Fréttablaðið - 10.06.2009, Page 15
Græna
prentsmiðjan
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Miðvikudagur 10. júní 2009 – 23. tölublað – 5. árgangur
Mikið atvinnuleysi | Atvinnu-
leysi mældist 9,4 prósent í Banda-
ríkjunum í síðasta mánuði og
hefur það ekki verið meira í rúm
25 ár. Bandarískir fjölmiðlar
segja sérfræðinga nokkuð sam-
mála um að atvinnuleysi hafi náð
hámarki vestanhafs. Til saman-
burðar mældist atvinnuleysi hér
9,1 prósent í apríl.
Botninum náð | Vísbendingar
eru um að draga sé úr samdrætti
í hagkerfum heimsins, samkvæmt
nýjustu hagvísum Efnahags- og
framfarastofnunarinnar (OECD) í
apríl. Viðsnúnings gætir í stærstu
hagkerfum, svo sem í Kína og Ind-
landi auk jákvæðari vísbendinga
nú en í mars á evrusvæðinu.
Olíuverðið hækkar | Heims-
markaðsverð á hráolíu hefur
hækkað nokkuð jafnt síðasta mán-
uðinn, fór yfir sjötíu dali á tunnu
í síðustu viku. Þá hafði olíudrop-
inn ekki verið dýrari síðan í fyrra-
haust. Bandaríska dagblaðið New
York Times hefur eftir hagfræð-
ingum, að verðhækkunin kunni
að draga úr bata efnahagslífsins.
Forstjórinn kærður | Banda-
ríska fjármálaeftirlitið hefur
ákært Angelo Mozilo, fyrrver-
andi forstjóra bandaríska fast-
eignasjóðsins Countrywide Fin-
ancial, fyrir grun um brot, svo
sem innherjasvik. Countrywide
var umsvifamesti íbúðalánveit-
andi vestanhafs þar til það fór á
hliðina haustið 2007.
Krónan féll um 2,5 prósent þegar
verst lét fyrir hádegi í gær og
fór gengisvísitalan hæst í tæp
234 stig. Veikingin nam 0,93 pró-
sentum þegar yfir lauk og endaði
hún í 232,5 stigum í lok dags, sam-
kvæmt upplýsingum frá gjaldeyr-
isborði Íslandsbanka.
Væntanlegur vaxtagjalddagi
á ríkisbréfum upp á 70 millj-
arða króna að nafnvirði á föstu-
dag vegur þyngst í falli krónunn-
ar síðustu daga. Reiknað er með
um sex milljarða króna útstreymi
úr hirslum Seðlabankans í kjöl-
farið. Erlendir fjárfestar eiga um
fimm milljarða og muni á bilinu
2,5 til þrír milljarðar króna fara
úr landi.
Áhyggjur af mögulegri veik-
ingu krónunnar vegna gjalddag-
ans eru taldar hafa þrýst á um
aukin erlend vörukaup innlendra
birgja. Heimildarmenn Markaðar-
ins segja þó almennt lítil viðskipti
með krónur á gjaldeyrismarkaði
og því þurfi lítið til að hreyfa við
gengi krónunnar. Flestir búast við
veikingu hennar næstu daga.
- jab
Uggandi yfir
vaxtadegi
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
„Svona safn á náttúrlega ekki að geta vaxið svona
mikið á einu ári og gerir það sjálfsagt aldrei aftur,“
segir Marteinn Breki Helgason, forstöðumaður
eignastýringar MP Banka. Hann vísar þar til árs-
ávöxtunar fjárvörslusafna Tryggingarsjóðs inn-
stæðueigenda sem uxu um 51,3 prósent á árinu.
Eignir sjóðsins eru að mestu erlendar og skýrir því
fall krónunnar breytinguna að stærstum hluta.
Í frammistöðugreiningu Aska Capital á ávöxtun
í fjárvörslu fyrir Tryggingarsjóðinn og kynnt var
um leið og ársreikningur sjóðsins á föstudag kemur
fram að gengisvísitala krónunnar hækkaði um 80,3
prósent í fyrra. Í ársreikningi sjóðsins sem lagður
var fram fyrir helgi kemur fram að eignir hans hafi
farið úr 8,4 milljörðum króna í árslok 2007 í 16,5
milljarða í lok síðasta árs.
Ávöxtun eignasafna Tryggingarsjóðsins er tví-
skipt, annars vegar á hendi MP Banka og svo Nýja
Kaupþings. Þannig hefur hún verið frá ársbyrjun
2007 þegar MP Banki tók við ávöxtun helmings eign-
anna frá Landsbankanum eftir að sjóðurinn hafði
óskað eftir tilboðum í verkið. Töluverður munur er
á árangri Nýja Kaupþings og MP Banka í eigna-
stýringu fyrir sjóðinn. Sá síðarnefndi er með 8,4
prósenta umframávöxtun á árinu og heildarávöxt-
un upp á 61,8 prósent. Kaupþing er með neikvæða
umframávöxtun um 12,9 prósent og 40,5 prósenta
ávöxtun síns hluta.
