Fréttablaðið - 19.08.2009, Blaðsíða 2
2 19. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR
ALVÖRU SÁLFRÆÐITRYLLIR
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
www.bjartur.is
Ný stjarna á himni
reyfarahöfunda
Þýðandi: Bjarni Jónsson
BEINT Í
3. SÆTI
METSÖLULISTA
EYMUNDSSON
D
Y
N
A
M
O
D
Y
N
A
M
O
M
R
E
Y
K
J
R
E
Y
K
JA
V
A
V
AA
ÍKÍ
Birna, munuð þið kenna tungl-
tangó?
„Það verður alla vega engin sólar-
samba.“
Dansskóli Birnu Björnsdóttur mun bjóða
upp á námskeið í Michael Jackson-döns-
um í haust.
VIÐSKIPTI Aðstandendur bekkjar-
móts 1963-árgangs Hólabrekku-
skóla þurfa að greiða leyfisgjald
til STEF vegna tónlistarflutnings í
veislunni. Skólamótið verður hald-
ið 5. september næstkomandi og
var aðstandendum sent bréf þar
sem þeir voru minntir á leyfis-
gjald STEF, vegna auglýsingar sem
birtist í Fréttablaðinu 12. ágúst.
„Við heimilum flutning tónlistar
gegn greiðslu. Þetta er alveg eins
samkoma og allar aðrar samkom-
ur í mínum augum þó að umræðu-
efnið sé gamlir og góðir skóladag-
ar, sem er í sjálfu sér ágætt,“ segir
Gunnar Stefánsson, innheimtu-
stjóri STEF.
Leyfisgjald STEF fer eftir gjald-
skrá. Ef innan við 100 manns mæta
er gjaldið 4.134 krónur. Einnig eru
tekin fjögur prósent af miðagjaldi.
Miðaverð á bekkjarmótið er 2.500
krónur og tekur STEF því 165
krónur á hvern miða.
„Ef tónlist er leikin af hljóðrit-
uðum diskum ber einnig að greiða
til SFH [Sambands flytjenda og
hljómplötuframleiðenda],“ segir
Gunnar. Það gjald er sextíu prósent
af álagi STEF-gjalda, sem myndi
þýða 2.480 krónur. Ef nákvæmlega
100 manns mæta og spiluð verð-
ur tónlist af geisladiskum nemur
leyfisgjaldið 23.114 krónum. Tekur
Gunnar fram að ekki sé um einka-
samkomu í heimahúsi að ræða, en
þær samkomur eru ekki skyldar til
að greiða leyfisgjald STEF. - vsp
Forsvarsmenn STEF rukka fyrrverandi nemendur Hólabrekkuskóla:
STEF-gjöld fyrir bekkjarmót
SLYS Banaslys varð á Þingvalla-
vegi skammt frá Kárastöðum í
fyrrakvöld.
Tildrög slyssins voru þau að
maður á bifhjóli missti stjórn á
hjólinu með þeim afleiðingum
að hann ók út af veginum. Sam-
ferðamenn hans tilkynntu strax
um slysið. Var maðurinn, sem var
á fimmtugsaldri, fluttur á slysa-
deild Landsspítalans þar sem
hann var úrskurðaður látinn. - vsp
Banaslys á Þingvöllum:
Missti stjórn
á bifhjóli
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
gefið út ákæru á hendur Catalinu
Mikue Ncoco fyrir meiri háttar
fíkniefnabrot og fyrir að bíta lög-
reglumann í bakið.
Talið er að Ncoco, sem er
íslenskur ríkisborgari en ættuð
frá Miðbaugs-Gíneu, hafi skipu-
lagt innflutning á rúmlega 400
grömmum á kókaíni. Tvær konur
sem báru fíkniefnin innvort-
is voru stöðvaðar við komuna til
landsins í apríl.
Ncoco er einnig grunuð um að
hafa milligöngu um vændi, en
ekki er ákært fyrir þann hluta
rannsóknarinnar.
- bj
Catalina Mikue Ncoco:
Ákærð fyrir eit-
urlyfjasmygl
ORKA Á svæðinu í kringum fjallið
Kuannersuit á Suður-Grænlandi
má finna einn heimsins mesta
forða af geislavirka efninu þóríni.
Orkan þar jafnast á við allar
heimsins olíubirgðir, segir jarð-
fræðiprófessorinn Henning Sør-
ensen í viðtali við grænlenska
ríkisútvarpið.
