Fréttablaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 6
6 10. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Þrír karlmenn sitja
nú í gæsluvarðhaldi vegna gríðar-
lega umfangsmikils fíkniefnamáls
sem talið er teygja anga sína víða
um lönd. Lögreglan verst fregna af
því hvaða lönd rannsóknin varðar
á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Fyrsti maðurinn var handtekinn
eftir að hraðsending sem reynd-
ist innihalda nokkur kíló af hörð-
um fíkniefnum hafði borist hing-
að til lands.
Hann var handtekinn 22. maí og
úrskurðaður í gæsluvarðhald til
2. júní. Gæsluvarðhald var síðan
framlengt til 12. júní vegna rann-
sóknarhagsmuna.
Tveir karlmenn til viðbótar
hafa verið úrskurðaðir í gæslu-
varðhald til 19. júní, grunaðir um
aðild að skipulagningu á innflutn-
ingi á fíkniefnum til landsins auk
peningaþvættis. Þeir eru Ársæll
Snorrason, sem er á fimmtugs-
aldri, og Sigurður Ólason sem er
á sextugsaldri. Ársæll var raun-
ar handtekinn í fangelsinu á Litla-
Hrauni, þar sem hann afplánar nú
fimm ára dóm vegna BMW-málsins
svokallaða. Í því máli var reynt að
smygla til landsins fimmtán kílóum
af amfetamíni og tíu af hassi í bens-
íntanki BMW-bíls árið 2006. Ársæll
hafði áður verið dæmdur í fjögurra
ára fangelsi í Hollandi fyrir fíkni-
efnabrot.
Þriðji maðurinn sem situr nú í
gæsluvarðhaldi vegna málsins er
Sigurður Ólason. Hann var fyrir
nokkrum árum dæmdur í þriggja
ára fangelsi fyrir aðild sína að
smygli á þrjátíu kílóum af hassi.
Fjórði maður var einnig hand-
tekinn í aðgerðum lögreglunnar
en honum var sleppt að skýrslu-
töku lokinni.
Hvað þá þrjá menn varðar, sem
sitja í gæsluvarðhaldi nú, rannsak-
ar lögregla meðal annars hvort
tengsl séu milli þeirra og alþjóð-
legs glæpahrings, sem meðal ann-
ars hefur staðið fyrir fíkniefna-
smygli og öðrum umfangsmiklum
afbrotum.
Í aðgerð lögreglu í fyrradag
voru fimm menn handteknir og
ellefu húsleitir gerðar. Rannsókn
lögreglu er liður í rannsókn fleiri
landa og unnin í samvinnu við
tengslaskrifstofu Íslands hjá Eur-
opol. Hér á landi hafa lögreglu-
embættin á Suðurnesjum og toll-
yfirvöld komið að málinu.
jss@frettabladid.is
FÍKNIEFNI Mikið magn fíkniefna hefur verið tekið það sem af er árinu. Lögregla
rannsakar nú afar umfangsmikið mál sem talið er ná víða um lönd.
Dóp í hraðsendingu
hratt málinu af stað
Fíkniefni í kílóavís í hraðsendingu sem barst hingað til lands olli straumhvörf-
um í rannsókn gríðarmikils fíkniefnamáls. Þrír menn sitja í gæsluvarðhaldi.
Lögregla rannsakar meðal annars hvort tengsl séu við alþjóðlegan glæpahring.
LÖGREGLUMÁL Sigurði Ólasyni,
sem handtekinn var í fyrradag
vegna gruns um aðild hans að
stórfelldu fíkniefnasmygli og
peningaþvætti, hefur verið vikið
úr stjórn Vélasölunnar – R. Sig-
mundssonar. Þetta kemur fram í
yfirlýsingu frá fyrirtækinu.
„Rannsókn lögreglu beinist
ekki á nokkurn hátt að fyrirtæk-
inu heldur persónulegri starf-
semi mannsins sem hafði, líkt
og fleiri sjálfstætt starfandi ein-
staklingar, skrifstofu til afnota í
húsi fyrirtækisins,“ segir í yfir-
lýsingunni.
Enn fremur að Sigurður hafi
ekki haft afskipti af daglegum
rekstri né aðgang að sjóðum fyr-
irtækisins. - jss
Vélasalan R. Sigmundsson:
Vikið úr stjórn
„Þeir sem einblína á ESB loka augunum fyrir
öðrum leiðum. Veltum upp öllum kostum
og vöndum okkur við stórar ákvarðanir.“
Ákvörðun um ESB aðild má ekki taka út frá skammtímasjónar-
miðum. Það verður að horfa áratugi fram í tímann. Minnumst
þess að það var í krafti sjálfstæðis sem þjóðin bætti lífskjör
sín frá því að vera ein sú fátækasta í að verða ein sú ríkasta.
