Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1952, Blaðsíða 11

Samvinnan - 01.05.1952, Blaðsíða 11
tf r a u h SMÁSAGA EFTIR BALDUR ÓLAFSSON Hann Lárus í Seli var aðeins kot- bóndi. I fjörutíu ár var hann búinn að hokra á gæðarýrri jörð, sem fyrir utan ofurlítinn túnskika og lélegar engjar var ókræsilegt samsafn af gráum og grettum hraunbreiðum. Þegar krakkarnir voru komnir upp og farnir að heiman, gerði hann tilraun til að selja jarðarófétið. En það gekk báglega. Það komu raunar nokkrir menn til að líta á skikann. Þeir spígsporuðu um landareignina, grettu sig, þgar þeir sáu hraunið, og muldruðu eitthvað í barm sinn um rýra landskosti. Fyrir skömmu kom þó burgeis úr Reykjavík. Það var mikill sjentil- maður. Hann bauð Lárusi gamla vindil. Havana. Ektafínan. Sætlega ilmandi. Hann lét ekki ólíklega með kaup- in. Hafði í hyggju að setja upp refa- bú. Hann spurði gamla manninn í þaula um jörðina. Kvaddi svo. Þú heyrir bráðum frá mér aftur, sagði hann. En frá honum hafði ekkert heyrzt, þeim ref. Og nú er Lárus á vakki um land- areignina. Það er bjartur sólskins- dagur. Gamli maðurinn á óhægt um gang. Gigt í fæti. En hann bítur á jaxlinn og hugsar, að óhaltur skuli hann ganga, meðan báðir fætur eru jafnlangir. Hann gengur út og suður með hraunrimanum. Hristir höfuðið, þegar hann lítur yfir allt þetta grjót. Þó brosir hann milt öðru hverju. Við þennan landskika eru margar glaðar minningar bundnar. Jafnvel hraunbollarnir með ilmandi lyngi og sandblettum á milli minna hann á þá tíð, er krakkarnir undu þar við leiki og hlátur þeirra ómaði milli klettanna. En hvað er á seyði þarna? Lárus gamli skyggir hönd fyrir augu, og horfir út í hraunið. Er ekki maður þarna milli klettanna skammt frá? Hann stendur þar með ofurlítið prik í hendinni. Nú færir hann sig til og horfir á hvítan strigadúk, sem spenntur er á trönur skammt í burtu. Hann er skrítinn, þessi, hugsar Lárus, þegar hann sér manninn ganga að dúknum og pikka í hann með spýtunni. Ojæja, hugsar Lárus. Þetta er sjálfsagt einhver úr höfuð- staðnum. Ætli hann sé ekki orðinn vitlaus, greyið, úr húsnæðisleysi og bágindum. Þá lítur maðurinn við og kemur auga á Lárus. Það glaðnar yfir svip hans. Hann leggur spýtuna frá sér á klett og gengur upp í hamraborg- ina til gamla mannsins. Góða daginn. Er það ekki Lárus í Seli, sem ég tala við? segir ókunni maðurinn og réttir fram hendina til kveðju. Öjú, sá er maðurinn, segir Lárus, og horfir forvitnis augum á hinn ó- kunna. Hann sér, að maðurinn er ó- venju hár og þrekinn, klæddur í ljósbrúnan slopp, sem flakar frá honum og er allur þakinn rauðum, grænum og bláum málningarslett- um. Það var gott að hitta þig, segir maðurinn og þrýstir hendi Lárusar kröftuglega. Eg var á leiðinni heim til þín, en tafðist við að skoða hraun- ið, — þetta dásamiega hraun. Sér er nú hver dásemdin, segir Lár- us, og hnussar í honum, Ég þarf svo sem ekki að spyrja að því, að þú ert eigandi að þessari ágætu jörð? Sjáðu þessar mosavoxnu hraunöallir eða jökuiinn þarna, \begar hann roðnar í morgunsólinni, sagði mál- arinn.Maður s/ær nú aldrei jökulinn, mutdraði Lárus: Lárus horfir tortryggnisaugum á komumann, og er ekki laus við að gruna hann um græsku. Ojú, segir hann og skýtur kjálkanum fram. Ég á að heita eigandi að þessari jarðar- ritju, ef jörð skyldi kalla. Já, þú átt hana, segir hinn og horf- ir ljómandi augum fram fyrir sig. Það er furðulegt, alveg stórkostlegt. Von er að þú segir það, andvarp- aði Lárus. Hún er furðulegt óféti, þessi jörð, og hefur svo sem enga kosti til að bera, afskekkt og nytjalítil. Ég hef samt verið að bera í brestina, þegar líklegir kaupendur hafa komið, en það er óhætt að segja þér eins og er. Víst er hún stórkostleg, segir mað- urinn og virðist Iítið hafa tekið eftir, hvað bóndinn sagði. Ég hef víða far- ið, en bvergi komið auga á jafn dá- samlegan stað, Sjáðu bara þessar mosavöxnu hraunhallir eða jökulinn þarna, þegar hann roðnar í morgun- sólinni. Jæja, maður slær nú ekki jökulinn, muldrar Lárus þvergirðingslega. Eða þá brekkurnar, Lárus, og grænu hvammana með ávölum og íbjúgum línum! Ef brekkurnar væru orðnar að túni, svarar Lárus og blær, þá væri allt í skársta lagi. Jæja, hvað um það, segir ókunni maðurinn og hvessir brúnir. Þetta er samt furðulegt. Hann snýr sér snögg- lega við og tekur aftur í hendi gamla mannsins. Ég óska þér til hamingju með jörðina. Þú átt þarna fagra perlu. Sannarlegan dýrgrip. Sínum augum lítur hver á silfrið, ansar Lárus góðlátlega, og vill ekki andæfa frekar skoðunum komu- nranns. 11

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.