Fréttablaðið - 10.08.2009, Side 34

Fréttablaðið - 10.08.2009, Side 34
22 10. ágúst 2009 MÁNUDAGUR FH 2-4 KR 0-1 Björgólfur Takefusa (3.), 1-1 Atli Guðnason (6.), 2-1 Atli Guðnason (9.), 2-2 Gunnar Örn Jónsson (27.), 2-3 Gunnar Örn (68.), 2-4 Baldur Sigurðs- son (88.) Kaplakrikavöllur, áhorf.: 2218 Magnús Þórisson (4) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 9–9 (5–3) Varin skot Daði 1 – Hanson 2 Horn 6–4 Aukaspyrnur fengnar 9–15 Rangstöður 2–6 FH 4–3–3 Daði Lárusson 5 - Guðni Páll Kristj- ánsson 4 (52., Pétur Viðarsson 5), Dennis Siim 5, Tommy Nielsen 5, Hjörtur Logi Valgarðsson 6 - Davíð Þór Viðarsson 6, Matthías Vilhjálmsson 7, Tryggvi Guðmundsson 6 - Ólafur Páll Snorrason 5 (70., Björn Daníel Sverrisson 5), Atli Guðnason 7 (76., Alexander Toft Söderlund -), Atli Viðar Björnsson 6. KR 4–4–2 Andre Hansen 6 - Skúli Jón Friðgeirs- son 6, Mark Rutgers 6, Grétar Sigfinnur Sigurðarson 7, Jordao Diogo 8 - *Gunnar Örn Jónsson 9, Baldur Sigurðsson 7, Bjarni Guðjónsson 7, Atli Jóhannsson 7 (90., Ásgeir Örn Ólafsson -) - Guð- mundur Benediktsson 8 (78., Gunnar Kristjánsson -), Björgólfur Takefusa 8. FÓTBOLTI „Uppskera KR hér hefur verið mjög mögur undandarin ár. Við höfðum ekki unnið hér í fimmt- án ár og ég held að undir eðlileg- um kringumstæðum á undanförn- um árum hefði liðið brotnað við að lenda undir 2-1 gegn FH,“ sagði kampakátur Logi Ólafsson, þjálf- ari KR, eftir magnaðan sigur hans liðs á Íslandsmeisturum FH. „Við nýttum okkur Evrópukeppn- ina vel og erum betra lið núna en þegar við fórum inn í þessa keppni. Ég er mjög sáttur við niðurstöðuna í dag, ekki síst fyrir þær sakir að við spiluðum erfiðan Evrópuleik á fimmtudaginn og komum heim frá Basel í gær. Við nýttum tím- ann úti til að æfa og slaka á,“ sagði Logi. „Við erum að sýna fram á það að við ætlum okkur að minnsta kosti annað sætið. Ég hef ekki trú á neinu öðru en FH-ingar haldi áfram að vinna leiki.“ Leikurinn í gær stóð svo sannar- lega undir væntingum og vel rúm- lega það. Strax á þriðju mínútu leiksins kom fyrsta markið en það skoraði Björgólfur Takefusa eftir magnaða sendingu Guðmundar Benediktssonar. Björgólfur lék á Daða Lárusson áður en hann skor- aði í tómt markið. Eftir að hafa tekið forystuna hrundi leikur KR um tíma og það stóð ekki steinn yfir steini í spilamennsku liðsins. Það nýttu Íslandsmeistararnir sér og tóku forystuna með tveim- ur mörkum Atla Guðnasonar með stuttu millibili. Það fyrra eftir sendingu Atla Viðars Björnsson- ar og það síðara eftir undirbúning Matthíasar Vilhjálmssonar. Atli sýndi klókindi sín við fjærstöng- ina í báðum mörkunum. Mögnuð byrjun á leiknum og áfram hélt fjörið. KR átti að fá vítaspyrnu þegar Daði Lárusson hrinti Guðmundi Benediktssyni í teignum á átjándu mínútu en þrátt fyrir að vera vel staðsettur ákvað Magnús Þórisson á óskiljanlegan hátt að dæma ekkert. En KR-ingar náðu að jafna um tíu mínútum eftir þetta atvik. Gunnar Örn Jónsson fékk boltann við vítateigsendann og náði hörku- skoti sem söng í netinu. KR-ingar voru síðan hættulegri út hálfleik- inn en staðan jöfn 2-2 þegar flaut- að var til hálfleiks. Skemmtunin hélt áfram í seinni hálfleik og boðið var upp á fjölda færa og fallegra sókna. Matthías Vilhjálmsson átti skalla í stöng- ina áður en KR-ingar náðu for- ystunni á ný. Gunnar Örn skoraði sitt annað mark en boltinn hafði viðkomu í varnarmanni áður en hann söng í netinu. Undir lok leiks- ins innsiglaði Baldur Sigurðsson síðan sigur KR sem verður að telj- ast sanngjarn en Vesturbæjarlið- ið lék á als oddi í gær. Gunnar Örn lagði upp mark Baldurs og kórón- aði stjörnuleik sinn. Fyrir leikinn hafði FH unnið síðustu níu deildarleiki sína gegn KR en þá var þetta