vel viðr- ar hér við suðvesturhorn landsins. Hann hefur fest kaup á tveimur slíkum sem hvor um sig tekur tólf farþega. „Þormóðssker er rómað fyrir fegurð og því eftirsóknar- verður staður að heimsækja,“ segir Ingólfur og lýsir útsýninu þar nánar. „Skerjagarðurinn norður af skerinu og strandlengjan á Mýrum er með ljósum sandi og fallegum klettum. Þar er líka fjölbreytt fuglalíf sem öllum ber að umgangast með gætni og virð- ingu,“ segir hann og bætir við að algerlega óleyfilegt sé að taka þar nytjar. Hann segir söguna um hið mannskæða slys út af Mýrunum þegar Pourquoi Pas? fórst verka sterkt þegar komið sé að vitan- um sem reistur var í kjölfarið til að varna slíkum áföllum. Ingólf- ur nefnir líka siglingar að Eldey. Þangað hyggst hann stefna á Jóns- messu. „Við erum svona 40 mín- útur og förum bara í góðu veðri. Leggjum upp um klukkan tólf á miðnætti frá Grindavík og sjáum eyjuna baðaða morgunroða,“ segir hann og hlakkar til. Aðstaða Sea Safari er á Ægis- garði. Þar er boðið upp á ýmiss konar afþreyingu fyrir ferðahópa á daginn og á kvöldin rómantískar kvöldsiglingar inn eftir sundun- um bláu. gun@frettabladid.is Siglingar í útsker Íslands og einnig um sundin blá Hópur úr félagsskapnum RIBbaldar brá sér nýlega í Þormóðssker út af Mýrum. Hann merkti vitann og skildi eftir lesefni um sögu hans en vitinn var reistur eftir að Pourquoi Pas? fórst þar í grennd 1936. RIBbaldarnir kampakátir í Þormóðsskeri á hvítasunnudag. MYND/ÚR EINKASAFNI NÝ SKILTI hafa verið sett upp við Hvannadals- hnúk af Ferðafélagi Íslands með fulltingi Menning- arsjóðs Visa Íslands. Á skiltunum eru leiðarlýsingar af leiðinni á Hvannadalshnúk á tveimur tungumál- um, auk helstu upplýsinga um öryggisþætti, búnað og fleiri atriði sem ferðamenn varðar. www.fi.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.