Fréttablaðið - 10.06.2009, Page 49
MIÐVIKUDAGUR 10. júní 2009
Vinkonurnar og kattavinirn-
ir Magda María, Lárey Huld og
Thelma komu færandi hendi í
Kattholt í vikunni, en þær höfðu
staðið fyrir blómasölu og létu
ágóðann af henni renna til styrkt-
ar Kattholti. Stúlkurnar, sem allar
eru tíu ára, tíndu sjálfar blómin og
bjuggu til fallega vendi sem þær
seldu vegfarendum í Norðurmýr-
inni. Aðspurðar segjast þær vera
miklir kattavinir en því miður
séu foreldrar þeirra með ofnæmi
og því geti þær ekki haft ketti á
heimilinu.
Sigríður Heiðberg, forstjóri
Kattholts, segir að framlag vin-
kvennanna komi sér ákaflega
vel. „Það er fallegt af svona
ungum stúlkum að gefa af sér til
dýranna í Kattholti. Ég auglýsti
í fyrsta sinn eftir fóðri á vefsíð-
unni okkar um daginn og það var
ánægjulegt að sjá hversu margt
fólk var tilbúið að láta eitthvað af
hendi rakna. Það hjálpar okkur í
starfinu að vita af svona mörgum
dýravinum því nóg er til af hinu,“
segir Sigríður að lokum. - sm
Seldu blóm fyrir Kattholt
VINKONURNAR TÍNDU FALLEGA BLÓMVENDI og létu ágóðann af sölunni renna til
Kattholts. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Þeir hjá Emmessís voru að hugsa
um að gera eitthvað jákvætt og
efla íslenska framleiðslu,“ segir
Hrefna Hallgrímsdóttir leikkona
um nýjan Skoppu og Skrítlu-ís sem
er nú kominn á markaðinn. Hrefna
og Linda Ásgeirsdóttir, sem hafa
leikið Skoppu og Skrítlu um árabil,
voru staddar á veitingastað í janúar
þegar forstjóri Emmessís gaf sig á
tal við þær.
„Böðvar Þórisson sagði að þeir
hefðu velt þessari hugmynd fyrir
sér og þegar hann hitti okkur ákvað
hann að grípa tækifærið og tala við
okkur. Okkur fannst þetta náttúr-
lega frábær hugmynd og í gær varð
þetta að veruleika og ísinn leit dags-
ins ljós,“ útskýrir Hrefna. „Þetta
eru grænar og gular ávaxtastangir
en ekki ís því það eru svo mörg lítil
börn með mjólkuróþol og við vildum
ekki að neinn myndi missa af því að
borða Skoppu og Skrítlu-ísinn. Það
er ekkert aspartam í honum, sem
við erum mjög ánægðar með, því
þótt sykur sé nú ekki sérlega hollur
held ég að það sé betra en að fá sér
gervisætu,“ bætir hún við.
„Maður er vanur að kaupa ís með
erlendum vörumerkjum fyrir börn-
in sín svo okkur þykir þetta rosa-
lega skemmtilegt, ekki síst núna
þegar þjóðin er að reyna að standa
saman og velja íslenskt,“ segir
Hrefna og brosir. - ag
Skoppa og Skrítla fá eigin ís
ÍSINN SMAKKAÐUR Skoppa og Skrítla buðu krökkum á leikskólanum Undralandi
með sér í verksmiðju Emmessís til að smakka nýja ísinn, en leikskólinn fagnaði 22 ára
afmæli sínu í gær.
TILBOÐSDAGAR
N1.ISN1 Hjólbarðaþjónusta Fellsmúla
Sími 440 1322
í N1 Fellsmúla af völdum felgum dagana 10.–13. júní.
AFSLÁTTUR
30-80%
FÁÐU BETRA VERÐ
Í SAMBÍÓIN MEÐ
KORTINU
Bíómiðinn á 750 kr.
í öllum kvikmyndahúsum
Sambíóanna.
KOMIN Í BÍÓ
ALLIR VIÐSKIPTAVINIR FÁ T
VO MIÐA
Á GHOSTS OF GIRLFRIENDS
PAST *
*Á MEÐAN MIÐAR ENDA
ST
HJÁ GÁP FÆRÐU ALV
ÖRU
FJALLAHJÓL OG GÖT
UHJÓL
S: 5 200 200 | MÁN. - FÖS. KL.9-18. | LAU. KL.11-16