fyrsta tap FH á heimavelli á leiktíðinni. „Sem betur fer er þetta tilfinning sem við þekkjum ekki vel. En við verð- um að kunna að tapa líka. Þetta var skemmtilegur og opinn leikur þar sem það voru færi á báða bóga og þetta hefði getað dottið hvor- um megin sem var. Þeir voru bara ákveðnari í að sigra þetta í dag,“ sagði Tryggvi Guðmundsson, leik- maður FH. „Þeir eru mun betri núna en þegar við mættum þeim fyrr í sumar. Enda hefur liðinu gengið vel í bikar- og Evrópukeppni og það gefur þeim aukið sjálfstraust,“ sagði Tryggvi eftir þennan frá- bæra toppslag. elvargeir@365.is Fylkisvöllur, áhorf.: 883 Fylkir Stjarnan TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 12–10 (6–5) Varin skot Ólafur Þór 3 – Bjarni Þórður 4 Horn 7–6 Aukaspyrnur fengnar 17–16 Rangstöður 4–2 STJARNAN 4–5–1 Bjarni Þórður Halldór. 7 Jóhann Laxdal 5 Tryggvi Sv. Bjarnason 5 (58., Baldvin Sturlus. 5) Daníel Laxdal 7 Hafsteinn Rúnar Helg. 6 Arnar Már Björgvinss. 4 (74., Heiðar Atli Emil. -) Björn Pálsson 5 Guðni Rúnar Helgas. 6 Ellert Hreinsson 4 Halldór Orri Björnss. 7 Alfreð Elías Jóhannes. 4 (81., Bjarki Páll Eyst. -) *Maður leiksins FYLKIR 4–3–3 Ólafur Þór Gunnars. 7 Arnar Þór Úlfarsson 4 (39., Theódór Óskar.6) Einar Pétursson 6 Kristján Valdimarss. 6 Þórir Hannesson 5 Halldór Arnar Hilm. 4 (54., Pape Faye 5) *Ólafur Ingi Stígss. 7 Ásgeir Börkur Ásg. 6 Ingimundur Níels Ó. 7 (85., Kjartan Andri -) Albert Brynjar Ingas. 6 Kjartan Ág. Breiðdal 5 1-0 Ólafur Ingi Stígsson (41.), 1-1 Halldór Orri Björnsson (45.), 2-1 Albert Brynjar Ingason, víti (84.) 2-1 Kristinn Jakobsson (7) sport@frettabladid.is PEPSI-DEILD KARLA ÍBV-Fjölnir 3-1 0-1 Andri Valur Ívarsson (8.), 1-1 Viðar Örn Kjart ansson (11.), 2-1 Andri Ólafsson (20.), 3-1 Tony Mawejje (79.) Þróttur-Grindavík 1-5 0-1 Scott Ramsay (17.), 1-1 Oddur Ingi Guð mundsson (29.), 1-2 Óli Baldur Bjarnason (35.), 1-3 Scott Ramsay (83.), 1-4 Páll Guðmunds.(88.), 1-5 Jósef Kristinn Jósefsson (89.) Keflavík-Breiðablik 0-3 0-1 Kristinn Steindórsson (17.), 0-2 Árni Kristinn Gunnarsson (62.), 0-3 Alfreð Finnbogason (86.) STAÐAN Í DEILDINNI: FH 16 13 1 2 45-16 40 KR 15 9 3 3 34-20 30 Fylkir 16 9 2 5 26-17 29 Keflavík 16 6 6 4 25-29 24 Stjarnan 16 7 2 7 35-27 23 Fram 15 6 3 6 23-18 21 Breiðablik 16 6 3 7 24-27 21 Valur 16 6 2 8 19-29 20 Grindavík 15 5 3 7 24-29 18 ÍBV 15 5 2 8 18-26 17 Fjölnir 16 3 3 10 19-32 12 Þróttur 16 3 2 11 20-42 11 > Allt um leiki gærkvöldsins á Vísi Fréttablaðið minnir á að umfjöllun um alla leiki Pepsi- deildar karla má finna á íþróttavef Vísis. Fréttablaðið mun sem fyrr sinna leikjum deildarinnar af fremstu getu en á Vísi má finna umfjöllun, viðtöl, tölfræði og einkunnir leikmanna og dómara úr hverjum leik, skömmu eftir að þeim lýkur hverju sinni. Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins er einnig á Vísi en þar er öllum leikjum deild- arinnar lýst með beinni texta- og atburðalýsingu. FÓTBOLTI Fram lyfti sér upp fyrir Val í Pepsí-deildinni með góðum, 2-1, sigri á heimavelli Vals í gær- kvöld. Fá færi voru í fyrri hálf- leik þótt Valsmenn hafi þrisvar verið aðgangsharðir á síðasta korteri hálfleiksins eftir kraft- litlar upphafsmínútur. Valsmenn skoruðu fyrsta mark leiksins nánast upp úr þurru og virtust ætla að láta kné fylgja kviði næstu mínútur á eftir en Framarar nýttu sér það hve fram- arlega Valsmenn voru komnir og skoruðu laglegt mark fjórum mín- útum eftir mark Vals. Eftir það gekk hvorki né rak hjá Val í sóknarleiknum og Framarar náðu öllum völdum á vellinum og tryggðu sér verðskuldaðan sigur 21 mínútu fyrir leikslok. „Við erum að klára leikina og það var mjög gott að klára þetta í [gær] eftir að hafa lent undir,“ sagði kátur Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, eftir leikinn. „Strákarnir héldu ró sinni þrátt fyrir markið. Þeir héldu áfram og héldu færslu á liðinu. Þetta var frábær leikur hjá okkur.