Fréttablaðið - 10.06.2009, Qupperneq 16
MARKAÐURINN 10. JÚNÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
FYRIRTÆKJALAUSNIR VALITOR • Laugavegi 77 • 101 Reykjavík • Sími: 525 2080
fyrirt@valitor.is • www.valitor.is
Við bjóðum veflausnir og posa í erlendum gjaldmiðlum!
Þú getur selt erlendum ferðamönnum vörur og þjónustu í
erlendum gjaldmiðlum* og færð þá gert upp í sama gjaldmiðli.
*EUR, GBP, USD og DKK
Vika Frá ára mót um
Alfesca 0,0% 0,0%
Bakkavör 0,0% -54,6%
Eimskipafélagið 0,0% -20,0%
Föroya Bank 2,9% 1,2%
Icelandair 0,0% -65,4%
Marel -13,5% -29,9%
Össur 0,9% 7,8%
Úrvalsvísitalan OMXI15 269
Úrvalsvísitalan OMXI6 732
*Miðað við gengi í Kaup höll í gær.
G E N G I S Þ R Ó U N
„Við munum afgreiða heimild-
irnar eftir því sem ítarlegri gögn
skila sér,“ segir Tómas Örn Krist-
insson, framkvæmdastjóri pen-
ingamálasviðs Seðlabankans.
Seðlabankinn auglýsti snemma í
maí eftir því að fyrirtæki láti vita
af áhuga sínum vilji þau taka er-
lend lán í krónum en endurgreiða
í erlendum gjaldeyri til sjö ára.
Eitt skilyrða Seðlabankans fyrir
heimild til lántökunnar, sem yrði
í formi skuldabréfaútboðs, var að
fyrirtækið hafi fyrirsjáanlegar
tekjur í erlendum gjaldeyri sem
nægi til að standa skil á greiðsl-
um lánsins.
Bréf þessa efnis átti að senda
til bankans fyrir 11. maí síðast-
liðinn.
Að sögn Tómasar bárust Seðla-
bankanum 54 umsóknir um krón-
ulán sem þessi frá íslenskum fyr-
irtækjum. Seðlabankinn óskaði
eftir ítarlegri upplýsingum frá
fyrirtækjunum vegna málsins
og sendi forsvarsmönnum þeirra
bréf þessa efnis fyrir hálfum
mánuði.
Ekkert fyrirtæki hefur sent
Seðlabankanum ítarlegri upplýs-
ingar og því enginn kominn með
heimild til lántökunnar, að sögn
Tómasar. - jab
SEÐLABANKINN Ekkert fyrirtæki er enn
komið með heimild til að taka erlend lán í
íslenskum krónum. MARKAÐURINN/HEIÐA
Enginn með heimild til krónulána
Yfir stendur áreiðanleikamat
þar sem ráðgjafar og kröfuhaf-
ar gömlu bankanna hafa aðgang
að verðmati eigna og viðskipta-
áætlunum bankanna, samkvæmt
tilkynningu fjármálaráðuneyt-
isins. Í síðustu viku fóru fram
fyrstu samningafundir milli
fjármálaráðuneytis fyrir hönd
nýju bankanna og skilanefnda
gömlu bankanna.
„Á þessum samningafundum
voru lagðar fram fjárhagslegar
upplýsingar nýju bankanna, þar
með taldar tillögur um jöfnun-
argreiðslur milli nýju og gömlu
bankanna vegna yfirtekinna
eigna og skulda, fjármögnun
frá ríkinu og skoðun á verðmati
eigna bankanna framkvæmdu
af Deloitte,“ segir í tilkynningu
ráðuneytisins. Áréttað er mikil-
vægi þess að gætt verði fyllstu
sanngirni í samningaviðræð-
um við skilanefndir bankanna.
„Markmiðið er að ná samkomu-
lagi um jöfnunargreiðslur milli
nýju og gömlu bankanna og end-
urfjármagna nýju bankana á til-
tölulega stuttum tíma.“ - óká
Áreiðanleikamat á
virði eigna stendur yfir
Fyrstu samningafundir vegna uppskipta bankanna
fóru fram í síðustu viku. Nú er farið yfir gögn.
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
„Kostnaður af peningastefnu
Seðlabankans er gríðarlegur,“
segir Gylfi Zoëga, prófessor í hag-
fræði og nefndarmaður í peninga-
stefnunefnd Seðlabanka Íslands.
Hann flutti erindi undir yfir-
skriftinni „Hvað er Seðlabankinn
að hugsa?“ í þéttskipuðum fyrir-
lestrarsal á háskólatorgi Háskóla
Íslands í hádeginu í gær.
Þar kom fram í máli Gylfa að
ef reiknað væri með 10 prósent
meðalvöxtum á peningaeign út-
lendinga í landinu þá þýddi það
árlegan vaxtakostnað upp á 60
milljarða króna. Slíkt útstreymi
fjármagns væri til þess fallið að
veikja gengi krónunnar. Til sam-
anburðar benti hann á að verð-
mæti óunnins sjávarafla næmi
99 milljörðum króna. Gylfi segir
því um „dýrasta slugs Íslands-
sögunnar“ að ræða ef dregnar
eru lappirnar í endurskipulagn-
ingu bankakerfisins og öðrum
verkum sem klára þurfi til þess
að aðstæður skapist fyrir frekari
vaxtalækkun.
