Samvinnan - 01.08.1960, Blaðsíða 26
Aðalfundur SÍS
Framhald a£ bls. 6.
Reykjavík. Framkvæmdir þessar hafa
ekki getað hafizt sökum þess að staðið
hefur á nauðsynlegum leyfum, og er
skipulagsmálum borið við. Enn frem-
ur hafa framkvæmdir við byggingu
kjötbeinamjölsverksmiðju, sem áform-
að er að reisa í samvinnu við Slátur-
félag Suðurlands, strandað á því að
ekki hefur tekizt að afla lóðarréttinda
fyrir þá byggingu.
Þá kvað forstjórinn brýna nauðsyn
bera til að athuga, hvort ekki sé rétt
að koma upp central-lager til að gera
vörudreifingu hagkvæmari og minnka
fjármagn það, sem bundið er í vöru-
birgðum. Vitnaði hann til reynslu
samvinnusambandanna í nágranna-
löndunum í þessu sambandi.
Að lokum ræddi Erlendur Einars-
son um framtíðarhorfur Sambandsins
og taldi þær ekki bjartar. Kæmu þar
aðallega til þessi atriði:
E Aukin fjármagnsþörf vegna geng-
isbreytingar og hækkaðs verðs inn-
fluttra vara.
2. Vaxtahækkunin, er hann áætlaði
að hafa mundi í för með sér um 5
millj. kr. aukin útgjöld fyrir Samband-
ið.
3. Veltuútsvar, er nú leggst í fyrsta
skipti á viðskipti við félagsmenn og
nema um milljónum króna.
Forstjórinn hvatti alla samvinnu-
menn til að standa fast saman um fé-
lögin og samvinnuhreyfinguna og sagði
að á þann hátt væri bezt hægt að mæta
þeim þrengingum, sem framundan
kynnu að vera. Minnti hann á að síð-
ustu, að þrátt fyrir allt hefði samvinnu-
hreyfingin aldrei haft eins góða að-
stöðu með tilliti til verzlunarhúsa og
annarrar aðstöðu til að gegna hlut-
verki sínu og einmitt nú.
Að ræðu forstjóra lokinni fluttu
framkvæmdastjórar skýrslur um starf-
semi hinna ýmsu deilda. Helgi Péturs-
son flutti skýrslu Búvörudeildar, Val-
garð J. Ólafsson skýrslu Sjávarafurða-
deildar, Helgi Þorsteinsson skýrslu
Innflutningsdeildar, Hjalti Pálsson
skýrslu Véladeildar, Hjörtur Hjartar
skýrslu Skipadeildar og Harry Freder-
iksen skýrslu Iðnaðardeildar.
Nokkrar breytingar urðu á stjórn
sambandsins, þar sem nýr formaður
sambandsstjórnar var kjörinn í stað
Sigurðar Kristinssonar, sem baðst ein-
dregið undan endurkjöri. í hans stað
var kosinn Jakob Frímannsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupfélags Eyfirðinga.
Þórður Pálmason og Skúli Guðmunds-
son áttu einnig að ganga úr stjórn en
voru endurkjörnir. Aðrar breytingar á
stjórn voru þær, að Finnur Kristjáns-
son, kaupfélagsstjóri á Húsavík tók nú
sæti í henni.
í varastjórn voru kjörnir þrír menn,
þeir Guðröður Jónsson, Norðfirði,
Bjarni Bjarnason, Laugarvatni og
Kjartan Sæmundsson Reykjavík. Ólaf-
ur Jóhannesson prófessor, sem verið
hefur endurskoðandi, baðst eindregið
undan endurkjöri, en í hans stað var
Jón Skaftason, alþingismaður kosinn
endurskoðandi.
Stjórn Sambandsins flutti tillögu um
að af tekjuafgangi ársins 1959 verði
veitt í stofnsjóði félaganna 3% af
kaupum þeirra frá innflutningsdeild,
véladeild og verksmiðjum iðnaðar-
deildar, og var þessi tillaga samþykkt
samhljóða.
