Samvinnan - 01.05.1952, Side 20
j
í
TEPPAGARN j
PRJÓNAGARN |
I
í
í
í
j
I
I
I
I
I
í
i
30—40 litir úr fyrsta flokks
garni úr hinum nýju og full-
komnu vélum, sem settar
voru upp í verksmiðjunni í
fyrra. Verðið aðeins 12 og 9
kr. 100 gr. hespan. j
Ullarverksmiðjan GEFJUN
maturinn góður og herbergin hlý.
Sváfum við þar vel og hvíldum
okkur um nóttina. Morguninn eftir
skoðuðum við skólastaðinn og búið
og fannst okkur þar myndarbragur
á öllu.
Frá Laugarvatni fórum við austur
í Þjórsárdal. Var þá rigning og þoka
og útsýni mjög slæmt. Við skoðuð-
um Hjálparfoss, en fórum ekki lengra
inn í dalinn, vegna þess hvað veðr-
ið var leiðinlegt. En þó var glatt á
hjalla í bílnum, sungið og hlegið.
Vísur voru gerðar, og voru þær
sumar um bílstjórana okkar, Villa
og Guðmund; að sjálfsögðu voru
þær hlýlegar í þeirra garð, því að
þeir áttu það skilið. Við komum að
Asólfsstöðum og drukkum þar kaffi.
Þar var fyrir eitt af tónskáldum
þjóðarinnar. Hann bað um far með
okkur til Reykjavíkur. Var honum
sagt, að það vrði að berast undir
atkvæði. Leit hann þá yfir kvenna-
hópinn og hló. En atkvæðagreiðslan
fór þannig, að hann fékk farið, því
að konurnar vonuðu, að hann
mundi gera lag við vísurnar, sem
þær voru að yrkja. A leiðinni til
Reykjavíkur var komið við í Hvera-
gerði og gróðurhúsin skoðuð. Þar
var rigning.
Að kvöldi þessa dags, eftir að við
komum til Reykjavíkur, sátum við
boð hjá Húnvetningafélaginu í
Reykjavík í Oddfellowhúsinu. Voru
þar saman komnir margir Húnvetn-
ingar, búsettir í bænunr, og varð þar
fagnaðarfundur. Margar konur í okk-
ar sýslu bera hlýjan hug til Hún-
vetningafélagsins, fyrir þá gest-
risni, er það hefur sýnt þeim í þess-
um skemmtiferðum. Hefur félagið
þá ætíð boðið þeim til veizlu og veitt
af mestu rausn. — Að samsætinu
loknu dreifðist ferðafólkið víðsvegar
um borgina, til gistingar hjá vinunr
og kunningjum.
Næsta dag, sem var fjórði dagur
ferðarinnar, vorum við í Reykjavík
fyrri hluta dagsins. Meðal annars
skoðuðum við landbúnaðarsýning-
una, sem þá stóð yfir. Þótti okkur
það fróðlegt og skemmtilegt. Seinni
hluta dagsins héldum við svo af
stað heim á leið. Þennan dag var
nokkur rigning, en inni í bílnum
var glaumur og gleði, og almenn til-
hlökkun að koma heim. Ferðalagið
20