Samvinnan - 01.08.1964, Side 21
Þessar þrjár myndir fylffja handavinnuþættinum, tvær þeirra
(að neðan og til hægri) pistlinum um axlaböndin.
dökkgrátt í kantinn en mosa-
grænt, tómatrautt og dökkgrátt
í bekkinn.
Stærð hvers dúks er 32x44 cm.
Varpað er yfir kantþræðina og
síðan byrjað að þræða mynstr-
ið 4 cm frá brún, þrætt allt
í kring og aðgætt að þræðirnir
séu nógu langir og að efnið
herpist ekki.
Á myndinni merkir einn fer-
hyrningur þráð en það gætu
eins verið tveir þræðir eftir
grófleika efnisins. Auðveldara
er að horfa á mynstrið í gegn-
um stækkunargler.
Endarnir eru síðan jafnaðir og
látnir ganga niður í faidinn
sem síðan er brotinn þráðþétt
og lagt niður við á röngu í
höndum.
AXLABÖND
Útsaumuð axlabönd eru fal-
leg við pils eða síðar buxur.
Böndin eru fallegust úr hör
eða þéttu strigaefni. í þau
fara 15 cm af 90 cm breiðu
efni.
Saumað er með tvöföldu
bómullargarni, árórugarni,
bródergarni, perlugarni eða
hörgarni.
Margs konar mynstur má
nota, en í þessi berjamynstur
er notað rautt og grænt garn.
Efninu er skipt í tvennt eftir
rndilöngu, miðjan þrædd og
mynstrið saumað yfir tvo til
fjóra þræði eftir grófleika efn-
isins. 3—4 cm eru hafðir milli
mynstra. Betra er að fóðra
böndin t. d. með lérefti, sem
áður er bvegið. Fóðrið er haft
2i/z cm á breidd.
Að síðustu eru böndin saumuð
saman eftir þræði, gengið frá
endum og axlabandaklemmur
festar á. Einnig má búa til
lykkjur á endana og hneppa
böndin.
Framhald á bls. 26.
Lesendur eru beðnir afsökun-
ar á misritun í uppskrift af
ávaxtaköku í síðasta blaði. Þar
stóð % bolli salt, en átti að
sjálfsögðu að vera V> tsk.
SAMVINNAN 21