Samvinnan - 01.08.1964, Blaðsíða 26
Fréttir af
aðalfundi SÍS
Framhald af bls. 18.
arlegastar fjárhagsáætlanir,
sem fylgt sé, svo sem frekast
er unnt.
Ennfremur minnir fundur-
inn á, að rekstrarlán landbún-
aðarins eifu enn óbreytt að
krónutölu frá því sem var 1959,
þrátt fyrir stórhækkað verð-
lag og aukið afurðamagn.
Telur fundurinn óhjákvæmi-
legt, að rekstrarlánin verði
stórlega hækkuð og skorar á
stjórnarvöldin að gera ráðstaf-
anir til þess.“
Um kjaramál:
„Með vísun til samþykktar
aðalfundar Sambandsins 1961,
ítrekar fundurinn nauðsyn
þess, að gagnkvæmur skilning-
ur og samstarf sé á milli sam-
vinnuhreyfingarinnar og
verkalýðssamtakanna. Um leið
og fundurinn fagnar því sam-
komulagi, sem nú hefur tek-
izt um kjaramálin, þakkar
hann Vinnumálasambandi
samvinnufélaganna fyrir hlut-
deild þess í samningsgerðinni.“
Heimilisþáttur
Framhaid af bls. 21.
Mynstrið á bakkaböndunum er
auðveldast að teikna á efnið
með vélritunarkalkipappír,
svörtum eða hvítum. Ath. að
það eru 11 mynstur á hverju
bandi.
BAKKABÖND
Bakkabönd eru falleg og not-
hæf hverju heimili. Þau eru
ýmist höfð úr fallegum mis-
litum eða einlitum bómullar-
eða strigaefnum, einnig hör.
Séu bakkaböndin úr hör eða
strigaefni eru höfð í þeim út-
talin þræði — eða krossasaums-
mynstur en í einlit bómullar-
efni er fallegt að teikna ein-
föld mynstur eftir eigin hug-
mynd. Þessi bönd eru úr bóm-
ullarefni. Fullsaumuð eru þau
110x41/2 cm. En stærð band-
anna fer eftir bakkanum, sem
þau eiga að bera. í þessi bönd
er efnið 114x12 cm. Skipt í tvö
bönd eftir endilöngu.
Miðjan er rispuð, brotin eða
þrædd þráðrétt. Síðan er 1
mynstur teiknað á hvert band.
Saumað með leggsaumi, ein-
földum sporum og krossspor-
um, með tveim bláum litum og
tómatrauðum.
Betra er að fóðra böndin, sem
síðan eru saumuð saman eftir
endilöngu, stungið í gegnum
hringinn og gengið frá endum.
Innanmál hringsins er 5 cm.
26 SAMVINNAN