Samvinnan - 01.08.1964, Side 30
©
Kodak
INSTAMATIC 50
kr. 496,-
Það eru til 4 mismunandi filmur í KODAK-
hylkjum: VERICHROME PAN fyrir svart/hvítt,
KODACHROME-X og EKTACHROME-X fyrir
lit-skuggamyndir og KODACOLOR-X fyrir Iit-
myndir. — Myndastærðin er 9x9 cm.
mm ipmiiiHj
SiMi 2 0313 BANKASl R/ETI 4
nauðsyn þess að gera sam-
vinnuhreyfinguna fjárhagslega
sjálfstæða, auka skilning unga
fólksins á samvinnufélögun-
um, og sérstaklega efla sam-
vinnustarfið í Reykjavík. Orð-
rétt sagði forstjórinn:
„Stærst eru verkefnin í
verzluninni. Fyrir Sambandið
er aukin verzlun nauðsynleg.
Um leið og lagfæring fæst á
fjármálum, eykst verzlunin af
sjálfu sér. Eitt af stærstu verk-
efnunum í heildsöluverzlun-
inni, er nýtt skipulag á vöruút-
vegun fyrir félögin, með vöru-
miðstöð, aukinni sölutækni og
fullkomnu rafeindabókhaidi,
en undirstaða undir öllu þessu
er traustur fjárhagur félag-
anna og Sambandsins. Við
skulum ganga vígreifir til
verks, bjartsýnir á mátt og
styrk samtakanna, en raunsæir
á nauðsyn þess, að treysta und-
irstöðuna. Við höfum miklar
skyldur, að efla samvinnustarf-
ið og gera það að stærri mátt-
arstólpa í efnahagslífi okkar
fámennu þjóðar.“
Aðalfundi Sambandsins lauk
að venju með hófi að Bifröst,
sem allir fulltrúar sátu, auk
fjölda gesta. Veiziustjóri var
Erlendur Einarsson, forstjóri.
Er hann sleit hófinu mælti
hann meðal annars:
„Við höfum á nýloknum að-
alfundi rætt mikið um vanda-
málin, sem við er að stríða í
dag í okkar hreyfingu. Lausn
þessara mála er í okkar hönd-
um. Nú þegar leiðir skiljast og
hver heldur til síns heima,
vona ég, að við höldum heim
staðráðin í því að vinna enn
betur að lausn vandamálanna,
að vexti og viðgangi þeirrar
hreyfingar, sem tengir okkur
saman. Á okkur hvíla miklar
skyldur. Við erum umbjóðend-
ur stórs hluta þjóðarinnar,
trúnaðarmenn og konur, við að
byggja upp félagsmála- og við-
skiptahreyfingu, sem hefur það
markmið að tengja saman
margar hendur til átaka um
velferðarmál landsins barna.
Megum við öll halda heim með
bjartar vonir um farsæld í
störfum okkar og daglegu lífi.
Megi samvinnustarfið blómg-
ast á komandi tímum. Megi
þið öll fá góða heimferð og
ánægjulega heimkomu.“
Nánari fréttir af Sambands-
fundi hafa komið í blöðum og
útvarpi og nokkrar þeirra eiga
eftir að koma í fréttabréfi
Samvinnunnar.
PHJ
Aðalfundur Kf. Rang.
Framhald af bls. 19.
Tekjuafgangur nam kr.
537.000,00. Fundurinn sam-
þykkti að greiða félagsmönn-
um i/2% af öllum viðskiptum
félagsmanna í stofnsjóð þeirra,
auk þess voru lagðar 250.000,00
í varasjóð og 50.000,00 í menn-
ingarsjóð en úr þeim sjóð er
veitt til menningarmála í hér-
aðinu og námu veitingar úr
honum kr. 25.500,00 á árinu.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga Ólafur Sveinsson Stóru-
Mörk, Guðmundur Þorleifsson,
Þverlæk og Sveinbjörn Högna-
son. Breiðabólstað og voru þeir
allir endurkjörnir til næstu
þriggja ára.
Endurskoðandi var endur-
kjörinn Benedikt Guðjónsson,
Nefsholti, og í stjórn menning-
arsjóðs Árni Sæmundsson
Stóru-Mörk.
Á fundinum kom fram mikill
áhugi um vöxt og viðgang fé-
lagsins í framtíðinni og voru
menn sammála um að standa
sem fastast um félagið og gera
veg þess sem mestan. Það kom
einnig fram allmikil bölsýni
um afkomuhorfur landbúnað-
arins hiá fundarmönnum,
rekstrarfjárskortur hjá bænd-
um væri tilfinnanlegur sem svo
aftur bitnaði á félaginu.
Fundarmenn þáðu kaffiveit-
ingar í hinum vistlegu húsa-
kynnum félagsheimilisins
Hvols á Hvolsvelli.
VEX SÁPAN
VEX HANDSÁPAN VEX HANDSÁPAN
VEX HANDSÁPAN VEX HANDSÁPAN
Vex handsápurnar hafa
þrennskonar ilm.
Veljið ilmefni viðyðar hœfi.
30 SAMVINNAN
EFNAVERKSMIÐJAN
VEX HANDSÁPAN VEX HANDSÁPAN VEX HANDSÁPANVEX HANDSÁPAN