Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1964, Blaðsíða 29

Samvinnan - 01.08.1964, Blaðsíða 29
ÞAÐ ER SAMA, HVE HLASSIÐ ER ÞUNGT... W W W BEDFORD SKILAR ÞVIA AFANGASTAÐ! ávallt fáanlegurmed stuttum fyrirvara Véladeild átta og níu ára deildum, þarf aö beita svipaöri aðferð. Tal- málið er undirstaða ritmálsins ekki síður en ritmálið styður talmálið. Ástæðan er sú, eins og aö framan greinir, að fá- menni heimilanna og breyttir heimilisliættir valda því, að minna er nú talað við börnin á heimilunum en áður var og þessa vöntun í æfingu móður- málsins þarf skólinn að bæta upp, ef vel á að fara. Tel ég að annars sé vá fyrir dyrum, sérstaklega í fjölmenninu. í yngri deildum barnaskól- anna yrði hin lifandi, orðfrjóa talkennsla fyrst og fremst tengd lestrinum, en jafnframt þyrfti að tengja þessar æfingar öllu starfi skólans meira en nú er, og ennfremur í eldri deild- um hans. Heimilin þurfa að taka höndum saman viö skól- ana í þessu máli, og foreldrar og aðrir aðstandendur barna, verða að gefa börnunum meira af sínum frítímum, en nú tíðk- ast, til viðtals við þau, fræðslu og leikja. Lítill, amerískur drengur horfði á pabba sinn þvo vand- lega og bóna bílinn sinn. Eyddi hann í þetta miklum tíma. Þá varð drengnum þetta að orði: „Pabbi, þér hlýtur að þykja mikið vænna um bílinn þinn en mig. Ef ég bið þig að segja mér sögu eða tala við mig, þá segist þú hafa svo nauman tíma, að það sé ekki hægt. — En nú gefur þú bílnum mikið af þínum nauma tíma.“ Þessi saga gæti vel verið sönn og hún er lærdómsrík fyrir þá foreldra, sem ætíð hafa of nauman tíma til að sinna börn- um sínum heima. Segulbandið getur reynzt undratæki í móðurmálsæfing- um, bæði í skólum og heima- húsum. Hvert einasta barn á aldrinum 5—9 ára hefur mikið yndi af að segja frá því, er fyrir það hefur komið. í skól- anum þurfa kennararnir að skilja og meta þessa þrá barns- ins, til að tjá sig. Mörg umræðuefni er hægt að skapa með spurningum, eins og t. d.: Hefur þú fundið hreið- ur? Hefur þú komið á hest- bak? Hvaða blóm þekkir þú? o. s. frv. Það stendur ekki á svörunum, og oft er sagt frá af mikilli hrifningu en oft er frásögnin brengluð og mikið um endurtekningar. Þá kemur segulbandið að góðum notum. Barnið fær að hlusta á sína hröðu, ruglingslegu frásögn. Því er bent á að vanda frá- sögnina betur, og svo er reynt aftur að segja frá sama efni. Á eftir má hlusta á báða þætt- ina og fer þá ekki hjá því að barnið finni muninn. Þessari aðferð má jafnt beita heima á heimilunum og í skólunum. Eins má fara að með upplestur á fallegum kvæðum og sögum. Ef alls þessa væri gætt í upp- eldi og fræðslu barna, þá mundu færri ungmenni segja frá á versta sjoppumáli eins og Danni í leikritinu Víxlar með afföllum. Stefán Jónsson. Aðalfundur SÍS Framhald af bls. 16. kaupfélaganna, ekki nema 2,5 milljónir. Tekjuafgangur, af- skriftir og afslættir voru sam- anlagt 20,8 milljónir. Nokkuð hefur verið talað um miklar fjárfestingar Sambandsins á árinu. Þær voru 22,4 millj. og á móti þeim hafa fengizt veð- lán að hluta. Það þykir ekki tiltökumál, þótt einn maður, eða fjölskylduhlutafélag kaupi skip. Allar fjárfestingar Sam- bandsins árið 1963 eru sem næst eins og hálft andvirði slíks skips. Skortur á rekstrarfé var fjötur um fót á verzluninni, eins og margkunnugt er, og hefði rekstrarútkoma orðið mun betri, ef slíkt hefði ekki þrengt að. 1 ræðu sinni lagði forstjór- inn áherzlu á varúð í fjármál- um og mælti sterkum varnaö- arorðum til kaupfélagsstjór- anna um gætni í framkvæmd- um og sparnað í rekstri. Hefur hann að vísu gert það á öllum undanfarandi Sambandsfund- um. Þá undirstrikaði hann SAMVINNAN 29

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.