Marteinn segir að eignastýring MP hafi í fyrra
brugðist við váboðum og í raun forðast íslenskar
eignir, enda hafi legið fyrir að krónan ætti eftir
að veikjast og því hagstætt að vera ekki með allar
sínar eignir hér. Hann áréttar hins vegar að mjög
stífar reglur gildi um ávöxtun eigna Tryggingar-
sjóðsins og miklar kvaðir sem þurfi að uppfylla.
Þannig heimilar fjárfestingarstefnan hvorki kaup
á innlendum hlutabréfum né skuldabréfum fyrir-
tækja. Innlend ríkisskuldabréf skulu vera 30 til 75
prósent af eignum sjóðsins, erlend ríkisskuldabréf
15 til 55 prósent og erlend hlutabréf núll til 15 pró-
sent. Þá verður vægi ríkisskuldabréfa að vera að
minnsta kosti 70 prósent af heildarsafninu. „Við
nýttum í rétta átt það svigrúm sem þessi stranga
stefna gaf,“ segir Marteinn og kveður MP hafa vilj-
að nýta eins og kostur var heimild til að fjárfesta í
erlendum ríkisskuldabréfum. „Annað sem við gerð-
um var að hafa hlutabréfaeign í algjöru lágmarki og
vorum á sama tíma yfirviktuð í verðtryggðum inn-
lendum ríkisskuldabréfum og líka í erlendum rík-
isskuldabréfum,“ segir hann.
Vignir Jónsson, hagfræðingur hjá Askar Capital,
segir að þótt nokkru hafi munað á ávöxtun Nýja
Kaupþings og MP Banka fyrir Tryggingarsjóðinn
í fyrra sé varhugavert að draga of miklar ályktan-
ir af því. „Horfa þarf á lengra tímabil en eitt ár til
að bera slíkt saman,“ segir hann, án þess að vilja
draga úr því að ávöxtun hafi verið býsna góð hjá
Tryggingarsjóðnum í fyrra. „Og má í raun segja að
fjárfestingarstefna sjóðsins hafi sannað gildi sitt í
fyrra. Þar miðar allt við að sjóðurinn fari í mjög
varkárar eignir.“
Eftir samruna við Ráðgjöf og efnahagsspár tóku
Askar við því verkefni að vinna með Tryggingar-
sjóðnum í að móta fjárfestingarstefnu og hafa eftir-
lit með þeim sem stýra eignum fyrir sjóðinn. „Svo
höfum við líka metið tilboð í eignastýringu og slíkt,“
bætir Vignir við.
Metávöxtun var á
Tryggingarsjóðnum
Fjárvörslusöfn Tryggingarsjóðs innstæðueigenda uxu um
51,3 prósent í fyrra. MP Banki stýrir helmingi safnsins.
KAUPÞING
Eignir Ávöxtun 2008 Viðmið
Innlend skuldabréf 24,6% +7,4%
Erlend skuldabréf 68,1% -39,7%
Erlend hlutabréf 2,1% -14,2%
MP BANKI
Eignir Ávöxtun 2008 Viðmið
Innlend skuldabréf 24,6% +7,4%
Erlend skuldabréf 149,6% +41,7%
Erlend hlutabréf 6,4% -9,9%
F R A M M I S T Ö Ð U G R E I N I N G
A S K A C A P I T A L
Færeyska olíuleitarfélagið Atlant-
ic Petroleum hefur framlengt brú-
arlán sem var á gjalddaga í lok
júlí og desember um eitt ár.
Ekki liggur fyrir um endan-
legan gjalddaga á lánunum en
það ræðst af því hvort fyrirtæk-
inu takist að endurfjármagna sig
þar til gjalddaginn rennur upp eða
gefa út nýtt hlutafé.
Haft er eftir Wilhelm Petersen,
forstjóra félagsins, í tilkynningu
að hann sé ánægður með áfang-
ann enda geri hann fyrirtækinu
kleift að halda áfram leit sinni að
olíu- og jarðgasi. - jab
Færeyingar
framlengja lán
Skýrsla Viðskiptaráðs
Hlúa þarf að litlum
og meðalstórum
fyrirtækjum 4-5
Gylfi Zoëga
Áætlun AGS
leið til batans
Guðmundur Arnar
Guðmundsson
Fyrirtæki og
langtímastefnur
2 6