Hjálmar Gíslason, frumkvöðull
Margar lausnir
á hverjum vanda
Ertu sammála? Skráðu þig á heimssyn.is
Heimssýn
Hreyfing
sjálfstæðissinna
í Evrópumálum
NÁTTÚRA Umhverfisstofnun efndi
til opins fundar á Grand hóteli í
gær þar sem rætt var um útirækt-
un á erfðabreyttu byggi. Tilefnið
er að stofnunin hefur til meðferðar
umsókn frá ORF Líftækni hf. um að
hefja slíka ræktun í tilraunaskyni.
Í lok fundar var fulltrúum
Umhverfisstofnunar afhentur und-
irskriftalisti með um þúsund undir-
skriftum þar sem stofnunin er hvött
til að veita ekki leyfið. Almenningi
gefst tækifæri til að senda stofn-
uninni athugasemdir til 12. júní en
niðurstaðan mun líklegast liggja
fyrir hinn 16. júní.
„Sambærileg leyfi hafa verið
veitt í Evrópu undanfarin ár,“ segir
Björn Lárus Örvar, framkvæmda-
stjóri ORF. „Samkeppnisaðilar
okkar í Þýskalandi eru til að mynda
að rækta á nokkrum hekturum svo
það er mikill misskilningur að við
Íslendingar séum að ríða á vaðið í
þessum efnum líkt og heyrst hefur
í umræðunni.“
Meirihluti ráðgjafarnefndar um
erfðabreyttar lífverur hefur þegar
veitt umsókninni jákvæða umsögn
en tveir nefndarmenn voru því mót-
fallnir og skiluðu séráliti. Gunnar
Á. Gunnarsson er annar þeirra og í
séráliti sínu vísar hann meðal ann-
ars í stefnumörkun íslenskra stjórn-
valda um sjálfbæra þróun. Eva
Benediktsdóttir, formaður nefndar-
innar, segir hins vegar enga ástæðu
til að synja ORF um leyfið. - jse
Opinn fundur Umhverfisstofnunar um útiræktun á erfðabreyttu byggi:
Ráðgjafar skiptast í fylkingar
BJÖRN LÁRUS ÖRVAR Íslendingar eru
síður en svo fyrstir til að freista þess að
hefja útiræktun á byggi segir fram-
kvæmdastjóri ORF. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
UTANRÍKISMÁL Ráðherrar Norður-
landa minntust gjarnan á sam-
stöðu þjóðanna með Íslendingum
á blaðamannafundi í Reykjavík í
gær.
Norski ráðherrann var sá eini
sem sagði að gjaldeyrislán land-
anna væru tengd lausn Icesave-
deilunnar, en hinir sögðu svo ekki
vera að beinu leyti. Svíar leggja
hugsanlega lánveitingu sína fyrir
þingið á næstunni.
Alexander Stubb, utanríkis-
ráðherra Finnlands, var spurður
hvers vegna Norðurlöndin hefðu
gert samninga við AGS að skil-
yrði fyrir lánveitingu til Íslands og
hvernig það færi saman við yfir-
lýsta samstöðu með landinu.
„Ég sé ekki að það sé mótsögn
í þessu. Það er mjög mikilvægt
þegar veitt er lán að skilyrði fylgi
um hvernig það verði greitt til
baka og hvaða áhrif það hefur á
fjármálakerfið,“ sagði hann. Ísland
hafi þó notið trausts hinna þjóð-
anna. „Það er engin spurning um
það, en ríki eru ekki bankamenn
sem veita lán á forsendum laus-
legra loforða. Það þurfa að vera
sterkar tryggingar og því fleiri
því betra. Því er þetta ekki spurn-
ing um samstöðu heldur almenna
skynsemi,“ segir hann.
ESB-ráðherrarnir, frá Svíþjóð,
Danmörku og Finnlandi, lögðu
áherslu á að þeir styddu hugsan-
lega aðild Íslands að sambandinu.
Viðræður yrðu þó ekki auðveldar,
sagði Stubb. - kóþ
Krafa um aðkomu AGS var skynsamleg, segir utanríkisráðherra Finnlands:
Samstaða sögð með Íslandi
„ISLAND HAR VENNER“ Ráðherrarnir minntust ósjaldan á norræna samstöðu og virt-
ist afar vel fara á með þeim í gær. Utanríkisráðherra Finna mælti með því að Ísland
tryggði sér stuðning Þjóðverja, Breta og Frakka í aðildarviðræðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
KJÖRKASSINN
Hefurðu grillað síðan sumarið
gekk í garð?
Já 78%
Nei 22%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á Gunnar Birgisson að segja af
sér sem bæjarstjóri í Kópavogi?
Segðu skoðun þína á visir.is.