Fréttablaðið - 10.08.2009, Page 2

Fréttablaðið - 10.08.2009, Page 2
2 10. ágúst 2009 MÁNUDAGUR NÝTT Á MATSEÐLI Lúffeng og holl Shawerma rúlla á aðeins 750kr. HOLLUR SKYNDIBITI ALI BABA Veltusund 3b, v.Ingólfstorg Shish Kebab, Falafel, Arais Makia, Kebab, Baklawa, Humus Sigurður, rann á konuna mataræði? „Nei, ég held að hún hafi bara viljað að börnin hennar myndu helga sig Helgu Sig.“ Hin fræga matreiðslubók Matur og drykk- ur eftir Helgu Sigurðardóttur hefur verið endurútgefin hjá bókaforlaginu Opnu. Ein kona keypti sjö eintök af bókinni. Sig- urður Svavarsson er einn eigenda Opnu. SPÁNN Tvær sprengjur sprungu í Palma, höfuð- borg Mallorca, í gærdag. Lögregla aftengdi þriðju sprengjuna. Enginn slasaðist í sprengingunum. Aðskilnaðarsamtökin ETA hafa lýst ábyrgðinni á sprengjunum á hendur sér. Önnur sprengjan sprakk á veitingastað við strönd- ina og hin í undirgöngum við aðaltorg borgarinnar. Varað var við báðum sprengjunum og var því búið að rýma bæði svæðin. Þriðja sprengjan var aftengd á bar. Leitað var um tíma að fjórðu sprengjunni, en engin sprengja til viðbótar fannst. Fyrr í gærdag lýstu ETA yfir ábyrgð á fjórum öðrum sprengjuárásum sem gerðar hafa verið í sumar. Þeirra á meðal er sprengjuárás á Mallorca í síðustu viku, þar sem tveir lögregluþjónar létu lífið. Engin íslensk ferðaskrifstofa selur ferðir til Palma. Nálægir bæir eru þó vinsælir hjá íslenskum ferðamönnum. Utanríkisráðuneytið hefur verið í sambandi við sendiráðið í Frakklandi, en ræðismað- ur fyrir Mallorca fellur undir það. Að minnsta kosti 825 manns hafa látið lífið af völdum ETA frá árinu 1968, þegar samtökin hófu að berjast með ofbeldisfullum hætti fyrir því að Baskahérað verði sjálfstætt ríki. - þeb Enginn slasaðist í tveimur sprengjuárásum á Mallorca í gær: ETA viðurkennir sprengjuárás TÓMLEGT Lögreglumaður stóð vaktina fyrir utan veitingastað- inn þar sem fyrsta sprengjan var sprengd í gær. Nærliggjandi svæði voru rýmd, þar á meðal ströndin. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BANGLADESH, AP Um sex þúsund manns deyja árlega af völdum snákabita í Bangladesh. Snáka- bit eru önnur algengasta dánaror- sökin af ónáttúrulegum orsökum í landinu. Drukknun er algeng- asta orsökin. Heilbrigðisráðuneyti lands- ins hefur látið rannsaka snáka- bit. Í ljós kom að um 700 þúsund manns eru bitnir af snákum á hverju ári, og aðeins þrjú prósent fá læknishjálp. Fimmtán prósent eru bitnir í svefni. Flestir eru bitnir á göngu á kvöldin. 160 milljónir manna búa í hinu fátæka Bangladesh. - þeb Rannsókn í Bangladesh: Þúsundir deyja úr snákabitum SNÁKUR Fimmtíu tegundir af snákum er að finna í Bangladesh. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ALÞINGI Þing kemur saman í dag eftir tveggja vikna þinghlé. Sam- kvæmt dagskrá á að kjósa í nýja Þingvallanefnd. Sex af sjö núver- andi nefndarmönnum eiga ekki lengur sæti á Alþingi. Nefndin hefur í raun ekki verið starfhæf vegna þessa frá því nýtt þing kom saman í byrjun sum- ars. Brýnt verkefni bíður nýrra nefndarmanna, enda eftir að ákveða hvað verður gert á reitn- um þar sem Hótel Valhöll stóð. Hlé var gert á þingfundum á meðan nefndir þingsins fjölluðu um frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave, en málið er enn óleyst. - bj Þingfundur boðaður í dag: Þingið kýs nýja Þingvallanefnd