Samvinnan - 01.12.1959, Side 31
Séð móti altari í kapellu Concordia Senior College, U.S.A.
Arkitekt Eliel Saarinen og félagar.
hálfrökkri en lýsir síðan upp
í krossi kirkjuskipsins eða
fyrir altarinu. Snúi maður sér
við, þegar komið er inn undir
miðja kirkjuna verður lita-
dýrð gaflglugganna margfalt
áhrifaríkari fyrir rökkrið
innifyrir.
Allt miðast þetta við, að
gesturinn hafi tíma til að
dvelja við og njóta marg-
breytileikans, sem dylst í hinu
fína seitlandi ljósbroti.
Til að stytta langa sögu, skul-
um við athuga tvær nútíma-
kirkjur.
Fyrst er það látlaus kapella
við bandarískan háskóla.
Myndin sýnir hve einföld
gerð hússins er og fjarrskyld
seiðmagni hins margslungna
og dularfulla. Einfaldleikinn
veitir ró og festu, sem verður
áhrifaríkari fyrir notkun
Ijóssins á þann veg að megin
birtan lýsir upp altarið, en
kirkjuskipið er hálfrokkið,
nema hvað ljós er látið seitla
upp með þakflötunum yfir
höfuðhæð kirkjugesta.
Að lokum er svo ein nýj-
asta kirkja, sem verið er að
byggja á Islandi. Form kirkj-
unnar byggist á þeirri bygg-
ingartækni, sem er efst á
baugi á þessari steinsteypu-
öld og verður sennilega fyrsta
húsið á íslandi byggt með
svokallaðri skelkonstruksjón,
en það er að þunnar stein-
stevpuplötur eru brotnar eða
sveigðar svo, að þær hafa mót-
stöðuafl til að bera sjálfar sig
uppi og standa af sér ytri
krafta líkt og eggskelin gerir
og af sömu ástæðum. Lýsing
kirkju þessarar byggir á sömu
viðhorfum og í áður nefndri
kapellu. Auk þess er vestur-
gafl hennar opnaður svo að
þar getur ljósið fallið inn og
stefnir þá að altarinu eins og
SAMVINNAN 31
höfuð birta kirkjunnar.
Ég get ekki látið hjá iíða
að vekja athygli á þeirri þakk-
arskuld, senr við stöndum í
við Agúst Pálsson, arkitekt og
þá, sem studdu hann í því að
brjóta ísinn fyrir nýjum við-
horfum til kirkjubygginga á
íslandi. í dag megum við
þakka sigri Neskirkju yfir
hleypidómum og þröngsýni,
að á þessari kirkjubygginga-
öld okkar íslendinga fjölgar
þeim óðunr, senr skilja orðið,
að kirkjan sem aðrar bygging-
ar eiga að vera tákn viðhorfa
okkar kynslóðar. Þess vegna
vil ég ljúka þessunr hugleið-
ingum með því að vitna í orð,
sem ég hef lesið einhvers stað-
ar, en nran ekki lröfund
þeirra. Þau eru þannig:
Ollum merkustu verkum
byggingarlistarinnar er eitt
sameiginlegt. Þau bera ein-
kenni höfunda sinna, trú-
manna í víðasta skilningi
þess orðs — bjartsýnismanna
er trúa á líf mannsins —
manna er eiga sér trú,
hverju nafni sem hún
nefnist, hvaða búningi sem
hún býst — manna sem ó-
hjákvæmilega leita í rétta
átt vegna trúsemi sinnar.
Hannes Davíðsson: Líkan a£ fyrirhugaðri kirkju í Bjarnarnesi í Hornafirði.
Teiknað 1957.
Píiagrimakapella Notre-Dame du Haut a Ronchamp, eftir einn höfuðbraut-
ryðjanda nútíma byggingarlistar, Le Corbusier. I þessari kaþólsku kapellu er
að nokkru beitt sömu áhrifum ljóss og skugga og venja er á miðaldakirkjum,
en þó með nvjum htetti í formi nútíma listforma.