Fréttablaðið - 19.08.2009, Síða 16
19. ágúst
2009
4
6. FERNANDO OG HUMB-
ERTO CAMPANA
er bræður frá Sao
Paulo í Brasilíu.
Þeir eru þekktir
fyrir stóla
sína sem oft
líkjast fremur
listaverkum eða
skúlptúrum. Þeir hafa til
dæmis búið til stóla úr
haug af böngsum.
10. KONSTANTIN GRCIC
er fæddur í München í Þýskalandi. Hann er með meistara-
gráðu í húsgagnahönnun frá Konunglega listaháskólanum
í London. Grcic bætir venjulega hluti og gerir þá fallegri og
auðveldari í notkun.
9. SHAI AGASSI
er fæddur í Ísrael. Hans
helsta markmið í lífinu er að
koma rafmagnsbílnum á framfæri í bílaiðnaðinum. Hann
rekur fyrirtækið Better Place og vill breyta bensínstöðvum
í rafhleðslustöðvar. Hugmyndir hans er nú verið að prófa í
Kaupmannahöfn, Ísrael og á Hawaii.
7. SAM HECHT OG KIM COLIN
eru breskt hönnunarteymi sem rekur
hönnunarfyrirtækið Industry Facility.
Þau hafa hannað muni fyrir MUJI,
hönnuðu Micro-eldhús fyrir Whirlpool
og FlexLamp fyrir Droog.
5. HELLA JONGERIUS
er hollensk og hefur
hannað fyrir fjölda
fyrirtækja, allt frá Ikea til
Vitra. Hún notar klassísk
hollensk húsgögn sem
undirstöðu í nútímahönn-
un. Verk hennar hafa verið
til sýnis í söfnum og galleríum,
til dæmis í MoMA í New York og
hönnunarsafninu í London.
3. NAOTO FUKASAWA
er japanskur hönnuður sem starfaði
eitt sinn hjá IDEO en rekur nú sitt
eigið fyrirtæki. Hann hefur hannað
fyrir MUJI, B&B Italia og Boffi. MUJI-
geislaspilari Fukasawa er til sýnis í
Nýlistasafninu (MoMA) í New York.
4. YVES BEHAR
er svissneskur hönnuður sem rekur
fyrirtækið Fuseproject. Hann er
þekktur fyrir að hanna þráðlausu
heyrnartólin Bluetooth Jawbone
fyrir Aliph og XO-farvölvuna sem er
tölva sem kostar
aðeins 100 dali
og var ætluð
fyrir verkefnið
„Ein tölva á
hvert barn“.
1. JONATHAN IVE
er breskur og hefur leitt hönnunarteymi Apple
í fjöldamörg ár. Hann kynnti til sögunnar iMac
árið 1998, iPod og iPhone svo fátt eitt sé nefnt.
Helsti áhrifavaldur Ive er Dieter Rams, sem áður
leiddi hönnunardeild Braun A.G. Ive er af mörg-
um talinn vera guðfaðir nútímaiðnhönnunar.
2. PATRICIA URQUIOLA
er spænskur hönnuður sem
býr og starfar í Mílanó. Hún
er best þekkt fyrir innanhúss-
hönnun sína en hlutir hennar
eru seldir undir merkjum
B&B Italia og Moroso.
Bestu iðnhönnuðir heims
Tímaritið Forbes gaf nýlega út lista yfir þá tíu iðnhönnuði sem talið er að hafi mest áhrif í heiminum. Þar
eru bæði að finna rótgróin nöfn og ný en efstur á blaði er Jonathan Ive, aðalhönnuður Apple.
8. RONAN OG ERWAN
BOUROULLEC
er franskir bræður.
Þeir hanna
húsgögn, vasa,
borðbúnað og
skartgripi fyrir
fyrirtæki á borð
við Vitra, Establ-
ished & Sons og
Ligne Roset.
SKOPTEIKNINGAR eftir Halldór Baldursson eru nú til
sýnis í Gerðubergi undir yfirheitinu Í fréttum er þetta helst. Á
sýningunni er farið yfir það sem helst þótti fréttnæmt á árinu
2007. www.gerduberg.is
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...