Sørensen hefur verið viðloðandi
jarðfræðirannsóknir í Narsaq
síðan á sjötta áratugnum og telur
að yrði unnið úr jörðu þar mætti
jafnvel finna tífalt meira magn en
vitað er um nú.
Hvenær hægt verður að nýta
efnið er önnur saga, því enn vant-
ar nokkuð upp á tækniþekkingu
til þess. - kóþ
Geislavirka efnið þórín:
Orkan á Græn-
landi meiri en
öll olía í heimi
VIÐSKIPTI Slitastjórn Kaupþings
hefur ráðið endurskoðunarfyrir-
tækið PricewaterhouseCoopers
(PwC) til að rannsaka ýmsar
ráðstafanir bankans áður en
hann fór í þrot síðastliðið haust.
Fram kemur í tilkynningu
frá slitastjórninni að sérstök
áhersla verði lögð á að kanna
möguleika á riftun samninga
þrotamanna. Þá verði viðskipti
við nákomna aðila, stærstu hlut-
hafa, stjórnendur og aðra, einn-
ig undir smásjánni.
- bj
PwC rannsakar Kaupþing:
Skoða riftun
samninga
BORGARMÁL Ný og glæsileg renni-
braut var opnuð í Laugardalslaug
í gær, í tilefni af 223 ára afmæli
Reykjavíkurborgar. Kjartan
Magnússon, formaður íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur, opn-
aði brautina en í gær voru liðin
25 ár síðan fyrri rennibrautin
var tekin í notkun. Sú braut hafði
verið lokuð frá því í fyrrasumar.
Eftir útboð á verkinu í vor var
ákveðið að ganga til samninga
við Sporttæki ehf. um kaup á
rennibraut frá Mazur í Póllandi.
Brautin er 80 metra löng, lokuð
alla leið og með ljósastýringu í
hluta brautarinnar. - vsp
223 ára afmæli Reykjavíkur:
Ný rennibraut í
Laugardalslaug
BRAUTIN VÍGÐ Fyrsti sundlaugargestur-
inn rennir sér í brautinni eftir vígslu frá
Kjartani Magnússyni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓREFNAHAGSMÁL Frá því að neyðar-
lögin voru sett síðasta haust hefur
legið fyrir að það myndi reyna á
lögmæti ýmissa aðgerða sem farið
var í fyrir dómstólum, segir Gylfi
Magnússon viðskiptaráðherra.
Hann segist „anda með nefinu“
yfir þeim tíðind-
um, sem frétta-
miðlar greindu
frá í gær, að
lögfræðistofan
Norton-Rose
segði að ein-
hverjir hefðu nú
þegar hafið mál
gegn íslenska
ríkinu og að allt
að sextíu erlendar fjármálastofnan-
ir gætu gert slíkt sama. Gylfi segir
alltaf hafa verið gert ráð fyrir
þessu.
„Enda hafa menn legið yfir stöðu
íslenska ríkisins í þessum málum.
En við höfum reynt hvað við getum
að ná samningum frekar en að láta
menn útkljá mál sín fyrir dómstól-
um og ég tel að það hafi tekist í
ýmsum mikilvægum álitamálum,
þótt það sé örugglega ekki raunin
í þeim öllum.“
Ráðherrann minnir á að með
„þeirri lausn sem fundin var varð-
andi Íslandsbanka og Kaupþing [um
að erlendir kröfuhafar eignist þá
þegar gömlu bankarnir verða tekn-
ir yfir] ætti að vera hægt að kom-
ast hjá því að kljást fyrir dómstól-
um um það hvernig staðið var að
mati á eignunum sem fóru á milli
gömlu og nýju bankanna“. Þetta
hafi verið „eitt af því sem hefði ella
nær örugglega endað að einhverju
marki fyrir dómstólum“.
Hins vegar sé fyrirsjáanlegt
að höfðað verði mál út af öðrum
málum. Þá verði tekið á því.
„En það má nú líka hafa í huga
að lögfræðifyrirtæki beita ýmsum
aðferðum til að ná fram hagstæð-
ari samningum fyrir sína umbjóð-
endur, meðal annars hótunum um
málsóknir. Ég lít nú á þessa undar-
legu skoðanakönnun Norton-Rose
svolítið í því ljósi. Þetta er frekar
samningatækni en eitthvað annað,
þótt ég dragi ekki í efa að þeir séu
fulltrúar fyrir marga sem gætu
hugsað sér að fara í mál,“ segir
Gylfi.
