Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1964, Page 20

Samvinnan - 01.08.1964, Page 20
HANDAVINNA Bryndís Steinþórsdóttir, húsmæðrakennari: JL imi (ía)'i d tt u r MJOLKURDRYKKIR í BARNAAFMÆLI Kakaódrykkur 2 msk kakaó 1 msk sykur li/4 cll vatn salt iy4 dl mjólk Vanilluís Blandið saman kakaói og sykri og sjóðið í 2 mín. Þeytið mjólk- ina saman við og kælið. Þessi uppskrift er hæfileg í tvö glös. Ein msk af vanilluís er látin í hvert glas. Isinn má einnig þeyta saman við drykkinn. Ávaxtasafi með ís Beztur og hollastur er safi úr nýjum ávöxtum en einnig er ágætt að blanda saman mis- munandi tegundum úr dósum eða flöskum, aðgætið að safinn sé ekki of sætur. í staðinn fyrir ávaxtasafa er hægt að nota saft. Saftina eða safann má blanda með mjólk ef vill. Þeytt vel sarnan og borinn fram með rjómaís eða ísteningum. Bananadrykkur Merjið y2 banana með gaffli, blandið saman við safa úr hálfri sítrónu og einni tsk af sykri. Þeytið síðan ásamt 2 dl af m'ólk. Hæfilegt i eitt stórt glas eða tvö lítil. Rjómaís látinn í glösin ef vill. Vinsælast er að hafa drykkj- arrör í glösunum, en í stað þeirra má nota makkarónur eða skeiðar með löngu skafti. Myndin til vinstri tilheyrir drykkjunum, en sú að neðan bakka- böndunum. Hér koma nokkrar tillögur um sumarhandavinnu, sem þarf fyrst og fremst að vera þægileg í meðferð, svo hægt sé að sauma úti í sólinni er tími vinnst til. Diskadúkar Smádúkar undir diska hafa nú mjög rutt sér til rúms í stað stóru matardúkanna. I þá eru höfð mismunandi efni og mynsturgerðir eftir smekk hvers eins. Hér með fylgir þrætt mynst- ur, sem er fljótlegt og auð- velt. Efnið er hvítur hör, en að sjálfsögðu mætti hann vera mislitur eða annað efni sem auðvelt er að telja út í. Saumað með tvöföldu bómullargarni (sem ætlað er til útsaums) bródergarni, perlugarni, áróru- garni, eða hörgarni. Litir eru Mynd af diskadúk með ein- földu þræddu mynstri. Að neðan: Mynstrið. 20 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.