Samvinnan - 01.08.1960, Page 5
Ljósmyndir:
Þorvaldur Ágústsson
Yngsti kaupfélagsstjórinn er Steinþór Þorsteinsson í Búðardal. Hér
raeSir hann viS sér eldri og reyndari mann, Guðmund V. Hjálmars-
son, kaupfélagsstjóra að Skriðulandi í Saurbæ.
Halldór Ásgeirsson stjórnar af-
greiðslu KEA-verksmiðjanna.
Hann mætti á aðalfundinum og
má á myndinni sjá að hann heflr
haft sitthvað að hugsa.
Sigursteinn Magnússon, sem verið heflr framkvæmdastjóri Sambands-
skrifstofunnar í Leith undanfarin 30 ár, hefir nýlega látið af þeim
störfum að eigin ósk, en hefir jafnframt verið ráðinn ti'l að hafa umsjón
með afurðasöiu SÍS erlendis. Hér sjást þeir ræðast við Sigurður til
vinstri og Hjörtur Eldjárn frá Tjörn í Svarfaðardal.
Hið veika kyn átti líka
sína fulltrúa á fundin-
um. Þetta er Guðrún
G'uðjónsdóttir. Hún sat
fundinn fyrlr hönd
KRON.
Útibú Kf. Norður-Þingey-
inga á Raufarhöfn er nú
orðið sjálfstætt kaupfélag.
Það heitir Kaupfélag Rauf-
arhafnar. Þetta er hinn
nýbakaði kaupfélagsstjóri,
Jón Árnason.
Ingimundur Árnason er
fulltrúi Jakobs Frí-
mannssonar, kaupfé-
lagsstjóra á Akureyri.
Hann virðist eiga það
sameiginlegt með starfs-
bróður sínum, Halldóri,
að hlusta með athygli
og hugsa.
Eiríkur Þorsteinsson,
kaupfélagsstjóri á Þing-
eyrl, lætur nú af þeim
störfum að eigin ósk.
Hér brosir hann í kamp-
inn, af hverju sem það
svo er.
Kjörbréfanefndin að störfum. f hennl eru talið f. v.: Friðrik Jónsson frá Þorvalds-
stöðum, formaður Kf. Héraðsbúa, Páll Hallgrimsson, sýslumaður, og Ingimundur
Árnason, fulltrúi hjá Kaupfélagi Eyfirðinga.
SAMVINNAN 5