Samvinnan - 01.01.1944, Side 13
1. HEFTI
SAMVINNAN
leyti, að það var timtaurhús, samsett af miklum
fjölda sundurlausra timburstykkj a. Það reyndist því
mjög dýrt að reisa húsið og munu menn ekki gera
sér frekari vonir um þá tegund húsa. Það er því sýnt
af reynslu þeirra tveggja húsategunda, er að fram-
an getur, að þótt þau séu allmjög unnin í verksmiðj-
um áður en á byggingarstaðinn kemur, er skrefið of
stutt, sem stigið er frá venjulegri byggingaraðferð.
Það svarar ekki kostnaði.
Allt öðru máli er að gegna um ýmsar aðrar teg-
undir húsa, sem framleidd eru nú í stórum stíl í
verksmiðjum Ameríkumanna. Eins og sakir standa
eru hús þessi eingöngu framleidd fyrir herinn, her-
verkamenn og verksmiðjufólk þar í landi. Þau eru
gerð í stórum flekum, þannig, að heill eða hálfur
húsveggur myndar eina eining, gólfhluti, þakhluti
o. s. frv. Heilu íbúðarhúsi er þannig skipt niður í
fáar einingar, sem setja má saman á mjög einfaldan
hátt og tekur það aðeins nokkrar klukkustundir, ef
vanir menn eru að verki og húsgrunnurinn áður til-
búinn. Ef um er að ræða hluta af útvegg húss, er
oft þannig gengið frá honum í verksmiðjunni sjálfri,
að ytra og innra borð veggjarins er eins og það á
endanlega að vera og einangrun á sínum stað. Til
er þar einnig að öllum leiðslum sé komið fyrir í veggj -
um og tengjast þær þá að nokkru sjálfkrafa þegar
vegghlutarnir eru felldir saman.
Meira en tvö hundruð verksmiðjur vinna nú að
framleiðslu tilbúinna húsa í Bandaríkjunum einum
saman. Hver verksmiðja hefur sína aðferð og efnin,
sem notuð eru, eru mörg og margvísleg. Allmargar
af þessum verksmiðjum framleiða timburhús ekki
ólíkt því, sem Kaupfélag Reykjavíkur flutti hingað
og áður getur. Þær verksmiðjur eru eign gamalla og
voldugra timbursölufélaga, sem leggja höfuðáherzlu
á að koma framleiðsluvöru sinni, timbrinu, á mark-
aðinn í einhverri mynd, en hirða síður um að nota
önnur og aðfengin efni, þótt hentugri kunni að vera.
Aðrar eru fyrst og fremst húsaverksmiðjur. Þær fram-
leiða byggingaefni sín með það fyrir augum fyrst og
fremst, að þau fullnægi ætlunarverki sínu, eða þá
að þær kaupa þau af öðrum og fer það þá eftir því,
hve rík þau eru og voldug og hvað bezt þykir henta.
Mjög tíðkast það nú að tilbúin hús séu gerð úr
krossvið, og það jafnt ytra og innra borð. Þetta hefur
orðið mögulegt vegna mikilsverðra endurbóta í kross-
viðargerð. Áður var það hin veika hlið krossviðarins,
hve illa hann þoldi allan raka og gekk þá af lími.
Nú er hægt að líma hann svo traustlega að nota má
hann i skip eða báta og þolir hann þá vatn og veður
eins og eintrj áningur væri. Þynnur krossviðarins eru
þá límdar saman á þann hátt, að líminu er þrýst í
gegn um þær, en efni þess er gerfingur af því efni,
sem bindur saman viðarsellurnar sjálfar. Krossvið-
ur með þessa eiginleika er hið ákjósanlegasta bygg-
ingarefni; léttur, traustur og áferðarfagur.
Tilbúin hús í stórum flekum eða einingum voru
framleidd í Bandaríkjunum, Svíþjóð, Þýzkalandi og
Englandi löngu fyrir stríðið. Framleiðsla þeirra var
þó hvergi í mjög stórum stíl og hafði því enga veru-
lega þýðingu í byggingarmálum þessara þjóða. Nú
hefur styrjöldin opnað margar nýjar leiðir í fram-
leiðslu þessara húsa, og hún hefur breytt henni í stór-
framleiðslu svo afkastamikla, að til eru einstakar
verksmiðjur, sem skila frá sér fullgerðum samstæðum í
heilt íbúðarhús einu sinni á hverjum 40 mínútum
sólarhringsins.
Flest eru hin tilbúnu hús fremur lítil. Þau eru
stríðsframleiðsla, þar sem allt verður að spara, sem
ekki er nauðsynlegt. En framleiðendur þeirra hafa
opin augu fyrir framtíðinni og þeir vilja ógjarnan
þurfa að loka verksmiðjum sínum, þótt stríðinu ljúki.
Það er líka fullvíst, að þörf fyrir byggingar verður
geysimikil í stríðslokin, og ef athafnamáttur þjóð-
anna verður ekki algjörlega til þurrðar genginn, þá
er þar stórfelt verkefni fyrir höndum. Sagt er að
ýmsir amerískir verksmiðjuhöldar, er nú vinna að
stríðsframleiðslu, hugsi sér einnig til hreyfings í húsa-
gerð eftir stríðið. Meðal þeirra er Henry Kaiser,
skipasmiðurinn frægi, sem kollvarpaði öllum venju-
legum hugmyndum um skipaframleiðslu og byggði
skipin svo ört, að Þjóðverjar gátu ekki keppt við
hann um að sökkva þeim.
Ýmislegt það, sem áunnizt hefur í hraða við bygg-
Frá smídi hússins í verksmiðjunni.
Húsiö flutt til byggingarstaðarins.
9