Samvinnan - 01.08.1960, Page 11
auðvitað í sólinni. Einkenni á flest-
um Finnum sem og öðrum „Skand-
inövum" er meðal annars sólbrúnk-
an. Okkur þótti sem við værum hálf
glærir miðað við heimamenn.
Sjaldan hefur smáþjóð lagt í annað
eins stórræði, og enn sjaldnar komist
frá því með slíkurn heiðri og Finnar
gerðu 1952, er þeir héldu Olympíu-
leikana. Eftir hrakningana í London
1948 lifðu Olympíugestir sannkallað
ævintýr. Allt var vel útbúið og skipu-
lagt, sjaldan hefur finnska þjóðin sýnt
betur samtakamátt sinn og þjóðarstolt.
Föðurland Nurmi, þess hlaupagarps,
sem lengst verður talinn konungur
konunganna meðal þolhlaupara, hafði
lagt veglegan skerf til fegrunar Ol-
ympíuhugsjónarinnar.
Þessi fyrsta ferð mín á erlenda grund
varð einnig fyrsta för mín á stórmót.
Skeyti barst til Finnlands um að ég
liefði verið valinn á Evrópumeistara-
mótið í Bern í Sviss og skyldi ég fara
beint þangað frá Helsingfors. Förin
varð hin ævintýralegasta, þar sem ég
varð nú að ferðast einn míns liðs. Með
ugg í brjósti kvaddi ég félagana í Hels-
ingfors kl. 6 að morgni. Fyrst var flogið
til Hafnar, þaðan tekin önnur vél til
Zíirich, þaðan lest til Bern og þar
kastað mæðinni yfir að vera kominn á
áfangastað. Svo var þó eigi, því eftir
brauk og stímabrak, bjagaða ensku,
þýzku og afskræmda frönsku ásamt
fingramáli, komst ég á þá skoðun, að
ég þyrfti að taka aðra lest til borgar
með tveim nöfnum. Á frönsku Bienne,
á þýzku Biel. Við lestarþjóninn var
sami talsmáti með tungu og limum
viðhafður, ég spratt á fætur í hvert
skipti, sem hann kom kallandi ný og ný
nöfn á næstu viðkomustöðum, loks
sagði hann „Biel, Bienne“. Ég upp úr
sætinu, tek pjönkur mínar og er tilbú-
inn við dyrnar. Lestin liægir á sér og
staðnæmist. Ég opna og snarast út. Þeg-
ar ég lít í kring um mig, sé ég enga
brautarstöð, aðeins skóg og þar skammt
Frh. á bls. 30.
Myndskýringar:
Efsta myndin er af einni frægustu byggingu í
Finnlandi, járnbrautarstöðinni í Helsingfors,
sem þykír sérstök fyrir frumlega byggingar-
list og skreytingu. Miðmyndin sýnir einn af
hinum rúmgóðu skrúðgörðum í Helsingfors,
en neðst er mynd frá Magglingen í Sviss. Þar
er íþróttaskóli hátt uppi á fjalli. Við rætur
fjallsins er smáborg umlukin ökrum, ám,
vötnum og skógum, en i fjarska gnæfa tindar
Alpaf jallanna.
SAMVINNAN 11