Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1960, Qupperneq 30

Samvinnan - 01.08.1960, Qupperneq 30
w að framleiðsluaukning matvæla geti haldist í hendur við hina öru fjölg- un þeirra munna, sem þarf að metta. Kínverjar eiga því naumast um nema tvennt að velja: Að takmarka fjölda barnsfæðinga að dæmi Indverja, eða fara að dæmi nazistanna þýzku — og sinna eigin forfeðra — og afla sér meira „lífsrýmis“. Og er ekki annað sýnna en þeir Iiallist að síðari kostin- um. Þegar haft er í huga, að bæði sunn- an og norðan landamæra Kínaveldis eru tiltölulega strjálbýl og mjög auðug lönd, verða horfurnar enn óálitlegri. En hví skyldu Kínverjar vera fjand- samlegir vinsamlegri sambúð Rússa og Bandaríkjamanna? Svör munu finnast við þeirri spurningu, ef vel er leitað. Ef þessar tvær voldugustu þjóðir heims stæðu saman sem ein, hlyti framvinda lieimsmálanna nær algerlega að vera í höndum þeirra. Þá yrði kínverski drek- inn að draga að sér klærnar. Meðan hin „hvítu“ stórveldi eyða kröftum sínum með innbyrðis deilum, sér hann sér hins vegar leik á borði. Því verður að teljast áríðandi, að leiðtog- ar Rússa og Bandaríkjamanna geri sér sem fyrst ljóst, hve gífurleg ógnun „gula hættan" er í dag fyrir frið og öryggi í heiminum, og breyti sam- kvæmt því. Dagur Þorleifsson. Ferðaminningar .... Framh. af bls. 11. frá fljót. Eftir nokkra íhugun klifra ég aftur upp í, en í því rennur lestin af stað. Hún liafði þá þurft að stanza meðan önnur lest fór yfir ána og kom til „Biel, Bienne“ 10 mín. síðar, Enn var þjarkað við fólkið á braut- arstöðinni. Ég þurfti að fara til staðar, sem hét „Magglingen“. Mér skyldist að ég ætti enn einu sinni að taka lest, og eftir öll geðbrigði dagsins trúði ég nú hverju sem var, og vildi fá keyptan miða. Það var þá eigi hægt á þessari stöð, ég þurfti til annarrar stöðvar. Botnaði ég nú hvorki upp né niður. Fékk nafn þeirrar stöðvar skrifað á blað, sem ég rak framan í leigubíl- stjóra. Hann glotti og keyrði mig fyrir næsta horn, en þar var þá stöðin. Þetta reyndist vera járnbrautarlyfta, sem lá beint upp á fjall. Ég hitti svo á, að 30 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.