Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1960, Blaðsíða 8

Samvinnan - 01.08.1960, Blaðsíða 8
íþróttahöllin í Róm eft- ir Vitelozzi og Nervi. Hvolfþakið er 12 cm. þykk steypuskel með grönnum ryfjum undir eins og sést á mynd 4. Húsið er 4800 m2 og tekur 4—5000 áhorf- endur. „Veigamesti þátturinn í sköpun mannvirkis felst í því að hugsa upp eða velja og stærðarákvarða burðar- gerð þess; að meta í huga sér t. d. hætt- ur af hitabreytingum og sigi grunns- ins, að velja efni og byggingaraðferð, sem bezt hentar viðfangsefninu og um- liverfinu og að lokum að leita þess fjárhagslega hagkvæma." Hver á að vinna þetta verk? Hver er hæfastur til þess og hvernig undir- búning þarf hann til þess? Við skulum ætla, að hann sem verk- fræðingur haldi því fram, að það sé verkfræðingurinn. Með því að gera sér grein fyrir því hve fjölbreytileg hús og mannvirki eru byggð nú á dögum og að í dag ríkir enn form- leg óvissa vegna hinnar öru tækni- þróunar og listbyltinga, kemst Nervi að þeirri niðurstöðu, að það ætti að vera næsta lítill munur á undirbún- ingsmenntun arkitekta og verkfræð- inga. Síðan segir hann: „Réttnefni þess manns, sem hæfur er til að hugsa upp, skapa og byggja mannvirki, er arkitekt“. Síðar segir hann: „Það er auðvelt að gera sér grein fyrir því hve fjölþætt og á- byrgðarmikið starf arkitektsins er og hverra ágætis eiginleika til sálar og sinnis það krefst.“ Öll svið þekkingar hafa áhrif á starf arkitektsins og verða þar að skapa jafn- vægi, sem tjáð getur eiginleika af list- rænum, siðgæðislegum og félagsleg- um toga spunna. Verðmæti þessi er erfitt að skil- greina eða meta. Ennfremur eru þessi verðmæti algild í vissum skilningi, al- gild verðmæti, sem raunverulega fela í sér höfuðeinkenni sannrar bygging- arlistar — varanleika óháðan tíman- um.“ Hann heldur áfram. „ . . . Það er sannfæring mín, að það að tjá listræna tilfinningu með því að velja og skapa jafnvægi fullnægjandi til notagildis tæknilegra og hagrænna krafa er erfiðara en að færa í búning hverja aðra tilfinningu með öðrum tjáningaraðferðum. Hin ábyrgðarmestu og erfiðustu vandamál byggingarlistarinnar skap- ast af nauðsyn þess að sameina and- stæð öfl eða eiginleika: samræma form og tæknileg skilyrði, glóð innblásturs og kulda vísindalegrar rökhugsunar, frelsi hugmyndaflugsins og járnaga hagrænna sjónarmiða." Málum er svo hagað, að Nervi er sannkallaður listamaður á sínu sviði, og er því skiljanlegt þetta viðhorf hans til byggingarlistarinnar og þeirra er starfa á því sviði. Af þeim orðum, er hér hafa verið liöfð eftir honum hefur hann raun- verulega svarað spurningunni, sem fólst í fyrra bókarheiti lians. Það að byggja er stórfenglegri og erfiðari list en nokkur önnur, en byggð á vísind- legri rökhyggju og strangri akadem- ískri skólun. í hinu litla og tæknilega unga þjóð- félagi okkar hefur til skamms tíma ríkt það viðhorf í byggingamálum, að þar séu allir jafn hæfir án tillits til lær- dóms og reynzlu. Því hef ég vakið athygli á skrifum Nervis, að þar talar heimsviðurkennd- ur verkfræðingur, maður, sem öðrum fremur hefur siðferðilegan rétt til að kveða skýrt að orði sakir hæfileika, menntunar og reynzlu. Við eigum jafnframt að draga þann lærdóm af orðum hans, að við eigum ekki aðeins að gera ströngustu kröfur til arkitektanna, heldur einnig að nota þjálfun þeirra og þekkingu til hins ýtrasta, en ekki aðeins til þess sem er ó- hjákvæmilegt, þegar vissar reglur mæla svo fyrir. Sama gildir um verkfræðing- ana. Því fylgir einnig, að þessir menn verða að njóta fyllsta trausts til að geta látið í té fullkomna þjónustu. F.f þetta gerðist er fullkomin vissa fyrir því, að þjóðinni spöruðust mikil verðmæti auk þess að hún auðgist af varanlegum verðmætum byggingarlist- ar í þess orðs rétta skilningi. Verk Nervis skýra sig sjálf af þeim myndum er greininni fylgja og skýr- ingum þeirra. Skúli H. Norðdahl. Innimynd af íþrótfahöllinnl í Róm. HvolfþakiS, sem er 60 m. í þvermál er samansett úr 1620 kassalaga einlngum úr „Ferro- cementó" en þaS er sandsteypa, utan um mjög þétt net úr 5 mm járni. Hefur hann byggt sér listibát úr þessu efni og tekist vel. Þak þetta hvílir á 36 Y laga stoSum, sem spirna móti þakinu, en þeim er haldið saman meS 2,4 m. breiðum, hringlaga undlr- stöðum meS 80 m. þvermáli. 8 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.