Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1964, Qupperneq 8

Samvinnan - 01.08.1964, Qupperneq 8
SAMVINNA er engin neyð Ef fólkið í landinu hefur ekki þroska og skilning til þess að vinna saman og mæta sameigin- leguni vandamálum nýs tíma, þá er vonlaust um byggð landsins Nýlokið er í Samvinnunni greinum séra Sigurðar í Holti um samvinnubúin í ísrael. Eins og áður hefur verið drepið á hér í ritinu, eru litl- ar líkur til, að hægt sé að taka Gyðingaþjóðina til beinnar fyrirmyndar í þess- um efnum, heldur aðeins að hafa reynslu þeirra til hlið- sjónar og læra af henni. Eitt er víst: eitthvað verður að gera. Sveitirnar halda áfram að tæmast og þeir sem eftir verða eru á góðri leið með að verða vinnudýr, hlekkj- aðir við dýrar en mjög full- komnar vélar, sem létta af þeim miklu erfiði og stuðla að stóraukinni framleiðslu, en gera bændurna og fjöl- skyldur þeirra ófrjáls. Ekki verður séð hvernig úr þessu má bæta nema með aukinni, skipulagðri sam- vinnu, enda eru það engin neyðarkjör og engum bónda vorkunn, að taka þátt í slíku. Þeir verða vitanlega einhverju að fórna, en þeir hafa líka allt að vinna. Nú er það svo, að vitanlega er um mjög mikla samvinnu að ræða í íslenzkum land- búnaði. Sala og vinnsla af- urðanna er að heita má öll á samvinnugrundvelli. Um meira og minna óskipulagða samvinnu er að ræða á milli margra fjölskyldna og á stöku stað nokkuð skipu- lagða. Á einum stað vinna tveir bræður að allri túna- vinnslu og öllum heyskap í sameiningu. Þeir skipta í bróðerni á milli sín heyinu og eiga hver sín gripahús og fjárhús og sínar kýr og sauð- fé. Annar þessi bóndi sagði við mig nú alveg nýlega: Okkar stóra yfirsjón var sú, að byggja ekki eitt fjós. Það er efalaust rétt hjá honum og þó, í mörgum tilfellum, ekki nema hluti af sannleik- anum. Það sem þessir bræð- ur áttu að gera var ekki ein- ungis að byggja eitt fjós, heldur að byggia það í félagi við einhverja af nágrönnum sínum, svo marga, að hæfi- leg stærð fengist fyrir alla fullkomnustu tækni og svo, að vinnukraftur nýttist sem allra bezt. Það er litlu fórnað, þótt bændur hafi samvinnu um fjósbyggingar og félagsskap um mjólkurframleiðsluna. Þeir halda sjálfstæði heimila sinna eins fyrir því. Þeir geta haft sín eigin hús fyrir sauðfé, a. m. k. þar sem fjár- bú eru lítil, eins og nú er víða. Sömuleiðis he^thús. Sauðfé og hestar hafa upp- eldisgildi fyrir börn og auka gleði fullorðinna, vegna um- gengninnar einnar saman. Og þótt í nokkrum tilfellum hið sama megi segja um kýrnar, þá er það sjaldgæf- ara og einhverju verður að fórna. Bóndi sagði við mig fyrirnokkrum árum: „Börn- um eru gefin lömb og börn- um eru gefin folöld. En hver gefur barni kálf?“ Það þarf að fá vísindaleg- ar niðurstöður fyrir því, hvaða stærð og gerð fjósa er hagkvæmust og í stað þe:s að fækka bændum um mörg hundruð, á að sameina bændur um byggingu fjósa á samvinnugrundvelli og losa mjólkurframleiðsluna úr tengslum við heimilin. Létta fjósverkunum af hús- mæðrum og að nokkru af bændum og börnum. Bænd- ur og unglingar geta unnið til skiptis á skipulagðan hátt við félagsfjósin, ef það þykir hentugt. Með slíku sam- vinnusniði er hægt að nota sér yfirburði „stórfram- leiðslu" án þess að fórna nema mjög litlu af sjálfstæði heimilanna og engu af eign- arréttinum. Ef fólkið í land- inu hefur ekki þroska og skilning til þess að vinna saman og mæta sameigin- lega vandamálum nýs tíma, en lætur í þess stað véltækni og blinda efnishyggju mala sig, þá er vonlaust um byggð landsins. Annars ætti Búnaðarfélag íslands að láta fara fram rækilega rannsókn á því, í hve ríkum mæli og á hvaða sviöum og í hvaða formi er um félagslega samvinnu að ræða meðal íslenzkra bænda. Margt er um hana vitað, en ekki nógu margt. Og af reynslu ber að læra og tengja þann lærdóm nútíma þekk- ingu og tækni. ísland á ynd- islegustu sveitir í heimi. Það á ótæmandi gróðrarmold. Bændastéttin er gáfuð, dug- leg og myndarleg og í eðli sínu óvenju félagslynd. Hún hefur með samvinnu leyst fjölmörg vandasöm málefni og verður að gera það enn. Páll H. Jónsson. 8 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.