Hvernig kemur það heim og
saman að ríkið hafi reynt að ná
samningum við sem flesta, ef allt
að sextíu bankar eru að íhuga að
höfða mál gegn íslenska ríkinu?
„Það er nú fljótt að koma, því
það eru oft margir sem eiga kröf-
ur á einstök fyrirtæki og auðvit-
að margir sem telja sig hafa orðið
fyrir tjóni út af neyðarlögunum. En
það þarf ekki að segja mikið um
líkurnar á því að kröfur þeirra nái
fram að ganga, þótt einhverjir tugir
íhugi málssókn,“ segir Gylfi.
Spurður hvort líklegt sé að
neyðarlögin standist, segir Gylfi
það „ótvírætt mat“ þeirra lögfræð-
inga, sem hafa skoðað þau fyrir
íslenska ríkið, að svo sé.
klemens@frettabladid.is
Ráðherra rólegur í
skugga málshöfðana
Viðskiptaráðherra kippir sér ekki mikið upp við fréttir af hugsanlegum mál-
sóknum allt að sextíu erlendra banka gegn ríkinu. Hættan hafi legið fyrir lengi.
„Ótvírætt mat“ að neyðarlög standist. Reynt að ná samningum við kröfuhafa.
GYLFI MAGNÚSSON
6. OKTÓBER 2008 Erlendir kröfuhafar efast margir um neyðarlögin sem sett voru
í bankahruninu, þau mismuni kröfuhöfum eftir þjóðerni. Viðskiptaráðherra segist
anda með nefinu yfir þessu. Ótvírætt mat lögfræðinga sé að þau standist. Myndin
sýnir þegar höfuðstöðvum Landsbankans var lokað 6. október síðastliðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BEKKJARMÓT Auglýsingin birtist í Frétta-
blaðinu 12. ágúst og í kjölfarið rukkaði
STEF aðstendur mótsins.
UTANRÍKISMÁL Ísland verður fyrsta bandalags-
ríki Atlantshafsbandalagsins (NATO) sem nýr
framkvæmdastjóri bandalagsins, Anders Fogh
Rasmussen, sækir heim.
Rasmussen mun koma hingað til lands á morgun,
og funda með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráð-
herra og Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra.
Þá mun Rasmussen eiga fund með utanríkismála-
nefnd Alþingis og hitta forseta Alþingis.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra
segir að hann muni eflaust taka upp ýmis hugð-
arefni íslenskra stjórnvalda á fundi sínum með
Rasmussen, til dæmis loftrýmisgæslu bandalags-
þjóða hér á landi.
„Mér hefur fundist loftrýmisgæslan hafa tekist
vel,“ segir Össur. Gæslan sé hluti af stefnu landsins
í öryggismálum. Því tengt hyggist hann ræða hug-
myndir um samnorrænt loftrýmiseftirlit.
Össur mun einnig ræða áherslur Íslands vegna
mótunar framtíðarstefnu NATO, og ræða áherslur
bandalagsins á norðurslóðum.
Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðu-
neytinu átti Rasmussen frumkvæði að heimsókn-
inni hingað til lands. Hann stefnir á að heimsækja
bandalagsríkin, eins og nýir framkvæmdastjórar
hafa gert, en ekki er ljóst hvers vegna Ísland er
fyrst í röðinni.
Rasmussen hefur þegar ferðast til Afganistans og
Kósóvó, þar sem bandalagsríki eru með herafla. - bj
Utanríkisráðherra mun ræða loftrýmisgæslu við nýjan framkvæmdastjóra NATO:
Sækir Ísland heim á morgun
HEIMSÓKN Anders Fogh Rasmussen, nýr framkvæmdastjóri
NATO, mun hitta forsætisráðherra, utanríkisráðherra og utan-
ríkismálanefnd á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Byssumaður myrti þrjá
Þrír létust og einn særðist eftir að
maður skaut á gangandi vegfar-
endur frá heimili sínu í smábænum
Schwalmtal, nálægt Dusseldorf.
Maðurinn er að skilja við konu sína.
ÞÝSKALAND
SPURNING DAGSINS