Samvinnan - 01.01.1944, Síða 22
SAMVINNAN
1. HEFTI
VERKIN TALA
Samvinnan mun framvegis flytja í hverju hefti sýnishorn af erlendri list, byggingum, höggmyndum og mál-
verkum, með örstuttum skýringum. Vegna aðstöðu og efnisleysis hefur listgáfa islenzku þjóðarinnar á liðn-
um öldum brotið sér farveg í orðsins list, enda hefur þar náðzt mikill og glœsilegur árangur. Nú eru kringum-
stœður breyttar. íslendingar eru nú byrjaðir að leggja stund á nálega allar greinar skapandi lista, en hafa víða
á litlu að byggja, sem vonlegt er. Tilgangurinn með því að birta um langt skeið myndir úr þróunarsögu nokk-
urra listgreina, er sá að gefa mönnum, sem ekki eiga völ annarra úrrœða, ofurlitla útsýn um þá miklu feg-
urðarauðlegð, sem mannkynið hefur eignast á þessum vettvangi siðustu 6000 árin, svo að ekki sé lengra rakið.