Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1960, Síða 17

Samvinnan - 01.08.1960, Síða 17
Útþennslustefna Kínverja Ef teknir eru til meðferðar stór- viðburðir á sviði heimsstjórnarmál- anna það sem af er þessu ári, hefur efalaust enginn vakið meiri athygli en Parísarfundur leiðtoga fjórveld- anna, sem fór út um þúfur þegar í upp- liafi, sem kunnugt er. Ástæðan til þess, að svo illa fór, var rakin til þess at- burðar, er bandarísk njósnaflugvél var skotin niður eða neydd til að nauð- lenda í nágrenni borgarinnar Sverd- lovsk í Sovétríkjunum. Krafðist rúss- neski þjóðarleiðtoginn, Nikíta Krúséff, auðmjúkrar afsökunarbeiðni Eisen- howers Bandaríkjaforseta vegna þessa atburðar, en fékk neitun. Gekk Krús- éff þá af fundi í mikilli reiði og flaug Iieim við svo búið. Þessi úrslit urðu stríðshræddum og friðelskandi jarðarbúum mikil von- brigði, og þótti ekki örgrannt um, að drottnarar heims hefðu sýnt fullmikla léttúð í máli, sem vel gat varðað líf eða dauða Iieillar heimsbyggðar. Er og 1 ítt skiljanlegt, að leiðtoga Sovétríkj- anna skyldi verða svo mikið um, er ltin bandaríska njósnaflugvél steyptist niður í ríki hans utan úr ljósvakan- um. Það er löngu opinbert leyndarmál, að flest ríki heims njósna eftir beztu getu um hag hvers annars, eftir öllum þeim leiðum, sem færar þykja, og hafa engir sýnt meiri hugkvæmni og dugnað á því sviði en einmitt Rússar. Er því töluvert hæpið að taka þá alvarlega, er þeir hneykslast á atferli Bandaríkja- manna. Margir hafa því orðið til að leita annarrar ástæðu til hins skyndilega l)rottiilaups Krúséffs at Parísarfundin- um. I því sambandi er ekki úr vegi að renna augum í austurátt, til fimmta stórveldisins, sem engan fulltrúa átti á umræddum fundi. Síðan kommúnistar náðu völdum í Kína, hefur samkomulag Kínverja og Rússa verið með ágætum, að minnsta kosti á yfirborðinu. Hins vegar bend- ir margt til að ýmislegt beri á milli undirniðri. Utanríkisstefna Kínverja hefur á síðustu árum verið stórum her- skárri en Rússa. Talið er, að þeim geðjist lítt að þeirri viðleitni til sam- komulags við Vesturveldin, er Rússar undanfarið hafa sýnt, og áhrifum þeirra hafi því verið um að kenna, að svo fór sem fór í París. Framkoma Krúséffs hefði verið ráð Rússa til að blíðka bandamenn sína, en njósna- flugvélin notuð sem átylla. Nágrannar Kínverja í suðri hafa rnjög fengið að kenna á hinni ófrið- vænlegu utanríkisstefnu þeirra. Á síð- ustu árum, einkum þó undanfarna mánuði, hafa þeir hvað eftir annað vaðið með ófriði suður yfir landa- mæri Indlands, Nepals og Burma, bar- ið á landamæravörðum og lagt undir sig heil héruð, búist þar um og jafn- vel byggt vegi og flugvelli. Nágrann- arnir hafa mótmælt, en ekki aðhafst annað, efalaust sökum ótta við hinn gífurlega hernaðarmátt andstæðings- ins. Margir hafa undrast mjög, að ein- mitt Indverjar skuli verða fyrir slíkum ónáðum, þar sem þeir hafa ástundað fyllsta hlutleysi í deilum austurs og vesturs, en þess háttar framkomu eru kommúnistar vanir að telja mjög lof- lega. Ólíklegt er líka, að Rússum geðj- ist vel að þessum aðförum banda- manna sinna, þar sem þeir liafa ein- mitt mikið á sig lagt til að öðlast liylli Indverja og annarra Suðtir-Asín- þjóða. Hvað liggur þá hér að baki? Til að öðlast viðhlítandi svar, verð- um við að líta á sögu Kínverja, sem er lengri og samfelldari en flestra ann- arra þjóða. Þegar fyrst fara af þeim sögur, bjuggu þeir á tiltölulega litlu svæði í Gulárdalnum í Norður-Kína. Nú drottna þeir yfir landflæmi, sem nær frá Amúrfljóti suður að Tonkin- flóa, frá Kóreu til Kasmír. Þær þjóð- ir, er áður byggðu þetta svæði, eru ýmist þegar útdauðar eða á hverfanda hveli. Fyrir fáeinum árum komst kunnur íslenzkur menntamaður svo að orði í útvarpsræðu, að Kínverjar hefðu aldrei hafið árásarstríð á hendur nokkurri þjóð. Naumast getur snöfurlegri öfug- mæla. Þótt ágengni þjóða og einstakl- inga á hendur öðrum minnimáttar sé jafngömul mannkynssögunni, og hver þjóð liafi þar gengið fram í samræmi við orku sína og aðstöðu, er ólíklegt, að nein hafi staðið hinum gulu sonum austursins á sporði í skefjalausri og óaflátanlegri ágengni á hendur nábú- um sínum. Þegar Evrópumenn lögðu undir sig lönd, sigldu þeir gjarnan yfir úthöfin til annarra heimsálfa. Kínverjar lögðu ekki út í slík ævintýri. Þeir slógust upp á næstu nágTannaþjóðina, slátruðu henni að mestu og gerðu leyfar lienn- ar sér undirgefnar. Voru slíkar „skrælingjaútrýmingar" taldar guðs- þakkaverðar, enda hafa Kínverjar sízt verið eftirbátar annarra í þjóðernis- liroka. Utþenslan var að vísu hæg, því Kínverjinn er hagsýnn og teflir ógjarn- an á tvær hættur. En þeir höfðu tím- ann fyrir sér, og notuðu hann, öld eftir öld, árþúsund eftir árþúsund. Á þeirn tíma urðu rnargar þjóðir, er byggðu Suður- og Mið-Kína, tortím- ingunni að bráð. Aðrar létn óðul sín og flýðu suður á bóginn, svo sem Thai- lendingar og Annamsmenn, er nú byggja Austur-Indland. Þess má geta, að margar þeirra þjóða, er harðast urðu fyrir barðinu á Hanþjóðinni, (heiti á Kínverjum) voru henni all- skyldar að tungu, ætterni og menn- ingu. Framhald á bls. 29. Chou en Lai SAMVINNAN 17

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.