Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1952, Blaðsíða 6

Samvinnan - 01.05.1952, Blaðsíða 6
enitarí > ^Jwnnar/ Ítínnan 1rtlilt*rt itrtnart ktnnari PJurV ktnn&rt ktnn&rt >';ní4 fik^asíjðrj 5AMVINNU5K0LINN VETURÍNN fc/ 495-1 ~ 4952 í 5tontí Menn, sem áttu leið framhjá Sambandshúsinu um fimmleytið síðasta dag aprílmánaðar, sáu hóp myndarlegra ungmenna raða sér upp á lóð hússins og ganga þar í hringi. Við nánari athugun kom í ljós, að þarna fór fram kvik- myndataka, og var Árni Stefánsson að gera kvik- mynd af nemendum og kennurum Samvinnuskól- ans. Hafði skólastjórinn, Jónas Jónsson, þarna geng- izt fyrir þeirri nýjung, að taka slíka mynd af nem- endum og kennurum, og geyma þannig fyrir fram- tíðina heimild um það, hvernig fólk hafi litið út á því herrans ári 1952. Má vel vera, að fleiri skólar eigi eftir að feta í fótspor Sam- vinnuskólans að þessu leyti, en ánægjulegt.og merkilegt safn verður það hverjum skóla, að eiga slíka kvik- mynd frá lokum hvers ein- asta skólaárs. Á liðnum vetri voru 32 nemendur í aðaldeild Sam- vinnuskólans, og luku allir prófi, nema einn, sem for- fallaðist vegna veikinda. Hæstu einkunn hlaut Er- lendur Guðmundsson frá Laugarvatni, 8,82. Annar varð Þorvaldur G. Matthí- asson frá Þingeyri með 8,77, og þriðji Ólafur Þorsteins- son frá Laugarvatni með 8,69. í framhaldsdeildinni voru nemendur átta, og var þeirra hæstur Ásgeir Jó- hannesson frá Húsavík með 8,71; annar Ólafur Þórðar- son frá Auðkúlu í Arnar- firði með 8,33 og þriðji Jón Bergsteinsson frá Reyðar- firði með 7,71. Daginn fyrir skólaslit fóru nemendur í ferðalag um Borgarfjörð og heim- sóttu þar meðal annars- þrjá skóla. f lokaræðu þakkaði skólastjóri nem- endum vel unnin störf, minnti þá á hversu að- stæður þeirra til frama og fullnægjandi lífs væru miklu betri en fyrri kyn- slóðir í þessu Iandi hefðu búið við, hvattí þá til að nota tímann vel og skyn- samlega og árnaði þeim heilla í framtíðinni. ingur, til Englands til að ræða við sérfræðinga í björgun skipa. Enn var haldið áfram athugunum, og sendur kafaraleiðangur frá vélsmiðjunni Hamri austur á Seyðisfjörð, til að at- huga skipið nánar. DÝPSTA KÖFUN HÉR Á LANDI. „E1 Grillo“ liggur á 43—44 metra dýpi, og var þetta dýpsta köfun, sem gerð hefur verið hér á landi. Til þess að kafa svo djúpt þurfti tvær loft- dælur í stað einnar venjulega, og voru fjórir menn hafðir til að snúa hvorri, en fjórir til að leysa af á báðum, svo að samtals þurfti tólf manns til að dæla lofti niður til kafarans. Gat hann farið niður að skipinu á nokkrum mínútum, var venjulega rúmlega hálftíma niðri, en þurfti síðan að vera urn klukkustund á leiðinni upp aft- ur. Stafar þetta af hinum gífurlega þrýstingi, sem er á svo miklu dýpi, og verður að fara stig af stigi og smá- létta honurn af mannslíkamanum, þegar kafarinn kemur upp. Kafari leiðangursins var Grímur Esteroy. SKIPIÐ LÍTIÐ SKEMMT. Þegar byrjað var að kafa, var í raun réttri ekkert um það vitað, hvernig „E1 GriIlo“ væri á sig komið, hvort það væri á réttum kili, á hlið- inni eða hvolfi; hvort það væri mikið (Frh. á bls. 21) 6

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.