Fréttablaðið - 10.06.2009, Síða 20
10. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR2
FLUGDAGUR verður haldinn
á Flúðum í Hrunamannahreppi 13. júní. Er þetta í þriðja sinn
sem staðið er fyrir slíkri uppákomu. http://flugfrettir.123.is
Ingibjörg er dóttir Þuríðar Gísla-
dóttur frá Hnappavöllum sem
var ein af sex stúlkum er gengu
á Hnjúkinn í júlí 1937. Þær voru
þátttakendur í hópferð Ung-
mennafélags Öræfa og fyrstar
sinna kynsystra á þennan hæsta
tind landsins svo vitað sé.
Ingibjörg er kná kona sem
hefur stundað fjallgöngur í
fimmtán ár. Nú hefur hún þjálf-
að sig markvisst fyrir Öræfajök-
ulsgönguna frá því í febrúar með
Fjallkonum Íslands og oft lent í
misjöfnu veðri, jafnvel byl. Hún
segir afrek móður sinnar hafa
verið henni hvatningu. „Bræður
mínir grínast með að mamma hafi
skroppið upp á jökul eftir mjaltir
en ég þurfi hálft ár til að undirbúa
mig. Það er alveg rétt en hún var
líka hátt í fjörutíu árum yngri en
ég er núna,“ segir Ingibjörg glað-
lega og bætir við. „Ég ætlaði nú að
vera búin að þessu fyrir fimmtugt
en af því varð ekki.“
Fyrir nokkrum dögum hélt
Ingibjörg kaffiboð fyrir þær
fjórar konur sem eftir lifa úr
þeim 21 manns hópi Ungmenna-
félags Öræfa sem fyrr er getið.
Tvær þeirra sögðu blaðamanni
frá ferðinni fyrir 72 árum. Sigríð-
ur Eiríksdóttir úr Reykjavík sem
lagði upp á jökulinn frá Kvískerj-
um ásamt fimm systkinum þaðan
og Guðrún Jónsdóttir frá Fagur-
hólsmýri sem hélt uppá 15 ára
afmælið í ferðinni. „Nágranni
minn, Páll Björnsson sagði að
þetta væri langt og yrði dálít-
ið erfitt. Það var rétt en ég sótti
fast að fara,“ segir Guðrún. „Palli
varaði okkur líka við að ganga of
hratt í byrjun. „Þið endist ekki
ef þið gangið svona hratt,“ sagði
hann. Við lögum upp frá Fagur-
hólsmýri ásamt fleirum og hittum
hóp frá Hnappavöllum við jökul-
ræturnar.“
Heiðríkja var og logn allan dag-
inn sem hópurinn var á jöklinum
og Sigríður segir suma hafa sól-
brunnið illa. „Ég varð alveg ægi-
lega brún og sá litur fór ekki af
í marga mánuði,“ rifjar hún upp.
Þær muna vel eftir tignarlegu
útsýninu ofan af tindinum sem
þær svimaði hálfgert yfir. Líka
sigurtilfinningunni að göngu lok-
inni. gun@frettabladid.is
Hæsti tindurinn heillar
Nú undirbúa konur í tugavís göngu á Hvannadalshnjúk 19. júní. Þeirra á meðal er Ingibjörg H. Elíasdóttir
hjúkrunarfræðingur. Þar fetar hún í fótspor móður sinnar sem var í hópi fyrstu stúlkna þangað upp.
Blómarósirnar áðu neðan við Hnjúkinn í júlí 1937. Guðrún Jónsdóttir, Guðný Gísla-
dóttir fyrir miðju, aftan við hana Þuríður Gísladóttir, Sigríður Eiríksdóttir, Guðrún
Björnsdóttir og Þóra Stefánsdóttir. MYND/FLOSI BJÖRNSSON
Systurnar Þuríður og Guðný Gísladætur frá Hnappavöllum og aftan við þær, Guðrún Jónsdóttir frá Fagurhólsmýri og Sigríður
Eiríksdóttir úr Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Klæðnaðurinn nú er nokkuð annar en þegar mamma fór á Hnjúkinn. Þá gengu til
dæmis flestir í gúmmístígvélum,“ segir fjallkonan Ingibjörg sem á rósavettlinga með
flísfóðri. Hún hefur líka orðið sér úti um alpahúfu eins og Öræfastúlkurnar voru með.
HEILSA
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
SA