Samvinnan - 01.08.1960, Blaðsíða 27
Carl Alblert Andersen, formaSur
sænska sambandsins og yfirborgar-
stjóri í Stokkhólmi með meiru, fær
sér vindil og hvílir sig um stund.
Fáeinar myndir
úr veiðiför
Svo sem lesendum Samvinn-
unnar mun kunnugt vera, hélt
NAF, Nordisk Andelsforbund
— Samband samvinnufé’.ag-
anna á Norðurlöndum — aðal-
fund sinn í Reykjavík í sl.
mánuði. Að loknum fundin-
um var hinum erlendu fulltrú-
um boðið til Bifrastar, þar
sem þeir dvöldust í skjóli fag-
urra fjalla og nutu gestrisni
íslenzkra samvinnumanna.
Fulltrúunum var gefinn kost-
ur á að ferðast til Bifrastar
með þrenns konar mót’. Þeir
gátu valið um að fara alla
leiðina með bifreið fyrir Hval-
fjörð þá gátu þeir farið með
bifreið um Uxarhryggi, en síð-
an ríðandi frá Síðumúla á
leiðarenda og þriðji hópurinn
gat farið á skak út á Faxa-
flóa, en síðan með bifreið frá
Akranesi síðasta spölinn.
Fararstjóri fyrir fyrstnefnda
hópnum var Harry Frederik-
sen, Hjalti Pálsson stýrði
hestamönnunum og Hjörtur
Hjartar þeim er á skak fóru.
Fyrsta fisk nn fékk Sif Þórs,
kona Valgarðs J. Ólafssonr,
framkvæmdastjóra Sjávaraf-
urðadeildar SÍS. Þótti mönn-
um fara vel á því. Ekki skal
veiðiförin rakin nánar, en hér
til hliðar eru birtar nokkrar
myndir úr henni. Má vera að
:esendur Samvinnunnar hafi
gaman af að sjá þær. Sjón er
jú sögu ríkari. Ö.H.
Þessi Svíi dró örlítiS ýsu-
seiSi, en Ijómaði engu síður
en laxveiðimaSur, sem
fengið hefir einn stóran.
SAMVINNAN 27
Semingsen, forstjóri norska sam-
vinnusambandsins, mælir af hinni
mestu nákvæmni fisk sem Hikanen
frá Finnlandi hefir dregið.
Dregið var á báðum borðum. Hér
sér aftur eftir skipinu, bakborðs-
megin.
m*
Þessi norska kona
vék aldrei frá borð-
stokknum og var
alltaf jafn áhuga-
söm, þótt afli henn-
ar yrði ekki stór.
Aflinn varð
samtals þrjár
körfur.
Hjörtur Hjartar var
fengsæll. Hér inn-
byrðir hann þorsk
og er hinn veiðileg-
asti.
Valgarð J. Ólafsson
og Guðmundur Ás-
mundsson huga að
veiðafærum. Kona
Valgarðs, Sif Þórs,
horfir á.
1