Fréttablaðið - 10.06.2009, Page 26
10. JÚNÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● landið mitt reykjanes
Unnið er að því hörðum höndum
að setja upp pláneturatleik um
Reykjanesið í tengslum við sýning-
una Orkuverið Jörð.
„Stöplarnir fyrir pláneturnar eru komn-
ir upp, en það á eftir að setja pláneturn-
ar á þá,“ segir Róbert Kjartansson, sýn-
ingarstjóri Orkuversins Jarðar, í tengsl-
um við svokallaðan pláneturatleik sem
verið er að setja upp. Eftirlíkingu af
plánetunum verður dreift um Reykja-
nes. Sólin er staðsett fyrir utan stöðvar-
hús Reykjanesvirkjunar og verða aðrar
plánetur í hlutfallslega réttri fjarlægð
frá sólinni. „Hægt verður að keyra á
milli plánetanna en hugmyndin er sú að
stilla reikistjörnunum upp svo að hægt
verði að fylgja þeim inn í Reykjanesbæ.
Ég geri ráð fyrir því að þær verði allar
komnar upp í sumar.“
Ratleikurinn er settur upp í tengsl-
um við sýninguna Orkuverið Jörð sem
er í stöðvarhúsi Reykjanesvirkjun-
ar. „Sýningin fjallar um orku. Það má
segja að henni sé skipt upp í fjóra hluta
og er byrjað á kenningunni um Mikla-
hvell. Þá er farið yfir í reikistjörnurnar
í sólkerfinu og þeim öllum stillt upp í
réttum stærðarhlutföllum. Næsti hluti
er saga mannsins og orkunnar saman,
allt frá því að við virkjum eldinn og
fram á okkar daga. Svo er það orku-
notkunin í heiminum. Þar er farið yfir
það hvaðan við fáum orkuna, hvort sem
það er úr jarðefnaeldsneyti, fallvötnum
eða jarðvarma. Síðasti hluti sýningar-
innar er virkjunin sjálf og orkufram-
leiðslan,“ útskýrir Róbert.
Þegar Róbert er spurður hvers
vegna ákveðið hafi verið að ráðast í
þetta verkefni segir hann að í raun-
inni hafi tækifærið bankað upp á.
„Það komu hingað tveir herramenn,
þeir Simon Hill frá Bretlandi og Björn
Björnsson frá List og sögu, með þá
hugmynd að setja upp þessa sýningu
og þá var miðað við orkutengda ferða-
þjónustu. Hugmyndin var að setja upp
þessa sýningu við hliðina á orkuverinu
sjálfu,“ segir Róbert og bætir við að
hægt sé að sjá inn í orkuverið frá sýn-
ingunni því einn veggur þess sé gerð-
ur úr gleri.
Róbert segir fólk á öllum aldri sækja
sýninguna heim. „Það eru ferðamenn
og mikið til Íslendingar sem koma
hingað. Ferðamönnum hefur fund-
ist ævintýralegt að koma hingað og
finnst frábært að halda sýninguna inni
í virkjun.“
- mmf
Sólkerfi á Reykjanesinu
Sýningin Orkuverið Jörð er í stöðvarhúsi Reykjanesvirkjunar. MYND/ÚR EINKASAFNI
Orkuverið Jörð fjallar um orku og er sýningunni skipt í fjóra hluta.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Farið er yfir orkunotkun í heiminum á sýningunni Orkuverið Jörð. MYND/ÚR EINKASAFNI
Á sýningunni er farið yfir reikistjörnurnar í sólkerfinu og þeim stillt
upp í réttum stærðarhlutföllum. MYND/ÚR EINKASAFNI
Sýningin Orkuverið Jörð þykir ævintýraleg og gestum hefur fundist
frábært að hún sé inni í virkjun. MYND/ÚR EINKASAFNI