Fréttablaðið - 19.08.2009, Qupperneq 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Þegar maður hefur ekkert fyrir stafni og nægan tíma til að
láta hugann reika, þá fyrst verð-
ur veröldin óskiljanleg. Síðasta
sunnudag hafði ég ekkert sér-
stakt að gera, svo ég settist niður
við ströndina í Garrucha á Suður-
Spáni, þar sem ég dvel um þess-
ar mundir. Ég horfði út á hafið og
fyrr en varði fór hugurinn á stjá
og varð fyrir alls konar spurning-
um sem flækja tilveruna. Eins og
til dæmis: af hverju tileinka sér
ekki allir kurteisi?
KURTEISI kostar ekkert og sá
sem tileinkar sér hana er vís til
þess að eiga ánægjuleg samskipti
við aðra. Ég þekki engan sem er í
nöp við kurteist fólk og enn síður
veit ég til þess að einhver reyni
eftir fremsta megni að láta af slíku
hátterni.
KANNSKI eru það allar banda-
rísku bíómyndirnar með öllum
hrokafullu hetjunum sem fá fólk
til að álíta sem svo að þeir sem
vilji verðskulda virðingu og aðdá-
un skuli sýna af sér vott af bestíu-
skap og allnokkuð af stærilátum.
Eða kannski er það lærdómur sem
fólk dregur af umræðuþáttun-
um í sjónvarpinu eða umræðum á
Alþingi að kurteisi sé fyrir fáfróð-
an pöpulinn meðan þeir sem betur
þekkja til hennar veraldar sýni af
sér harðneskjulegra viðmót?
SVONA spurningar koma náttúr-
lega flatt upp á mig þar sem ann-
ríki og stress hafa lengið varið mig
gagnvart slíkum vangaveltum. Það
sem verra er; detti maður niður á
þetta plan er voðinn vís því barna-
legar spurningar af þessu tagi fara
að hrynja yfir mann eins og fúk-
yrði á næturröltandi sveitamann
á Laugaveginum.
SKAMMT frá mér var kona í
hugleiðslu. Sjávarniðurinn er
líka vel til þess fallinn að koma
kyrrð á hugann en þarna var ég í
hinni mestu ókyrrð eftir gárurn-
ar sem spurningarnar skilja eftir
sig í huga mér. Til að bæta gráu
ofan á svart kom síðan skömmu
síðar unglingaskríll með segul-
bandstæki og graðhestatónlist-
ina í botni. Á fimmtánda ári hefði
mér aldrei dottið í hug að fara með
segulbandstæki á ströndina (enda
er sjórinn hrollkaldur á mínum
bernskustöðvum en það er annað
mál).
ÉG SAGÐI skrílnum að lækka í
þessu gargi eða ég myndi henda
tækinu í sjóinn og hélt síðan áfram
að hugsa um það af hverju fólk til-
einkaði sér ekki kurteisi.
Gárur við
ströndina
Í dag er miðvikudagurinn 19.
ágúst 2009, 231. dagur ársins.
5.31 13.31 21.29
5.06 13.16 21.23 H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.is
25-70%
AFSLÁTTUR!
HEILSUKODDAR
30%
AFSLÁTTUR!
SVEFNSÓFAR
25-30%
AFSLÁTTUR!
SÆNGURFATNAÐUR30% AFSLÁTTUR!
KING KOILAmerískt heilsurúm(Queen size 153x203)FRÁ kr. 99.850
MARGARTEGUNDIR!KOMIÐ OG SKOÐIÐÚRVALIÐ
www.tskoli.is
Innritun í kvöld- og f jarnám
stendur til 26. ágúst