Sr. Guðmundur Sveinsson flutti
ítarlegt erindi um fræðslu- og félags-
mál. Vakti erindi hans mikla athygli
og hlaut mjög góðar undirtektir. Mikl-
ar umræður urðu um þessi mál og m.
a. gerðar þessar ályktanir:
1. Aðalfundur Sambands íslenzkra
samvinnufélaga haldinn að Bifröst í
Borgarfirði dagana 22.-23. júní 1960
telur að efla þurfi mikillega fræðslu-
og útbreiðslustarf samvinnuhreyfing-
arinnar. Skuli áherzla lögð á félags-
málabaráttuna og hlut samvinnunnar
í sókn íslenzku þjóðarinnar til bættra
lífskjara og aukinnar menningar.
Samvinnumenn telja arðrán andans,
sem nú birtist í ýmsum myndum, í-
skyggilegan vágest. Skal barizt gegn
öfgum og ofstæki en hvatt til frjálslynd-
is og víðsýni. Fundurinn telur, að
samvinnuhreyfingin hljóti að styðja
hverja þá menningarviðleitni, sem orð-
ið geti íslenzku þjóðinni til aukins
þroska og auðgað líf hennar. Fundur-
inn heitir á alla samvinnumenn að
bera hugsjón sinni vitni í þróttmiklu
starfi.
2. Aðalfundurinn telur nauðsynlegt
að auka útbreiðslu málgagns sam-
vinnumanna, Samvinnunnar. Til að
gera tímaritið að almennu meðlima-
blaði beinir fundurinn því til Sam-
bandsstjórnar til athugunar að lækka
áskriftargjöld tímaritsins og leita sam-
komulags við Sambandsfélögin um
einhverja þátttöku í greiðslu útgáfu-
kostnaðar. Fundurinn leggur áherzlu
á, að ritið verði barátturit samvinnu-
hreyfingarinnar og framlag hennar til
menningar og mennta.
Nokkrar umræður urðu um skipa-
rekstur Sambandsins og var eftirfar-
andi ályktun gerð af því tilefni:
Með tilvísun til þess, að 14 ár eru
nú liðin síðan samvinnufélögin eign-
uðust m.s. „Hvassafell", vill fundur-
inn leggja áherzlu á nauðsyn þess að
kaupskipafloti samvinnumanna sé end-
urnýjaður og honum viðhaldið þannig
að hann sé á hverjum tíma sem bezt
samkeppnisfær og hæfur til þess að
leysa þau verkefni, sem ætla má að
fyrir liggi og mestu varða samvinnu-
hreyfinguna í landinu.
Tvö ný kaupfélög sóttu um upptöku
í Sambandið, Kaupfélag Raufarhafnar
og Kaupfélagið ,,Bjarmi“, Njarðvík.
Stjórn Sambandsins höfðu ekki borizt
fullnægjandi gögn frá félögunum og
var því eftirfarandi tillaga samþykkt:
Fundurinn gefur stjórn Sambands-
ins heimild til að veita Kaupfélagi
Raufarhafnar og Kaupfélaginu
„Bjarma“, Njarðvík, upptöku í Sam-
bandið, að fengnum fullnægjandi skil-
ríkjum fyrir lögmæti upptökunnar.
Stjörnuspá ....
Frh. af bls. 21.
holl, ef þér aðeins reynið að höndla hana. En
ef þér sýnið af yður hik eða ótta, getur allt
snúist til verri vegar.
I ástamálum er hins vegar betra að hafa vaðið
vel fyrir neðan sig. Þar eru ýmsar hættulegar
blikur á sveimi þessa dagana. Ef þér kynnist
persónu af hinu andstæða kyni, sem yður langar
að binda meiri og nánari kunningsskap við, skul-
uð þér hugsa yður vel um, einkum ef þér eruð
þegar bundinn að einhverju leyti.
KENTÁRINN
23. nóv. — 20. des.
Þennan mánuð er mikið undir því
komið, að þér forðist hvers kyns
ævintýri, sem leitt geta til slysa
eða líkamlegra áverka. Gætið þess að
agittanus jgjj.a gkkj fþr6ttir, sem geta haft
slíkt í för með sér, svo sem fjallgöngur. Ef ein-
hver varar yður við aðsteðjandi slysi, skuluð þér
taka mark á honum.
Fjárhagur yðar virðist nú fara batnandi, en þó
er betra að forðast mikla peningaeyðslu. Reynið
að koma yður upp skynsamlegum áætlunum til
að vinna eftir í framtíðinni. Ef það tekst, og
sérstaklega ef þér eruð bjartsýnn og vongóður,
hafið þér ástæðu til að vænta hins bezta.
26 SAMVINNAN