Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1964, Síða 27

Samvinnan - 01.08.1964, Síða 27
Námsgjald kr. 200,00. Notið tækifærið strax. Otfyllið seðilinn hér til hliðar og sendið hann til BRÉFASKÖLA SÍS, Sambandshúsinu, Reykjavík. Innritum allt árið — BRÉFASKÓLI SÍS Ég undirritaður óska að gerast nemandi í: Fundarstjórn og fundarreglum □ Vinsamlegast sendið gegn póstkröfu. □ Greiðsla hjálögð kr.______________ Nafn Heimilisfang að yfirgefa rannsóknarstofurn- ar. Verið þið sælir, helvískir morðingjasóðarnir ykkar. Mallika dó þann tuttugasta og fjórða desember. Svo þú hélzt ég gæti ekki framið' hinn fullkomna glæp, eða hvað, tíkin þín? Mallika, þú varst bölvaður asni. Þú varst furðuljót í dauðanum og það var fýla af þér. Einsog þið vitið, sögðu lækn- arnir að Mallika hefði dáið úr taugaveiki. Mallika ... þarftu endilega að drekka appelsínið? Vesalings elsku Mallika, þú færð aldrei að vita hve heitt ég elskaði þig ... Hann er einhver erfiðasti sjúklingurinn hérna á hælinu. Hann var rólegur meðan hann skráði sögu sína. Síðan fór hann að berja höfðinu við vegginn. Aumingja maðurinn .. Móðurmálið . . . Pramhald af bls. 13. skyldum á fund til vorra ekta- kona, en gátum ekki klárað okkur þann dag, því að Lamba- höndlunin gekk svo illa, að við fengum ekki nema nítján og hálfan skilding fyrir pundið, nítján og hálfan fyrir pundið af ullinni. Nú, Árna-björn, hvar eru mínir hestar, sagði ég við Árna-björn. Hann svaraði: snautaðu sjálfur eftir þeim, þú dofni hundur. Ég svaraði: allt of sterk er birtan í dag og þú veitst ég hef það náttúrlega illa, sjónarinnar veiklun, hvar fyrir augu mín líða við þeirrar blindandi birtu skaðlegu verk- anir; líka ætti maður að var- ast, hvað ské kann að tala svona illa, og þvílíkt orð, sem þú brúkar, ættu aldeilis ekki að brúkast; því þau passa í það minnsta ekki staðnum, hvar sú meiri upplýsing upp- ljómar fólk. Hann svaraði: ein- stakt lit í sunnanpóstinn mun sýna þér það mótsetta; líka í bókum talar sá siðaði, lærði ekki það mögulegast hreinast mál.“ Hver, sem les þessa háðu- legu skopstælingu á íslenzku máli á fyrri hluta nítjándu ald- ar, sér eins og í skuggsjá í hví- líkri niðurlægingu íslenzkt mál var þá hjá óþjóðlegum og dönsku-elskandi mönnum og hvílíkt átak það var hjá al- þýðufólki Islands í hinum dreifðu byggðum og þjóðholl- um menntamönnum að hefja íslenzkt mál upp úr þessari nið- urlægingu. Vitanlega er þessi skopstæl- ing í Fjölni byggð upp á sama hátt og hjá þeim Helga Hjörvar og Agnari Þórðarsyni, að hátt er reitt til höggs og vel fylgt eftir, til að ádeilunni verði meiri athygli veitt. — Er það háttur þeirra er vel kunna á vendinum að halda. En sagan af Árna-birni og mér, sýnir þó vel hvert stefndi með íslenzkt mál og hvernig farið hefði ef vormenn þeirrar aldar hefðu ekki tekið í taum- ana. En þeir, sem þeirri endur- reisn stjórnuðu áttu líka þá listhneigð og gáfur, að með- ferð málsins lék þeim á tungu, jafnt í bundnu og óbundnu máli. Þarf ekki annað en minn- ast ljóða Jónasar Hallgrímsson- ar frá þeim tíma, eins og t. d. Nú andar suðrið, og Fýkur yfir hæðir, og bera fegurð máls og ljóðs saman við óskapnaðinn í skopstælingu Fjölnis, sem var dálítið yfirdrifið sýnishorn af lágkúrustíl og málleysum þeirra tíma. Með hryllingi hugsar maður til þess, hvernig farið hefði, ef endurreisn íslenzks máls hefði ekki tekizt. — En fornbókmenntirnar, þjóðsög- urnar og hið lifandi mál fólks- ins í dölum og fjallabyggðum, voru þær meginstoðir, sem menntamenn þeirra tíma gátu byggt á. En í sambandi við skopstæl- ingar þeirra Helga Hjörvars og Agnars Þórðarsonar er líka gott að minnast þess, að enn er móðurmálið hreint og óbjagað víða í byggðum landsins, og enn eru til skáld og menntamenn, sem fara ljúflega með ástkæra ylhýra málið, bæði í ræðu, riti og ljóði og enn getur íslenzk tunga endurfæðst af sömu uppsprettum og fyrr, fornbók- menntum, þjóðsögum og lif- andi máli fólksins í hinum dreifðu byggðum. En eru þá þessar skopstælingar gáfaðra GÓÐIR FUNDiRMENN! Örlög þjóöar geta oltið á kunnáttu yðar og þekkingu í fé- lagsmálum. — Sérhver borgari lýðræðisþjóðfélags þarfn- ast staðgóðrar kunnáttu í fundarstjórn og fundarreglum. BRÉFASKÖLI SÍS býður yður námskeið í FUNDARSTJÖRN og FUNDARREGLUM, 3 bréf — kennari Eiríkur Pálsson, lögfræðingur. SAMVINNAN 27

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.