Samvinnan - 01.08.1960, Blaðsíða 6
Fulltrúar kaupfélaganna á aðalfundinum voru um 100 auk fjölmargra trúnaðarmanna Sam-
bandsins. í fremstu röð sitja þeir Einar Ágústsson, Samvinnusparisjóðsstjóri, og Ásgeir
Magnússon, framkvæmdastjóri Samvinnutrygginga.
Erlendur Einarsson, forstjóri Sambandsins,
flytur fundinum skýrslu sína.
ósk en jaínframt verið ráðinn til að
liafa umsjón með afurðasölu SÍS er-
lendis. Sigurður hvatti að lokum alla
samvinnumenn til að standa fast sam-
an um hugsjón sína.
Að skýrslu stjórnarformanns lokinni
flutti Erlendur Einarsson forstjóri sína
skýrslu. Hann gat þess að félagsmenn
samvinnufélaganna hefðu í árslok ver-
ið 30.928 eða nokkru íleiri en þeir
voru í árslok 1958. Hann sagði, að
Sambandið hefði selt innlendar afurðir
fyrir 520 millj. kr. á árinu, landbún-
aðarafurðir fyrir 254,7 millj. kr. og
sjávarafurðir fyrir 172,7 rnillj. kr. og
iðnaðarvörur frá samvinnuverksmiðj-
unum fyrir 93.0 millj. kr.
Eins og að undanförnu háði rekstr-
arfjárskorturinn mjög allri starfsemi
Sambandsins á árinu 1959. Sérstaklega
dróst umsetning Innflutningsdeildar
mjög saman. Sementsinnflutningur
féll algerlega niður og innflutningur
minnkaði verulega í öðrum greinum,
sérstaklega í byggingarefni og mat- ög
fóðurvörum. Umsetning Innflutnings-
deildar var 182.6 millj. kr., Véladeild-
ar 80.5 millj. kr., Skipadeildar 64.0
millj. kr., Iðnaðardeildar 92.9 millj.
kr. og Útflutningsdeildar 427.5 millj.
kr.
Rekstursafkoman batnaði rnikið á
árinu. Tekjuafgangur varð kr. 5.2
millj. og hafði þá verið varið til af-
skrifta á fasteignum, vélum og skipum
kr. 10.8 millj. Erlendur Einarsson vakti
athygli á því, að ástæðurnar fyrir því
að tekjuafgangur Sambandsins er eigi
meiri en raun ber vitni, þrátt fyrir
mikla umsetningu, eru einkum þrjár:
Er þar fyrst að nefna rekstrarfjárskort-
inn, þá hafa verðlagsákvæðin verið
verzluninni mjög óhagstæð og loks er
þess að geta að um það bil helmingur
af sölu Sambandsins er umboðssala á
innlendum afurðum, en fyrir þá um-
boðssölu eru aðeins reiknuð 11/9—3%
þóknun.
Erlendur Einarsson gat þess einnig
í þessu sambandi, að rekstur m.s.
„Hamrafells" hefði gengið mjög erfið-
lega á s.l. ári, enda voru farmgjöld á
heimsmarkaði mjög lág allt árið. Með-
alfarmgjöld skipsins á árinu voru rúm-
lega 23 shillingar á smálest. Rekst-
urstap af helmingshluta Sambandsins,
þegar búið var að verja 10% til af-
skrifta, varð 5.6 millj. kr. á árinu og
er það um 1.1 millj. kr. hærra en árið
áður.
Forstjóri ræddi nokkuð um fram-
tíðarverkefnin er úrlausnar bíða.
Nefndi hann í því sambandi einkum
byggingu kjötiðnaðarstöðvar, sem fyr-
irhugað er að reisa á Kirkjusandi í
Frh. á bls. 26.
1959. Þó hefði á árinu verið lokið
byggingu ullargeymsluhúss á Akur-
eyri, unnið að byggingu kennarabú-
staðar og tómstundaheimilis að Bifröst,
keypt húseign í Vestmannaeyjum fyrir
afurðasölu þar og kaup fest á verk-
smiðju og frystihúsi í Harrisburg í
Bandaríkjunum til afnota fyrir sölu-
lélag Sambandsins þar í landi. Sigurð-
ur skýrði frá því, að Sigursteinn Magn-
ússon, sem verið hefur framkvæmda-
stjóri Sambands íslenzkra samvinnu-
félaga í Leith undanfarin 30 ár, hefur
nú látið af því starfi samkvæmt eigin
1 ■: Æ ■ JL 1 * , l ■
T; I jj
Sigursteinn Magnússon og Helgi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Innflutningsdeildar,
ræöast viS. ASrir á myndinni eru, taliS f.v.: Hjörtur Hjartar, framkvæmdastjóri Skipa-
deildar, Harry Frederiksen, framkvæmdastjóri ISnaSardeildar, ValgarS J. Ólafsson,
framkvæmdastjóri SjávarafurSadeildar, Hjalti Pálsson, framkvæmdastjóri Véladeildar,
Helgi Pétursson, framkvæmdastjóri Búvörudeildar og BernhaS Stefánsson, fyrrv. alþm.
6 SAMVINNAN