Samvinnan - 01.01.1944, Síða 7
SAMVINNAN
1. hefti JANÍJAR 1914 XXXVIII. árg.
JÓN AS JÓNSSON;
HIN NÝJA SAMVINNA
Á aðalfundi Sambandsins á Hólum í Hjaltadal í
sumar sem leið, bar ég fram tillögu um, að sambands-
stjórnin tæki til athugunar, hvort tiltækilegt væri að
stækka tímarit samvinnufélaganna til verulegra
muna og auka mjög fjölbreytni þess. Var tillögunni
vel tekið og hún samþykkt mótatkvæðalaust. Sam-
bandsstjórnin tók málið síðan til meðferðar á fundi
snemma í vetur og heimilaði að stækkun skyldi byrja
frá næstu áramótum.
*
Samvinnufélögin gáfu fyrst út tímarit sitt norður á
Akureyri, undir stjórn Sigurðar Jónssonar í Yzta-
felli. Var það tímarit hið prýðilegasta, eftir því sem
efni stóðu til. Birti ritið á þeim árum fjölmargar
greinar um samvinnumál og hagfræðileg efni. Auk
þess var tímaritið sá vettvangur, þar sem kaupfélags-
menn vörðu mál sín gegn ásókn samkeppnisblaðanna.
Aðstaðan var þá sú, að málsvarar samvinnustefn-
unnar áttu erfitt með að fá birtar greinar til varnar
kaupfélögunum, af því að flest blöðin voru meira eða
minna háð kaupmönnunum.
Síðan liðu mörg ár. Tímaritið kom á heimili helztu
áhugamanna kaupfélaganna, en náði ekki almennri
útbreiðslu. Kom þar að lokum, að nokkrir hinna
yngri kaupfélagsstjóra mæltu með að tímaritið yrði
látið koma oftar út, látið flytja mikið af myndum og
fremur stuttar og léttlæsilegar greinar. Var horfið að
þessu ráði. Breytingunni var vel tekið af kaupfélags-
mönnum. Var „Samvinnan“ prentuð í meir en þre-
földum eintakafjölda við það, sem tíðkaðist um flest
önnur tímarit í landinu. „Samvinnan“ var höfð
mjög ódýr og bar sig þó fremur vel, af því að kaup-
endur voru margir og innheimta í bezta lagi hjá ná-
lega öllum kaupfélögum landsins.
Það mátti vera öllum ljóst, að samvinnumenn
höfðu góða aðstöðu til að gefa út stórt og fjölbreynt
tímarit. „Samvinnan" hafði náð ótrúlega miklum
kaupendafjölda, en var of lítil til að geta haft nægi-
lega fjölbreytni. Hins vegar mátti byggja á feng-
inni reynslu. Mér þætti sennilegt, að á nokkrum
mánuðum mætti fullkomna svo hið gamla tímarit
samvinnumanna að það verði hið fjöldbreyttasta, fjöl-
keyptasta og fjöllesnasta íslenzkra tímarita. Hin
margþætta íslenzka samvinnuhreyfing þarf að sækja
fram með mikilli orku á sviði hinna andlegu mála.
íslenzku kaupfélögin mega ekki láta neinn þátt þjóð-
lífsins vera sér óviðkomandi. Auk þess er nú svo
kreppt að ýmsum þjóðlegum rithöfundum, að þeir
eiga tæplega aðgang að heppilegum málgögnum til
að birta kvæði, ritgerðir og smásögur. Hefir all-
mörgum slíkra manna orðið á að taka upp samstarf
við útgáfufyrirtæki kommúnista og flestir um leið
tapað þar sál sinni og framtíðarvonum. Kommúnist-
ar stafrækja nú að verulegu leyti fjögur tímarit, eitt
sem fylgir áróðursútgáfu flokksins, Rétt, Vinnuna og
Helgafell. Öll miða tímarit þessi, auk blaða og bóka
kommúnista, að því að læða inn í þjóðina ótrú á
sjálfri sér, atvinnu sinni, menningu og framtíð. Kom-
múnistar hafa málgögn sín svo mörg og í breytilegum
formum til að ná til sem allra flestra lesenda. Réttur
er gefinn út vegna eindreginna kommúnista. Vinnan
nær til verkamanna almennt, þar á meðal margra,
sem eru andvígir óþjóðlegri pólitík og byltingar-
áróðri, Helgafell á að vera fyrir atburðalítinn lýð,
'sem hefur asfaltið fyrir jörð og loft kaffihúsa fyrir
himinn.
Samkeppnismenn hafa ekki sýnt neina rögg á sér
með útgáfu tímarita til að fullnægja kröfum sinna
mannmörgu fylgisveita. Kaupmenn gefa út snoturt
tímarit, um þrengsta sérhagsmunamál stéttarinnar.
Auk þess má telja Eimreiðina á þeirra vegum, það sem
hún nær.
Stækkun Samvinnunnar er gerð til að bæta úr til-
finnanlegri vöntun. Samvinnufélögin eru svo fjöl-
lAUDSBClKASAFN
Aí Í.5B777
fSLANDS-
3