Gylfi segir miklu skipta að
byggja upp traust á ný á íslenskri
efnahagsstjórn, en það verði ekki
gert nema með því að sýna um-
heiminum með gjörðum okkar að
hér verði gripið til þeirra sárs-
aukafullu aðhaldsaðgerða sem
þörf er á til að treysta stoðir hag-
kerfisins. Hann blæs á gagnrýni
í þá veru að Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn (AGS) ráði hér för og
Seðlabankinn hafi „hlýtt“ sjóðn-
um í síðustu ákvörðun. „Allt er
þetta fullorðið fólk,“ segir Gylfi
og bendir á að samið hafi verið
við AGS um aðgerðaáætlun þar
sem fyrir liggi ákveðin markmið
og aðgerðir. „Samkomulagið snýst
um að grípa til nauðsynlegra að-
gerða,“ segir hann. Vissulega sé
hægt að slíta samningnum, en þá
verði að liggja fyrir einhver trú-
verðug áætlun önnur um hvern-
ig landið ætlar að vinna sig út úr
hruninu. „Við veljum hins vegar
að fylgja honum vegna þess að
þetta er skynsamleg stefna og
ekki verið að neyða okkur til
neins.“
Gylfi fór svo yfir þá þætti tengda
stýrivaxtaákvörðunum sem haft
geta áhrif á gengi krónunnar og
þætti sem setja þrýsting á gengi
hennar. Vexti hér segir hann hins
vegar þurfa að vera hærri en
annars staðar gerist, meðal ann-
ars vegna áhættu sem fjárfest-
ar tengi við landið og til þess að
freista þess að fá þá erlendu fjár-
festa sem hér eiga þegar peninga
til að festa þá í eignum á borð við
skuldabréf ríkisins til 10 eða 15
ára. „Veikur gjaldmiðill kallar á
hærri vexti,“ segir hann.
Trúverðug stefna í fjármálum
ríkisins segir Gylfi hins vegar
lykilþátt í að styrkja gengið,
enda verði aukið aðhald bæði til
að draga hér úr neyslu (sem spari
gjaldeyri) og auka traust á efna-
hagsstjórninni.
Upphlaup yfir lágri lækkun
stýrivaxta Seðlabankans í byrj-
un þessa mánaðar segir Gylfi
hins vegar vekja furðu, enda sé
hér ekki virkur bankamarkað-
ur. „Stýrivextirnir hafa aðallega
framtíðaráhrif þegar bankakerf-
ið kemst í lag,“ segir hann.
Áætlun AGS er
leiðin til batans
Gylfi Zoëga furðar sig á yfirlýsing-
um um stýrivexti. Þeir hafi helst áhrif
þegar bankakerfið hafi verið reist við.
Í HÁDEGINU Í GÆR Gylfi Zoëga prófessor segir umræðu síðustu daga illu heilli hafa
snúist um skyndilausnir og skammvinnan ábata í efnahagsmálum fremur en hluti sem
skipta máli. Hugmyndir um að festa gengi krónunnar segir hann „bara rugl“ enda eymdin
ein sem við tæki eftir að gjaldeyrisforða landsins hefði verið eytt í það. MARKAÐURINN/VILHELM
Líkur eru á að ríkisstjórn Lett-
lands takist að forðast 30 til 50
prósenta gengishrun latsins, gjald-
miðils Letta, með tíu prósenta nið-
urskurði í ríkisútgjöldum næstu
tvö ár. Þetta segir Beat Sigenth-
aler, sérfræðingur nýmarkaða hjá
TD Securities í London.
Beat bætir við að Evrópusam-
bandið hafi í fyrstu verið andsnúið
tillögum stjórnvalda og legið hafi
í loftinu að latið yrði jafnvel af-
tengt evrunni. ESB er nú sagt lík-
legra til að styðja aðgerðirnar og
ekki útilokað að Lettar leiti ásjár
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í kjöl-
farið. Sigenthaler mælir með að
fjárfestar sem hafi veðjað á frek-
ari veikingu latsins losi um stöð-
ur sínar. - jab
Lettar sveigja
frá hruni
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs
námu rúmum 2,5 milljörðum
króna í maí, samkvæmt yfirliti
sjóðsins. Þetta er ellefu prósenta
samdráttur á milli mánaða.
Þar af voru rúmir 1,8 milljarð-
ar króna vegna almennra lána og
rúmar 700 milljónir vegna leigu-
íbúðalána. Vanskil íbúðalána
námu 800 milljónum króna.
Heildarútlán á fyrstu fimm
mánuðum ársins námu tæpum
14,8 milljörðum króna, sem er
um 26 prósenta samdráttur á
milli ára, samkvæmt upplýsing-
um sjóðsins. - jab
Færri taka
íbúðalán