LÖGREGLUMÁL Lögreglumenn á höf- uðborgarsvæðinu hafa rætt það sín á milli að grípa til aðgerða gegn yfirstjórn embættisins ef ekki verður hætt við fyrirhugaðar skipu- lagsbreytingar sem taka eiga gildi 1. september. Mögulegar aðgerðir gætu til dæmis falist í því að neita að taka aukavaktir nema þeir verði beinlínis skyldaðir til þess og svara ekki í síma þegar þeir eru á frívökt- um. Fyrirhugaðar breytingar fela í sér að fimm hverfalögreglustöðvar sem þegar hefur verið komið á fót öðlast enn frekara sjálfstæði. Við þetta eru lögreglumenn afar ósátt- ir. Þeir segja að með breytingunni sé aukið við yfirbyggingu á kostn- að almennra lögreglumanna, sem sé skref aftur á bak. Þá á einnig að taka gildi nýtt vaktakerfi sem lögreglumenn hafa mótmælt harð- lega. Arinbjörn Snorrason, formað- ur Lögreglufélagsins í Reykjavík, segist hafa heyrt af því að menn séu farnir að ræða hvernig unnt sé að bregðast við. Lögreglumenn hafi ekki verkfallsrétt en annars konar aðgerðir hafi borið á góma. Hann segir félagið hins vegar ekki hvetja til slíkra aðgerða, heldur ein- beiti sér að því að þrýsta á að yfir- stjórn embættisins og ráðamenn sjái að sér og beiti sér fyrir því að af breytingunum verði ekki. Arinbjörn segir óánægjuna svo víðtæka að vantrausti hafi verið lýst yfir á störf Stefáns Eiríksson- ar lögreglustjóra, falli hann ekki frá áformunum um skipulagsbreyt- ingarnar. Þá hefur dómsmálaráðherra einnig gert lögreglu að skera niður og hefur mætt miklum mótbárum lögreglumanna, sem telja sig þegar allt of fáliðaða. Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglu- manna, hefur sagt að á höfuðborg- arsvæðinu einu þyrfti að tvöfalda mannskapinn ef vel ætti að vera. Arinbjörn bendir einnig á að væntanlegar breytingar í borg- inni séu í raun algerlega á skjön við hugmynd dómsmálaráðherra um skipulagsbreytingar á lögregl- unni, sem snúast um að gera land- ið allt að einu lögregluumdæmi, en starfshópur á vegum ráðuneytisins vinnur nú að því að móta þá tillögu. Í henni felist að auka miðstýringu og fækka í yfirstjórn og hún geti hugnast lögreglumönnum ágætlega ef um hana næst samstaða. stigur@frettabladid.is Lögreglumenn íhuga að grípa til aðgerða Lögreglumenn í borginni hafa rætt það sín á milli að grípa til aðgerða gegn yfirstjórn embættisins ef fyrirhugaðar skipulagsbreytingar verða að veruleika. Komið til tals að neita að taka aukavaktir og hætta að svara í síma á frívöktum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins úr lögreglunni hefur í þrígang á síð- ustu vikum verið brotist inn á heimili í borginni og húsráðendum ógnað, án þess að lögregla geti sinnt útkallinu. Í þessum tilfellum hefur ekki verið um rán að ræða, heldur hefur innbrotsþjófurinn talið sig geta athafnað sig í friði en síðan gengið í flasið á húsráðanda. Lögreglumenn hafa að undanförnu birt greinar í fjölmiðlum, bæði undir nafni og nafnlaust, þar sem þeir lýsa yfir miklum áhyggjum af fámenni í lögreglunni. KOMUST EKKI Í YFIRSTANDANDI INNBROT STAÐIÐ Í STRÖNGU Lögreglumenn hafa lýst því hversu mikið mótmælin í upphafi árs fengu á þá og fjölskyldur þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR BERJASPRETTA „Ég hef grun um að sprettan í ár sé seinni en í fyrra út af kuldakasti,“ segir Ásthild- ur Cecil Þórðardóttir, garðyrkju- stjóri á Ísafirði. Hún spáir