“ „Mér fannst við ekki spila eins vel og ég hefði viljað í fyrri hálf- leik. Menn lögðu sig fram en það voru of margar sendingar sem misfórust sem hefði mátt nýta betur því það var mikið pláss á miðjunni og tækifærin voru til staðar.“ „Það má ekki taka það af Val að þeir eru með gott lið og með marga frábæra einstaklinga sem geta klárað leikina upp á eigin spýtur,“ sagði Þorvaldur að lokum. Atli Eðvaldsson, þjálfari Vals, var vonsvikinn í leikslok. „Það var óþarfi að tapa þessu. Við þurfum að gera þrjár breytingar á skömmum tíma í seinni hálfleik og leikurinn riðlast mikið við það. Þá gefum við þeim mörk og það eru persónulegir feilar leikmanna sem verða til þess að mörkin eru skoruð.“ „Við þurfum að verja 1-0 stöðu okkar. Hræðslan við að hinir jafna verður svo mikil að við hættum að spila fótbolta,“ sagði Atli. - gmi Fram vann 2-1 sigur á Val í Reykjavíkurslagnum þrátt fyrir að lenda undir: Enn versnar staða Valsmanna KOMU TIL BAKA Framarar fagna hér jöfnunarmarkinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR „Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur hjá okkur þar sem Stjörnu- menn eru rétt fyrir neðan okkur í töflunni auk þess sem við þurftum að rífa okkur upp eftir mjög dapran leik í síðustu umferð. Þetta var hraður leikur og við hefðum ef til vill átt að skora meira en við gerðum í fyrri hálfleik en fyrst að sigurinn kom þá skiptir það minna máli núna,“ sagði Ólafur Ingi Stígsson, fyrirliði Fylkis, sem átti góðan leik í gærkvöld. Fylkismenn voru ívið sterkari aðilinn í fyrri hálfleik á Árbæjarvelli án þess þó að nýta marktækifæri sín framan af leik og það var ekki fyrr en á síð- ustu fimm mínútum hálfleiksins sem hlutirnir fóru að gerast. Fyrst skoraði Ólafur Ingi gott skallamark fyrir Fylki eftir hornspyrnu Ingi- mundar Níelsar Óskarssonar og svo náði Halldór Orri Björnsson að jafna leikinn með skoti af stuttu færi í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Lokamínúturnar voru hörkuspennandi og gríðarlegt jafnræði og barátta með liðunum. Stjörnumenn gerðu tilkall til vítaspyrnu þegar Alfreð Elías Jóhannsson féll í teignum en Kristinn kaus að flauta ekki en stuttu síðar dæmdi hann svo víti á Stjörnumenn þegar togað var í treyju Ásgeirs Barkar Ásgeirssonar. Albert Brynjar Ingason fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi og það reyndist sigurmark leiksins. „Ég átti nú sendinguna á Ásgeir og mér sýndist vera togað hressilega í hann og svo sleppt þannig að það er erfitt fyrir mig að dæma um það. Krist- inn var vel staðsettur í vítinu og dæmdi leikinn annars mjög vel,“ segir Ólafur Ingi. Fylkismenn styrktu stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum og hafa komið skemmtilega á óvart í sumar. „Við renndum dálítið blint inn í þetta mót og vissum ekkert almennilega hvar við myndum standa enda nokkuð um breyt- ingar á liðinu og stjórn þess. Við verðum bara að halda okkar striki áfram því það er enn nóg eftir af mótinu,“ segir Ólafur Ingi að lokum. ÓLAFUR INGI STÍGSSON FYRIRLIÐI FYLKIS: UNNU STJÖRNUMENN OG FYLGJA KR-INGUM EFTIR Við verðum bara að halda okkar striki áfram KR drap FH-grýluna með stæl Tvö efstu lið Pepsi-deildarinnar mættust í stórskemmtilegum leik í Kaplakrika í gær. Sex mörk litu dagsins ljós og hefðu þau vel getað orðið mun fleiri. KR-ingar minnkuðu forskot FH á toppnum niður í 10 stig. FJÖRUGUR LEIKUR KR-ingurinn Björg ólf- ur Takefusa í baráttunni við Tommy Nielsen hjá FH. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.