Fréttablaðið - 10.06.2009, Side 56

Fréttablaðið - 10.06.2009, Side 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Í dag er miðvikudagurinn 10. júní, 161. dagur ársins. 3.04 13.27 23.52 2.00 13.12 0.28 Í Grikklandi hinu forna voru eft-irmál ósigra býsna hörð en að sama skapi skýr. Þá voru ekki sett- ar saman samninganefndir sem skröfuðu á leynilegum fundum uns komin var flókin niðurstaða sem allir gætu sætt sig við … nema Íslendingar. EGÍAS Aþenukonungur fékk að kenna á þessu en honum sárnaði þegar Androgeos, sonur Mínósar Krítarkonungs, vann alla Aþeninga í fjölþrautakeppni sem haldin var í borginni. ÞETTA var vel gert hjá þér, prinsi, en viltu ekki prófa að etja kappi við Maraþon-nautið?“ sagði konungur- inn í hefndarhugleiðingum og And- rogeos var varla búinn að fallast á það þegar hann var kominn með hornið á Maraþon-nautinu í gegn- um sig. MÍNÓS konungur í Krít lét engan eiga neitt inni hjá sér, sennilega vegna þess að hann átti ekki krít- arkort, svo hann sagði Aþeningum stríð á hendur og gjörsigraði þá. Ekki lét hann þar við sitja heldur setti hann skatt á Aþeninga. Hann var þannig að hvert ár urðu þeir að láta af sjö piltum og sjö stúlk- um sem fara myndu í völundarhús- ið í Krít þar sem Mínótárus bjó og át allt sem að kjafti kom. Dedælus hafði hannað völundarhúsið örugg- lega með svipuðum hætti og snill- ingarnir okkar hönnuðu Icesave. Að minnsta kosti var engin undan- komuleið ef farið var inn. Mínótárus var í mannslíkama en með nautshöf- uð. Því fylgja óneitanlega nokkr- ir útlitsgallar svo Mínos ákvað að geyma hann í völundarhúsinu þar sem hann gæti gætt sér á Aþening- um í stað þess að hafa hann með allt á hornum sér í höllinni. ÞESSI hefndarskattur Mínósar kann að hljóma villimannslegur en hefði ég verið í samninganefnd- inni hans Svavars þá hefði ég haft hann til hliðsjónar. Ég hefði reynd- ar aldrei tímt að sjá af sjö íslensk- um stúlkum en það hefði vel komið til greina að senda sjö unga menn inn í rústirnar af Landsbankanum þar sem innstæðueigendur gætu beitt þá bolabrögðum. Ég hefði reynt að setja það sem skilyrði að þeir þyrftu ekki að vera svo ungir að árum heldur væri nóg að þeir hefðu sýnt af sér dýrkeyptan ung- æðishátt. Ég myndi meira að segja lofa Bretunum að þeir þyrftu ekki að borga farið undir þessa mennsku skattgreiðslu. Þessir sjömenningar eru hvort sem er enn þá, að ég held, flestir búsettir í dýrari hverfum Lundúnaborgar. Icesave á forngrísku Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74%

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.