því að berjasprettan verði góð í ár og segir rigning- una skipta sköp- um. „Það rign- ir vel núna, en þetta er óvenju- legur tími fyrir rigningar. Kuldinn gerir ekki mikinn skurk, en það skipt- ir máli hvort það rigni eða hvort það er þurrt. Svo þarf bara hita og sól eftir þessar rigningar og það mun gerast. Núna sýnist mér að það hafi verið svipað veður um allt land svo ég á alveg eins von á að þetta verði gjöfult berjaár. Fólk sem ég hef talað við hefur kíkt og séð mikið af sætukoppum og græn- jöxlum, svo ef það nær að þroskast verður mikið af berjum,“ útskýrir Ásthildur. Sjálf segist hún ekki vera byrj- uð að líta eftir berjum, en hún þarf ekki að leita lengra en út í garð hjá sér eða í hlíðina við heimili sitt þar sem hún tínir aðalbláber og kræki- ber. Aðspurð segist hún borða þau beint með rjóma, en lætur aðra um að sulta. „Ég er bæði með sólber og rifsber í garðinum hjá mér, en það koma gjarnan konur í heimsókn til mín sem fá að tína, sulta og gefa mér svo krukku,“ segir hún og brosir. - ag Ásthildur Cecil Þórðardóttir garðyrkjustjóri býst við gjöfulu berjaári: Berjasprettan seinni í ár en í fyrra PARAGVÆ Fyrirburi sem lækn- ar töldu andvana fæddan lifnaði óvænt við í eigin líkvöku nokkr- um klukkustundum eftir að lækn- ar á sjúkrahúsi í Paragvæ höfðu úrskuðað barnið látið. Faðir barnsins heyrði son sinn gráta í fyrsta sinn eftir að hann hafði verið lagður í kistu, að því er fram kemur á vef BBC. Foreldrarnir brugðust hratt við og komu syni sínum aftur á spítalann, þar sem furðu lostn- ir læknarnir tóku á móti honum. Talsmaður spítalans sagði lækna hafa reynt lífgunartilraunir í klukkustund áður en drengurinn hafi verið úrskurðaður látinn. - bj Læknar töldu fyrirbura látinn: Barnið grét í eigin líkvöku BRETLAND Mark Lester, góðvinur Michaels Jackson til margra ára, segist vera líffræðilegur faðir dóttur Jackson. Hann er reiðubú- inn að gangast undir faðernis- próf. Lester tjáði sig í gær og segist hafa gefið sæði. Hann er guð- faðir allra þriggja Jack- son-barnanna, en segir að eftir lát hans sé erfiðara fyrir hann að vera í sambandi við börnin. Því hafi hann gripið til þessa ráðs, því hann vilji halda sambandi sínu við þau. Máli sínu til stuðnings hefur Lester bent á að dætur hans séu sláandi líkar París, dóttur Jack- sons. Uri Geller, einn besti vinur Jacksons, tók undir sögu Lesters, og segir Jackson hafa sagt sér frá faðerninu fyrir löngu. - þeb Góðvinur Michaels Jackson: Segist vera pabbi Parísar MICHAEL JACKSON BLÁNAR YFIR BERJAMÓ Rigningin undanfarið hefur gert gæfumuninn fyrir berja- sprettuna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁNÁSTHILDUR CECIL ÞÓRÐARDÓTTIR VIÐSKIPTI Krafa Óttars Möllers, fyrrverandi forstjóra Eimskips, í þrotabú Straums er mun hærri en hún hefði átt að vera, segir Gísli Guðni Hall, lögmaður Óttars. Krafan er til komin vegna samn- ings um afnot af bíl og skrifstofu, ekki ógreiddra launa eða lífeyris. Gísli gerði fyrir hönd Óttars kröfu upp á tæplega 280 milljónir í þrotabúið. Hann segir kröfuna hafa verið lagða fram á síðustu stundu og hafa byggst á eigin áætlun. Rétt upphæð sé mun lægri, en auðveldara sé að lækka kröfu en hækka eftir að hún hefur verið lögð fram. - bj Lögmaður um kröfu Óttarrs: Krafa vegna hlunninda SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.